Fréttablaðið - 18.03.2020, Síða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG TÓK LÍKA EFTIR
ÞVÍ AÐ Í ÞÝSKALANDI
VORU EKKI JAFN MARGIR AÐ
STARFA Á TVEIMUR EÐA FLEIRI
ÓLÍKUM STARFSVETTVÖNGUM
EINS OG Á ÍSLANDI.
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
danskir dagar | húsgagnahöllin | 1
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1
www.husgagnahollin.is
DANSKIR DAGAR
Í HÖLLINNI
Við fögnum 55 ára sameiginlegri sögu
Húsgagna hallarinnar og danskrar hönnunar.
Við bjóðum upp á spennandi tilboð fyrir lifandi heimi
li.
Vertu eins og heima hjá þér – komdu við og fáðu þér
sæti.
AFSLÁTTUR
20%ALLARDANSKAR
VÖRUR*
* Gildir ekki af sérpöntunum og einungis af völdum v
örum frá Skovby.
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
FRÍ HEIM
SENDING
NÝTT
VIRKAR
ÞANNIG
Þú finnur bæklinginn
fyrir Danska daga á
husgagnahollin.is
Þar finnur þú líka
upplýsingar um
fría sendingu.
Sópransöngkonan og ljós-myndarinn Álfheiður Erla er búsett í Berlín í Þýska-landi. Þangað f lutti hún árið 2014 til að nema söng að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Hún gaf út sitt fyrsta tónlistarmynd-
band í síðustu viku.
„Núna stunda ég meistaranám í
Hanns Eisler tónlistarháskólanum,
en ég lauk bakkalárnámi þaðan
vorið 2018. Samhliða námi þá hef
ég reglulega komið fram í óperu-
húsum hér í Þýskalandi og til dæmis
farið með aðalhlutverk í Staatsoper
Berlin,“ segir Álfheiður en það er eitt
þekktasta og besta óperuhús í heim-
inum í dag.
Músíkalskir foreldrar
Álfheiður segir sönginn alltaf hafa
verið hennar helsta áhugamál.
„Foreldrar mínir eru tónlistarfólk.
Mamma mín Valgerður er músík-
meðferðarfræðingur og skólastjóri
Tónstofu Valgerðar og pabbi minn
Guðmundur starfaði sem hljóm-
sveitarstjóri.“
Það var ekki fyrr en á táningsaldri
að Álfheiður fór að hafa áhuga á ljós-
myndun fyrir alvöru.
„Ég var í yndislegum vinkvenna
hópi í Réttó og við vorum alltaf að
skapa og leika okkur saman. Ég var
því ótrúlega lánsöm að fá að þróa
ljósmyndahæfileikana á þessum
árum og í MH þá var mikið um
félagslíf og listafólk sem ég myndaði
í bak og fyrir,“ segir hún.
Hún segist hafa einbeitt sér fyrst
og fremst bara að söngnum eftir að
hún flutti til Berlínar.
„Einhvern veginn hélt ég að fólki
myndi finnast það eitthvað skrítið
að ég væri bæði söngkona og ljós-
myndari. Sem söngkona er maður
á sviðinu og í sviðsljósinu en ljós-
myndarinn á bak við linsuna og
talsvert minna áberandi. Ég tók líka
eftir því að í Þýskalandi voru ekki
jafn margir að starfa á tveimur eða
fleiri ólíkum starfsvettvöngum eins
og á Íslandi.“
Sameinaði áhugamálin
Álfheiður segir þó ekki langan tíma
hafa liðið þar til hún var farin að
mynda samnemendur sína og annað
listafólk í borginni.
„Ég áttaði mig líka alltaf meira og
meira á því hvað þessi tvö áhugamál
mín unnu í raun vel saman. Söngur
og ljósmyndun eru að sjálfsögðu frá-
sögn og tjáning og því spratt upp sú
hugmynd hjá mér að reyna að sam-
eina þessi tvö áhugamál. Langoftast
þegar ég er að syngja, þá birtast mér
í huganum alls konar myndir,“ segir
hún.
Það er þó margt ólíkt með list-
greinunum tveimur.
„Tónlistin sem ég flyt á tónleikum
mun aldrei hljóma nákvæmlega
eins á næstu tónleikum. Þannig er
tónlistin hverful. Galdurinn við
ljósmyndun er hins vegar sá að við
náum að varðveita hvert einstaka
augnablik,“ segir Álfheiður.
Fyrsta myndbandið
Á dögunum gaf Álf heiður út sitt
fyrsta tónlistarmyndband.
„Það er við undurfallegt lag sem
heitir Norden og var samið af Jean
Sibelius árið 1917. Ljóðið skrifaði
ljóðskáldið Johan Ludvig Runeberg
árið 1833 og fjallar um svanina sem
sorgmæddir yfirgefa norðurhvel
jarðar vegna kulda á veturna,“ segir
hún.
Síðasta sumar myndaði hún dans-
arann Mörtu Hlín Þorsteinsdóttur á
fallegum og sólríkum degi.
„Marta Hlín sótti innblástur í
fuglana og vænghaf fugla sem ég
klippti síðan til. Ég og píanóleikar-
inn Kunal Lahiry unnum svo með
upptökustjóranum Piotr Wieczorek
í byrjun þessa árs og svo gat ég loks-
ins birt mitt fyrsta tónlistarmynd-
band. Með þessum hætti sameinast
tónlist, ljóðlist, dans og kvikmynda-
list.“
Vinnur heima
Það stendur til hjá Álfheiði að halda
tónleika þar sem myndbönd og
stillur fá að njóta sín samhliða tón-
listinni.
„En við sjáum hvernig næstu
vikur og mánuðir þróast í ljósi
ástandsins. Á meðal verkefna þetta
vorið eru einsöngstónleikar í New
York á vegum Carnegie Hall City-
wide, einsöngstónleikar í Norður-
ljósum í Hörpu, frumraun í óperu-
húsi í Frakklandi og margt annað
spennandi,“ segir hún.
Heimsfaraldur kórónaveiru hefur
vissulega sett sitt mark á daglegt líf í
Berlín líkt og annars staðar.
„En eins og er þá er mikið unnið
heima við. Ég ætla að halda áfram
að vinna að næstu myndböndum
og reyna að æra nágrannana ekki of
mikið með háværum söng. Ég hvet
alla til þess að halda áfram að sinna
listrænu þörfinni og skapa,“ segir
Álfheiður.
Myndband Álfheiðar er hægt að
nálgast á heimasíðu hennar, alf-
heidurerla.com.
steingerdur@frettabladid.is
Reynir að æra ekki
nágrannana með söng
Söngkonan og ljósmyndarinn Álfheiður gaf út sitt fyrsta mynd-
band í síðustu viku. Hún býr í Berlín þar sem hún er í meistara-
námi í sópransöng. Hún blandar saman söng og hinu myndræna.
Álfheiður reynir að halda sig að mestu heima við þessa dagana, kórónaveiran veldur því. MYND/JANA STEIN
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð