Fréttablaðið - 18.03.2020, Síða 20
milljónir króna var launa-
kostnaður TIF vegna
eins starfsmanns og stjórnar.
35
Eru frumvarps-
drögin til þess fallin
að færa viðskiptalíkan
Kviku í átt að viðskipta-
líkani KMB sem á sama tíma
er óarðbært miðað við smæð
bankans og núverandi
umgjörð fjármálakerfisins.
Úr umsögn Kviku banka
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Steing r ímu r Birg isson, forstjóri Bílaleigu Akur-eyrar, segir að óvissan sé mikil í ferðaþjónustu og f leiri at vinnugreinum vegna kórónaveirunnar
sem skekur heimsbyggðina. „Það
er allt afar þokukennt um þessar
mundir. Það er unnið að því að laga
reksturinn að því að ferðamenn
nánast hætti að koma til landsins í
einhvern tíma. Við gerum ráð fyrir
því að það verði lítið að gera í mars
og apríl, maí verði erfiður en salan
fari að aukast í júní. Vonir standa til
að ástandið gangi yfir á tveimur til
þremur mánuðum og það náist við-
spyrna þegar líða tekur á sumarið,“
segir hann.
Verulegur samdráttur
Sigfús Sigfússon, forstjóri bíla-
leigunnar Hertz, segist gera ráð
fyrir að tekjur fyrirtækisins muni
dragast verulega saman í ár vegna
kórónaveirunnar . Á móti vegi að
kostnaður muni lækka eitthvað.
Leitast verði við að tryggja störf
starfsmanna með því að ráða ekki
sumarstarfsfólk. Alla jafna starfi
fjöldi sumarstarfsmanna hjá fyrir-
tækinu.
Björn Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri Kynnisferða, segir að aðgerðir
fyrirtækisins um þessar mundir
miðist við að ferðamenn hætti að
koma til landsins. „Þetta verður
stutt og djúp lægð,“ segir hann. „Ég
held hins vegar að haustið muni
koma sterkt inn.“
Ef það komi helmingurinn af
þeim ferðamönnum í sumar sem
komu til landsins í fyrra væri það
vel af sér vikið, að mati Björns. Síð-
astliðið sumar komu 678 þúsund
ferðamenn, sem var um sextán pró-
senta fækkun frá árinu áður, sam-
kvæmt tölum frá Ferðamálastofu.
Bíða eftir stjórnvöldum
Guðjón Ármann Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Hópbíla, segir að við
þessar aðstæður sé einn dagur tek-
inn í einu í rekstrinum. „Salan gekk
vel í janúar og febrúar og í byrjun
marsmánaðar, en undanfarna daga
hafa bókanir þornað upp. Við bíðum
eftir að sjá hvaða aðgerðaáætlun
kemur frá stjórnvöldum og þá getum
við metið hver næstu skref verða.“
Ýmsir viðmælendur Markaðar-
ins í ferðaþjónustu horfa til þess að
nýta sér að ríkið muni bjóða upp á
að starfsmenn í skertu starfshlut-
falli geti sótt um atvinnuleysisbæt-
ur. Ennfremur nefna þeir að frestun
opinberra gjalda væri til bóta.
Landamærum hefur verið lokað
og víðtækum samkomubönnum
hefur verið komið á í heiminum
næstu fjórar vikur, til að sporna við
smitum vegna kórónaveirunnar.
Það gerir það að verkum að lítið
verður um ferðalög. Stór f lugfélög
hafa dregið verulega úr framboði
á f lugsætum eða um 75-90 prósent.
Icelandair eina flugfélagið?
„Við þurfum að vera undir það búin
að Icelandair verði eina flugfélagið
sem f lýgur hingað til lands í ein-
hvern tíma,“ segir Björn. Mögulega
muni f lugfélög sem f lugu hingað
áður, beina sjónum sínum að stærri
mörkuðum fyrst um sinn. Þá reyni á
að skapa hvata til að örva eftirspurn
og að Icelandair geti stutt við bakið
á íslenskri ferðaþjónustu.
Guðjón Ármann segir að tryggja
þurfi lífvænlegum fyrirtækjum
aðgang að lausafé á góðum kjörum
svo þau geti f leytt sér áfram. „Mér
sýnist fyrstu tillögur frá hinum
Norðurlöndunum nokkuð skyn-
samar leiðir til að verja störf hjá
fyrirtækjum þar sem þau greiða
megnið af launum starfsmanna sem
ella hefði verið sagt upp. Það bjargar
hvorki störfum né fyrirtækjum ef
greiða þarf uppsagnarfrest í nokkra
mánuði á sama tíma og sáralitlar
tekjur koma inn.“
Hann leggur til að tryggingagjald
og jafnvel aðrir skattar verði lækk-
að, að minnsta kosti á þær atvinnu-
greinar sem kórónaveiran bitnar
hvað mest á, sem er ferðaþjónusta
– hótel og veitingageirinn, enda hafa
álögur á atvinnulífið aukist umtals-
vert undanfarið.
Sigfús er sammála því að lækka
verði tryggingagjaldið og nefnir að
Hertz greiði um fimm milljónir á
mánuði í tryggingagjald.
Dragi hækkun til baka
Steingrímur segir að frá áramótum
hafi bílaleigur þurft að greiða full
vörugjöld af bílum. „Við þessar
aðstæður þarf að draga þá ákvörðun
til baka. Bílaleigur keyptu á síðasta
ári fimm þúsund bíla af bílaumboð-
unum. Það er því um háar fjárhæðir
að tef la. Í ofanálag hefur gengi
krónu veikst að undanförnu og því
hefur verð á bílum sem við erum að
kaupa hækkað um tugi milljóna. Þá
þarf að afnema bifreiðagjöldin fyrir
seinni hluta ársins til að létta undir
með rekstraraðilum í sumar.“
Sigfús segir Hertz hafa verið með
um 2.700 bíla í fyrra og reiknar
með að f lotinn muni telja um um
2.000 í ár. „Í samvinnu við bílaum-
boðin erum við að takast á við
stöðuna. Hætt hefur verið við kaup
á einhverjum bílum og aðrir verða
geymdir á tollfrjálsu svæði í Rot-
terdam og á Íslandi. Þegar ástandið
batnar verðum við f ljótir að taka
bílana í notkun.“ Björn segir fjölda
funda og ráðstefna sem hafi átt
að vera í vor hafa verið frestað til
hausts. „Þess vegna held ég að haust-
ið og veturinn verði sterkur.“ Björn
nefnir að fjöldi þjóða hafi boðað
markaðsherferðir sem beint verður
að ferðamönnum þegar kórónaveir-
an hefur gengið yfir. „Það mun leiða
til fleiri ferðamanna til Íslands.“
Sjá fram á stutta en djúpa lægð
Bílaleigur og rútufyrirtæki búa sig undir að ferðamenn nánast hætti að koma í einhvern tíma. Beðið eftir
aðgerðaplani stjórnvalda til að geta ákveðið næstu skref. Telur að haustið verði sterkt í ferðamennsku.
Það blæs ekki byrlega í ferðaþjónustu. Fyrirtækin búa sig undir lítil viðskipti næstu vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þurfum áætlun til að styrkja fjárhag fyrirtækja
Björn Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri Kynnisferða, segir að sam-
drátturinn næstu vikur og mánuði
muni höggva í eigið fé fyrirtækja
og einhver muni ekki lifa það af.
Stjórnvöld og bankar þurfi því að
hafa áætlun um það hvernig eigi
að byggja félögin upp að nýju, svo
drjúgum tíma verði ekki varið í að
endurskipuleggja fjárhag þeirra.
„Við þurfum að vera tilbúin á
bensíngjöfinni þegar ferðamenn
fara aftur að ferðast,“ segir hann.
Þegar ferðamenn verða aftur
reiðubúnir að ferðast verður
lausafé margra fyrirtækja uppurið
og þau með skuldahala. „Það færi
mikil orka í að reka fyrirtækið
áfram með þeim hætti. Það þarf
að vera einhver sýn á lausnina
þegar við komum út úr þessu svo
fyrirtækin geti verið tilbúin. Það
þarf að vera bensín á tankinum
til að sækja aftur viðskipti,“ segir
Björn.
Hann nefnir að Danir og Norð-
menn hafi boðað að setja mikla
fjármuni í björgunarsjóði félaga.
„Við eigum að horfa til þess að
gera eitthvað slíkt svo fyrirtækin
geti komið sér aftur upp á lapp-
irnar. Það má ekki taka marga
mánuði því þá fara ferðamennirn-
ir á aðra áfangastaði. Það verður
samkeppni um að fá ferðamenn.“
Rek strarkostnaður Tr yg g-ingasjóðs innistæðueigenda og fjárfesta (TIF) nam 193
milljónum á árinu 2019 samkvæmt
nýbirtum ársreikningi sjóðsins.
Á árinu var einn starfsmaður á
launum, Brynjar Kristjánsson
framkvæmdastjóri. Gjaldfærð laun
hans og stjórnar tryggingasjóðsins
námu 28,2 milljónum á árinu, og
launatengd gjöld 6,9 milljónum.
Annar rekstrarkostnaður TIF,
sem hefur aðstöðu í Húsi atvinnu-
lífsins, nam 37 milljónum. Sam-
kvæmt svari frá TIF nær annar
rekstrarkostnaður til ýmissar vöru
og þjónustu sem TIF kaupir hjá
þriðju aðilum.
„Hér má nefna lögfræðiþjónustu,
bókhaldsþjónustu og endurskoð-
un, tölvuþjónustu og utanumhald
með vefsíðu og öðru kynningar-
efni, húsaleigu, kostnað vegna
skjalavörslu og gagnagrunns, auk
almenns rekstrar skrifstofu sjóðs-
ins,“ segir í svari sjóðsins. Einn-
ig tekur þetta til þátttöku TIF í
erlendu samstarf i, bæði vegna
aðildargjalda samtakanna IADI og
EFDI og ferða á ráðstefnur á vegum
þessara samtaka. Ferðakostnaður
innanlands fellur einnig hér undir.
Innistæðudeild sjóðsins útvistar
vörslu fjármuna til Íslandsbanka,
Kviku banka og Íslenskra verð-
bréfa. Heildareignir deildarinnar
voru 43,9 milljarðar króna í lok árs
2019 og þar af voru 42,7 milljarðar
bundnir í ríkisskuldabréfum, bæði
innlendum og erlendum. Raun-
ávöxtun ársins var 6,54 prósent.
Kostnaður við eftirlit, ráðgjöf og
umsýslu verðbréfasafns TIF nam
tæplega 121 milljón króna á síðasta
ári. Þar af nam umsýsluþóknun
fyrir vörslu 101 milljón króna, gjöld
til eftirlitsstofnana 12 milljónum og
ráðgjöf 7 milljónum.
Helsta hlutverk TIF er að tryggja
innistæðueigendur fyrir greiðslu-
erfiðleikum fjármálastofnana. Lág-
marks tryggingarfjárhæð á Íslandi
er bundin gengi evru og jafngildir
á hverjum tíma 20.887 evrum, eða
sem nemur tæplega 3,2 milljónum
króna miðað við núverandi gengi.
Ný ting f jár muna TIF, hafa
einungis verið ætlaðir til endur-
greiðslu til innistæðueigenda
vegna falls lánastofnunar, tekur
brey ting um með innleiðing u
Evóputilskipananna BRRD og DGS
III. Reglur BRRD og DGS III gera ráð
fyrir aðkomu innistæðutrygginga-
sjóðs að skilameðferð fjármála-
fyrirtækja. – þfh
Rekstur TIF
kostaði 193
milljónir króna
Forsvarsmenn Kviku banka gera margvíslegar athuga-semdir við drög að frumvarpi
um varnarlínu á milli viðskipta- og
fjárfestingarbankastarfsemi, sem
birt voru í samráðsgátt stjórnvalda
í síðasta mánuði, og telja hætt við
því að samþykkt þeirra muni festa í
sessi sameiginlega markaðsráðandi
stöðu stóru viðskiptabankanna
þriggja.
„Eru frumvarpsdrögin til þess
fallin að færa viðskiptalíkan Kviku
í átt að viðskiptalíkani KMB [kerfis-
lega mikilvægra eftirlitsskyldra
aðila] sem á sama tíma er óarð-
bært miðað við smæð bankans
og núverandi umgjörð fjármála-
kerfisins,“ segir í umsögn Kviku við
drögin sem forstjórinn Marinó Örn
Tryggvason skrifar undir. Þannig
sé grunnur lagður að því að öll fjár-
málafyrirtæki verði steypt í sama
mót.
Samkvæmt frumvarpsdrögun-
um, sem er ætlað að hrinda í fram-
kvæmd einni af megintillögum
hvítbókar um framtíðarsýn fyrir
fjármálakerfið sem gefin var út í
lok árs 2018, verður hámark sett á
stöðutöku kerfislega mikilvægra
viðskiptabanka og sparisjóða í fjár-
málagerningum og hrávörum.
Auk þess er lagt til að Fjármála-
eftirlitinu verði heimilað að tak-
marka viðtöku viðskiptabanka og
sparisjóða á innlánum, óháð því
hvort þeir teljist kerfislega mikil-
vægir, ef stöðutaka þeirra í fjár-
málagerningum og hrávörum fer
umfram þrjátíu prósent af eigin-
fjárgrunni þeirra og getur ógnað
hagsmunum innlánseigenda.
Kvika segir að síðari tillagan veki
„töluverða undran“ enda hafi á fyrri
stigum verið lagt upp með að tak-
marka aðeins stöðutöku kerfislega
mikilvægra viðskiptabanka, en
fjárfestingarbankinn er ekki í þeim
hópi. Nú sé búið að breyta um kúrs
án þess að það sé rökstutt sérstak-
lega.
„Verði frumvarpsdrögin sam-
þykkt í óbreyttri mynd,” segir í
umsögn Kviku, „mun það hafa
óveruleg áhrif á KMB, en aftur á
móti er hætt við að það muni hafa
umtalsverð áhrif á þau fjármálafyr-
irtæki sem ekki teljast vera kerfis-
lega mikilvæg, bæði þau sem nú
eru til staðar og jafnframt þau sem
eiga eftir að hasla sér völl á þessum
markaði.“
Drögin séu þannig sérstaklega
hamlandi fyrir smærri fjármálafyr-
irtæki sem séu í sókn á mörkuðum
þar sem stóru bankarnir hafi verið
yfirráðandi og verði í fyrirséðri
framtíð. Takmörkun á starfsemi
smærri fyrirtækjanna muni veikja
stöðu þeirra í samkeppninni við
þau stærri. – kij
Veiki samkeppnisstöðu smærri fjármálafyrirtækja
Marinó Örn
Tryggvason,
forstjóri Kviku.
1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN