Fréttablaðið - 18.03.2020, Page 18
Það ætti ekki að
þurfa að reka
banka með meira en tuttugu
prósenta eigin fé.
Snorri Jakobsson,
greinandi hjá
Capacent
Það er ekki svo að
skuldirnar séu of
miklar, eins og í síðustu
kreppu, heldur felst vand-
inn í tekjufalli
fyrirtækja.
Yngvi Örn
Kristinsson,
hagfræðingur
Samtaka fjár-
málafyrirtækja
Kristinn
Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
✿ Lán banka til ferðaþjónustu við áramót
8%
Hlutfall af
útlánum
62 milljarðar
10%
Hlutfall af
útlánum
90 milljarðar
8%
Hlutfall af
útlánum
96 milljarðar
Arion banki Íslandsbanki Landsbankinn
Hagfræðingur Sam-t a k a f já r m á l a -f y r ir tæk ja seg ir v i ð n á m s þ r ó t t bankanna mjög mikinn. Þeir eigi
að geta tekist á við efnahagsáfallið
sem dynur nú yfir vegna afleiðinga
kórónaveirunnar.
Greinandi hjá Capacent telur
stjórnvöld og Seðlabankann auð-
veldlega geta veitt bönkunum enn
frekara svigrúm til þess að takast á
við lausafjárerfiðleika fyrirtækja.
Afnám bankaskatts og sérstaks
sveif lujöfnunarauka sem leggst
ofan á eiginfjárkröfur bankanna
hljóti að koma til skoðunar.
Stóru viðskiptabankarnir þrír
– Arion banki, Íslandsbanki og
Landsbanki – höfðu við síðustu ára-
mót lánað samtals um 248 milljarða
króna til fyrirtækja í ferðaþjónustu,
samkvæmt samantekt Markaðar-
ins. Eru það um átta til tíu prósent
af lánasöfnum bankanna.
Viðmælendur Markaðar ins-
innan bankakerfisins telja ljóst
að bankarnir muni þurfa að taka
á sig högg vegna erfiðleika í ferða-
þjónustu, sem geti jafnvel smitast
á aðrar atvinnugreinar, á næstu
vikum. Ómögulegt sé hins vegar
að segja til um umfang mögulegra
afskrifta á þessari stundu, enda sé
óvissan enn mikil og óvíst hvernig
ferðaþjónustufyrirtækjum muni
reiða af í glímunni við afleiðingar
kórónafaraldursins.
Samkvæmt álagspróf i Seðla-
bankans, sem fjallað var um í fjár-
málastöðugleikaskýrslu bankans í
október í fyrra, gætu eiginfjárhlut-
föll bankanna lækkað um meira en
fjögur prósentustig, ef gert er ráð
fyrir verulegu efnahagsáfalli sem
felst í snörpum samdrætti útflutn-
ings, hækkun fjármagnskostnaðar
innlendra fyrirtækja og mikilli
lækkun eignaverðs.
Í skýrslunni var bent á að eigin-
fjárhlutföll bankanna væru tiltölu-
lega há en engu að síður myndu þeir
þurfa að ganga á eiginfjárauka ef
sviðsmynd bankans yrði að veru-
leika.
Hlutabréfaverð í Arion banka,
eina íslenska bankanum sem er
skráður í kauphöll, hefur lækkað
um tæp 31 prósent undanfarinn
mánuð, en til samanburðar hefur
evrópska bankavísitalan Stoxx
European 600 Banks fallið um 44
prósent á sama tíma.
Staðan betri hér en víða
„Almennt má segja,“ útskýrir Yngvi
Örn Kristinsson, hagfræðingur
Samtaka fjármálafyrirtækja, „að
eiginfjárstaða bankanna sé góð
og mun betri en í nágrannalönd-
unum, að því leyti að bankarnir
hér eru með hærri áhættuvogir á
eignaliðum sínum, sem gerir það
að verkum að raunverulegt eigið fé
þeirra er tvisvar til þrisvar sinnum
meira en víðast hvar annars staðar.
Staða bankanna er einnig sterk
að því leyti að lánasöfn þeirra voru
alveg hreinsuð í kjölfar síðustu
fjármálakreppu. Það eru engin lík
í lestinni, ef svo má að orði komast,
eins og eru kannski víða í nágranna-
löndunum. Ónýt útlán voru tekin út
úr efnahagsreikningum bankanna
eftir fjármálakreppuna og afskrifuð
og fyrirtækin voru fjárhagslega
endurskipulögð.“
Snorri Jakobsson, greinandi hjá
Capacent, segir að þótt bankarnir
búi yfir miklu eigin fé, sé hægt að
ímynda sér þann möguleika –
miðað við verstu sviðsmynd – að
eiginfjárhlutfall þeirra fari undir
Höggið verði þungt en viðráðanlegt
Bankarnir eiga að geta tekist á við efnahagsáfallið að mati hagfræðings Samtaka fjármálafyrirtækja. Stjórnvöld geti hjálpað til með
lækkun sveiflujöfnunarauka. Lán banka til ferðaþjónustu nema um 250 milljörðum eða um átta til tíu prósentum af lánasöfnum.
Tæplega tvær milljónir ferðamanna komu til landsins í fyrra en búist er við talsverðri fækkun í ár vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Afnám bankaskattsins væri einföld og áhrifarík aðgerð
Snorri Jakobsson, greinandi hjá
Capacent, segir hugmyndina á
bak við sveiflujöfnunaraukann
þá að hann hækki í uppsveiflu en
lækki í niðursveiflu. Engu að síður
sé nýbúið að hækka hann þegar
mun eðlilegra hefði verið að
lækka hann.
„Þannig vinnur hann beinlínis
gegn peningastefnunni og þeim
vaxtalækkunum sem gripið hefur
verið til. Það virðist sem ekkert
samræmi sé þarna á milli. Það er
eins og menn séu ekki að ganga
í takt. Mér finnst þetta misræmi
undirstrika veikleika í rekstri
Seðlabankans. Að það sé ekki
nógu skýr lína í stefnu bankans,“
segir hann.
Vissulega búi sjónarmið um
öryggi að baki hækkun sveiflu-
jöfnunaraukans. Í því sambandi
þurfi hins vegar að hafa í huga að
eigið fé bankanna sé afar hátt og
mun hærra en gengur og gerist
annars staðar.
Þá segir Snorri stjórnvöld hafa
það í hendi sér að auka getu
bankakerfisins til þess að veita
fyrirtækjum landsins lánafyrir-
greiðslu með því að lækka eða
jafnvel afnema bankaskattinn.
Ríkið fái óverulegar tekjur af
skattinum á meðan hann hamli
útlánum bankanna.
„Það er á valdi ríkisstjórnarinnar,
með stuðningi meirihluta þings-
ins, að afnema þennan skatt strax
og liðka þannig fyrir útlánum. Það
er mjög einföld aðgerð sem hefði
strax áhrif, sér í lagi miðað við nú-
verandi ástand,“ nefnir Snorri.
kröfur Fjármálaeftirlitsins.
„Þær kröfur eru afar stífar og þá
sérstaklega sveiflujöfnunaraukinn,
sem ætti að afnema hið fyrsta. Það
ætti ekki að þurfa að reka banka
með meira en tuttugu prósenta
eigin fé. Hvaða ævintýralega skelli
eru menn þá að búast við?“ nefnir
hann.
Yngvi Örn segist, aðspurður,
binda vonir við að sveiflujöfnunar-
aukinn – sem var hækkaður í tvö
prósent í síðasta mánuði – verði
lækkaður til þess að gefa bönkun-
um meira svigrúm til þess að mæta
auknum vanskilum.
„Vonir okkar standa til þess að
eftirlitsyfirvöld bregðist við með
því að lækka þennan auka og gera
þannig bönkunum kleift að bera
með auðveldari hætti aukin vanskil
sem eru augljóslega fyrsta afleiðing
þessara erfiðleika,“ nefnir Yngvi
Örn.
Landsbankinn lánað mest
Af bönkunum þremur hafði Lands-
bankinn lánað hvað mest til ferða-
þjónustu við síðustu áramót, eða
alls 96 milljarða króna, sem gerir
um átta prósent af lánasafni bank-
ans. Lán Íslandsbanka námu á sama
tíma 90 milljónum króna, eða um
tíu prósentum af lánasafninu og
þá hafði Arion banki lánað um átta
prósent af lánasafni sínu eða 62
milljarða króna.
Útlán viðskiptabankanna til
atvinnugreinarinnar – sem hlutfall
af heildarútlánum bankanna til við-
skiptavina – hafa haldist í kringum
níu prósent frá miðju ári 2017.
Fjárbinding í ferðaþjónustu er
fyrst og fremst í fasteignum og flug-
vélum, að sögn þeirra sem þekkja til
mála. Má þannig leiða líkur að því
að trygg veð, einkum fasteignir,
liggi að baki stórum hluta af lán-
veitingum bankanna sem þeir síð-
arnefndu gætu þá gengið að í kjölfar
vanskila.
Yngvi Örn bendir á að erfiðleik-
arnir sem heimili og fyrirtæki glími
nú við vegna af leiðinga Covid-19
séu ólíkir kreppunni árið 2008 sem
hafi fyrst og fremst verið skulda-
kreppa.
„Það sem er að gerast núna er að
fyrirtæki, til dæmis í ferðaþjónustu,
eru að missa tekjur og geta mögu-
lega ekki greitt af lánum af þeim
sökum. Það er ekki svo að skuld-
irnar séu of miklar, eins og í síðustu
kreppu, heldur felst vandinn í tekju-
falli fyrirtækja. Þegar veltan verður
aftur orðin eðlileg ættu fyrirtækin
því að geta haldið áfram að borga
sínar skuldir,“ segir Yngvi Örn.
1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN