Fréttablaðið - 18.03.2020, Qupperneq 32
Ég hef líka fengið
minn skerf af erfiðri
lífsreynslu, sem tekur þátt í
að móta mann og kenna
manni á sjálfan sig.
Í þessu ástandi er
það lausafé fyrir-
tækja sem skiptir mestu
máli.
Lilja Kjalarsdóttir var ráðin framkvæmdastjóri SagaNatura í febrúar en hún hafði áður gegnt stöðu aðstoðar f ram-kvæmdastjóra frá því í
byrjun árs 2018.
Hvernig finnst þér best að verja
frístundum þínum?
Ég spila fótbolta tvisvar í viku
en í fullkomnum heimi næði ég
líka tveim Bootcamp- eða lyftinga-
æfingum inn. Annars finnst mér fátt
skemmtilegra en að hvetja strákana
mína áfram á fótbolta- eða körfu-
boltamótum. Á veturna reynum við
að vera dugleg að fara á snjóbretti í
Bláfjöllum og í útilegur á sumrin.
Þetta skolast samt stundum til
þegar það eru vinnutarnir.
Nærðu að halda jafnvægi milli
vinnu og fjölskyldulífs?
Nei, því miður, því ég tek nánast
alltaf vinnuna með heim. Sem betur
fer er ég mjög vel gift og Svavar
bakkar mig upp þegar mikið er í
gangi, sem er reyndar mjög oft.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Ég elska að kúra á morgnana. Ég
stilli klukkuna það snemma að ég
get slökkt á henni allavega tvisvar
áður en að ég æði á fætur til að koma
strákunum í skólann og sjálfri mér í
vinnuna. Síðan nýti ég yfirleitt bíl-
ferðina í vinnuna fyrir símafundi.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Verð að velja þrjár. The Cell,
sem er biblía frumu- og sameinda-
líffræðinnar. Grunnþekkingu úr
þessari bók er ég enn að nota í dag,
sérstaklega í vöruþróun. Síðan er
það Good to Great eftir Jim Collin
og Culture Code eftir Daniel Coyle.
Þessar eru í uppáhaldi úr f lokki
stjórnendabóka. Annars er ég alæta
á bækur og ég elska að læra nýja
hluti.
Hvers konar stjórnunarstíl hef-
urðu tileinkað þér og hvers vegna?
Ætli ég myndi ekki segja hvetj-
andi leiðtogi. Það er allavega sá stíll
sem kemur náttúrulega hjá mér en
ég er stöðugt að móta stjórnunar-
hæfileikana. Ég er yfirleitt brosandi
og jákvæð en ég er samt ekki hrædd
við að taka erfiðar ákvarðanir eða
taka erfiðar samræður. Það að geta
tekið erfiðar samræður er sérstak-
lega mikilvægt í þeirri vinnu að
móta teymi. Ég var ung fyrirliði
Stjörnunnar í fótbolta og síðan var
ég líka aðalþjálfari í yngri f lokkum
Stjörnunnar. Ég hef líka fengið minn
skerf af erfiðri lífsreynslu, sem tekur
þátt í að móta mann og kenna
manni á sjálfan sig. Annars horfi ég
á mitt hlutverk eins og hjá fótbolta-
stjóra. Það er í mínum verkahring
að setja stefnuna, velja besta fólkið
í allar stöðurnar og passa að allir
vinni sem ein heild. Ég vil að það
sé eftirsóknarvert fyrir metnaðar-
fullt fólk að vinna hjá Saga Natura.
Maður fer nefnilega ekki langt án
rétta fólksins.
Hver eru sóknarfærin í rekstri
SagaNatura?
Þau eru ótalmörg, það mörg að
við Sjöfn Sigurgísladóttir, fráfar-
andi framkvæmdastjóri og núver-
andi stjórnarmaður, höfum skipt
liði til að missa enga bolta. Hún
einbeitir sér að spin-off tækifærum
og ég mun einbeita mér að því að
stýra uppbyggingu á smáþörunga-
ræktuninni okkar og vöruúrvali
sem hentar vel til útf lutnings, þá
er helst að nefna vinnu við vöru-
þróun og rannsóknir sem styðja við
vörurnar. Okkar stefna er að vera
fremst í fæðubótarefnum úr smá-
þörungum og íslenskum plöntum
sem hafa lyfjafræðilega virkni,
eða svokölluð nutraceuticals. Við
viljum að fólk kaupi vöruna aftur
af því að það fann virkilegan mun
á sér við að taka þær.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum misserum
og hvaða áskoranir eru fram undan?
Það er f lest allt krefjandi hjá
okkur enda erum við metnaðarfull
og ráðumst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur. Við erum stöðugt
að ögra núverandi stöðu og þess
vegna komumst við svona hratt
áfram. Annars eru helsu krefjandi
viðfangsefnin stækkun á fram-
leiðslu frá hráefnum til lokavara,
klára stærri og stærri samninga til
að tryggja útf lutning á vörunum
okkar og tryggja fjármagn í formi
styrkja til að keyra áfram rann-
sóknir á vörunum okkar. Helstu
áskoranir okkar svo í framhaldinu
eru að tryggja áframhaldandi vöxt
félagsins á heimsvísu
Maður fer ekki langt án rétta fólksins
Nám: B.S. í lífefnafræði frá HÍ og
Ph.D. í Biomedicine frá UTSW í
Dallas, TX
Störf: Framkvæmdastjóri líf-
tæknifyrirtækisins SagaNatura
Fjölskylduhagir: Gift Svavari
Sigursteinssyni, einkaþjálfara
og ljósmyndara. Við eigum tvo
stráka, 8 og 11 ára orkubolta sem
æfa fótbolta og körfubolta.
Svipmynd
Lilja Kjalarsdóttir
Lilja var ráðin framkvæmdastjóri SagaNatura í síðasta mánuði en áður hafði hún gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands..
Ferðamálastofa hefur ekki afturkallað starfsleyfi ferða-skrifstofa eftir að kórónafar-
aldurinn hófst. Skarphéðinn Berg
Steinarsson ferðamálastjóri segir
ljóst að faraldurinn muni reynast
mörgum ferðaskrifstofum þungur
og nú hafi stofnunin til skoðunar
hvernig hægt sé að bregðast við.
„Í þessu ástandi er það lausafé
fyrirtækja sem skiptir mestu máli.
Það eru talsvert miklir peningar
bundnir í tryggingum ferðaskrif-
stofa og sjálfsagt horfa margir til
þess að losa það fé. Það er ákveðið
svigrúm til að gera það. Þegar
umfang dregst saman eiga trygg-
ingarnar að gera það líka,“ segir
Skarphéðinn.
Í umfjöllun Markaðarins frá því
um miðjan febrúar kom fram að
heildarfjárhæð trygginga ferða-
skrifstofa, sem þeim er skylt að
útvega samkvæmt lögum, næmi
um sjö milljörðum króna og er stór
hluti af upphæðinni á bundnum
reikningum hjá innlendum við-
skiptabönkum.
„Við erum að fara yfir það hvernig
er hægt að koma til móts við ferða-
skrifstofur í því sambandi, án þess
þó að draga úr þeirri neytenda-
vernd sem felst í ferðskrifstofu-
tryggingum,“ bætir hann við.
Ferðaskrifstofurnar VITA, Ferða-
skrifstofa Íslands og Heimsferðir
hafa komið sér saman um samstillt
átak til að lágmarka kostnaðinn af
því að koma viðskiptavinum, sem
nú eru staddir á Kanaríeyjum, heim
til Íslands. Icelandair hefur sett upp
15 f lug næstu fjóra daga þar sem
ferðaskrifstofurnar, í samráði við
Ferðamálastofu, f lýta för allra far-
þega sem eru á þeirra vegum á eyj-
unum en þeir eru á milli tvö og þrjú
þúsund talsins.
„Það var talið að það þjónaði
hagsmunum allra að gera þetta
með samstillt u át ak i,“ seg ir
Skarphéðinn og nefnir að kostn-
aður aðgerðarinnar sé vel á annað
hundrað milljónir króna. Ferða-
skrifstofur hafa fundað síðustu
daga með Ferðamálastofu, eftir að
hafa fengið heimild til samstarfs frá
Samkeppniseftirlitinu. – þfh
Hægt að losa fé fyrir ferðaskrifstofur
Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður
og einn eigenda Arnarlax.
Það hefur komið á óvart hvað verð á laxi hefur haldist hátt lengi, en við erum að búa
okkur undir að það muni gefa
eftir. Það hefur hægst mjög mikið
á markaðinum og f lutningar eru
snúnir,“ segir Kjartan Ólafsson,
stjórnarformaður Arnarlax, um
áhrif kórónafaraldursins í samtali
við Markaðinn.
„Í fiskeldinu þarf annaðhvort að
láta laxinn bíða í kvíunum, draga
úr slátrun, eða þá að frysta fisk ef
þau verð eru rétt. Við höfum ekki
enn þurft að frysta laxinn en það er
ekki ólíklegt að til þess komi,“ bætir
Kjartan við. Hann nefnir að þegar
lokað var á viðskipti við Rússland
hafi norsk yfirvöld gripið til þess
að heimila eldisfyrirtækjum að fara
yfir hámark lífmassa og gefið þann-
ig meiri sveigjanleika.
„Þannig er hægt að hægja á starf-
seminni án þess að áhrifin verði
of mikil. Það kemur í veg fyrir að
markaðir fyllist og að það myndist
þvingað offramboð,“ segir Kjartan.
Íslensk stjórnvöld geti gripið til
sambærilegra aðgerða ef ástandið
hefur ekki batnað í sumar þegar líf-
massi er sem mestur.
Nor sk a l a xeld i s f y r i r t æk ið
SalMar tilkynnti í gær að ekki yrði
greiddur arður upp á 2,37 millj-
arða norskra króna, jafnvirði 32
milljarða íslenskra króna. Ákvörð-
unin var tekin í ljósi efnahags-
legrar óvissu sem fylgir útbreiðslu
kórónaveirunnar. SalMar á um
59,4 prósenta hlut í Arnarlaxi en
norska félagið jók hlut sinn úr 42
prósentum í 54,2, prósent snemma
á síðasta ári með kaupum á bréfum
TM og Fiskisunds sem virkjaði yfir-
tökuskyldu. – þfh
Arnarlax býr sig undir
að verð á laxi gefi eftir
1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R18 MARKAÐURINN