Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 1
24. tölublað 2017▯ Fimmtudagur 14. desember ▯ Blað nr. 505 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Ekki má banna innflutning á hráu kjöti samkvæmt úrskurði EFTA-dómstólsins sem er á skjön við íslensk lög:
Ólöglegt er að markaðssetja smitað kjöt á Íslandi
– Salmónellusmituðu kjöti verður að farga og kamfýlóbaktersmitað kjöt verður að hitameðhöndla eða frysta fyrir markaðssetningu
Formenn búgreinasamtaka
á Íslandi hittust á fundi fyrir
skömmu til að ræða úrskurð
EFTA-dómstólsins um að ólöglegt
væri að banna innflutning á fersku
kjöti til Íslands.
Sindri Sigurgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir að
þungt hljóð hafi verið í mönnum á
fundinum. Sérstaklega þeim sem eru
í hvíta geiranum, svína-, kjúklinga-
og eggjaframleiðslu. „Í máli þeirra
kom fram að óheftur innflutningur
á kjöti og eggjum muni hafa mikil
áhrif á afkomu greinanna þar sem
samkeppnisstaða þeirra versni til
muna. Formaður Félags eggjabænda
sagði á fundinum að ef ekkert verði
að gert muni eggjaframleiðsla að
mestu leggjast af í landinu. Formaður
kjúklingabænda benti einnig á að
tollur af ferskum kjúklingum er
lægri en á frystum og slíkt þar með
hvati til að flytja þá inn.“
Bannað að markaðssetja sýkt kjöt
Samkvæmt lögum má ekki gera
meiri eftirlitskröfur með innfluttu
kjöti en gert er við innlent kjöt.
Sindri segir að samkvæmt íslenskum
lögum megi ekki setja á markað
salmónellusmitað kjöt og að ef slíkt
smit komi upp hérlendis, til dæmis
í kjúklingaeldi, sé öllum fuglunum
fargað. Komi upp kamfýlóbakter-
sýking má heldur ekki setja kjötið
á markað nema það hafi verið
hitameðhöndlað eða fryst áður.
Sindri segir að samkvæmt
niðurstöðu EFTA-dómstólsins megi
flytja inn ógerilsneydda mjólk til
landsins en ekki markaðssetja
hana, alveg eins og ekki megi setja
ógerilsneydda innlenda mjólk á
markað.
„Ég tel því eðlilegt að spyrja hvort
hið sama gildi ekki um hrátt innflutt
kjöt komi í ljós að það sé smitað
af salmónellu eða kamfýlóbakter.
Eðlilegast væri þá að hráu
salmónellusmituðu kjöti yrði fargað
og beri kjötið í sér kamfýlóbakter
þyrfti að hitameðhöndla það eða
frysta áður en það er sett á markað
alveg eins og gert er með innlent
kjöt. Það hlýtur að gilda það sama
hvort sem er.“
Lítið um sýkingar hér á landi
Víða erlendis er litið svo á að
salmónella og kamfýlóbakter sé
landlæg og því lítið að gert og víða
er ekki skimað fyrir kamfýlóbakter-
sýkingum. Til samanburðar má geta
þess að tíðni kamfýlóbakter-tilfella
í eldi á Íslandi er undir 5% en hefur
mælst allt að 75% í verslunum
í Bretlandi. Hér á Íslandi fer slík
vara ekki í verslanir án frystingar
eða hitameðhöndlunar, eins og áður
segir.
Ráðherra verður að semja
upp á nýtt
„Pólitísk afstaða okkar hvað
varðar úrskurð EFTA-dómstólsins
er sú að viðskiptafrelsi virðist
yfirtrompa allt. Þættir eins og
lýðheilsa, matvælaöryggi og heilsa
búfjár virðist ekki skipta þar neinu
máli.
Dómurinn er í sjálfu sér
furðulegur vitandi það að fyrir
nokkrum árum komst upp
um að það var verið að selja
hrossakjöt sem nautakjöt innan
Evrópusambandsins og í vor
komst upp um að mikið af eggjum
í löndum Evrópusambandsins
innihéldu skordýraeitrið fipronil
sem er bannað að nota við
matvælaframleiðslu.
Ef niðurstaðan er sú að
samningarnir eru svona
lögfræðilega niðurnjörvaðir og
ferkantaðir þá er það mitt mat að
ráðherra landbúnaðarmála verði
einfaldlega að nesta sig vel og fara
til Brussel og semja upp á nýtt.
Ef ekki þá verðum við að skoða
með hvaða hætti við getum varið
lýð- og búfjárheilsu í landinu sem
best og taka upp öflugra eftirlit
með innflutningnum eftir því sem
við á og má.“
Enginn tryggingarsjóður vegna
búfjársjúkdóma
Að lokum bendir Sindri á
að í Evrópusambandinu sé
tryggingarsjóður sem bæti tjón
bænda af völdum búfjársjúkdóma
en slíkur sjóður er ekki til hér á
landi. „Það er því eitthvað sem
við verðum að hugsa til hér á
landi til að jafna samkeppnisstöðu
íslenskra bænda og kollega þeirra
í Evrópusambandinu.“ /VH
Innflutningur á eggjum:
Vals sem stíga
skal rólega
Formaður Félags eggjabænda
segir að frjáls innflutningur
á eggjum sé áhyggjuefni fyrir
eggjaframleiðendur og óvíst hvaða
áhrif hann muni hafa.
„Við erum ekki að gefast upp
og verðum bara að gera enn betur.
Næsta skref er að skipuleggja okkur
vel ef við ætlum að standa þetta af
okkur. Við erum alltaf að bæta það
sem við erum að gera og höfum verið
að breyta húsunum og bæta aðbúnað
fuglanna í samræmi við ýtrustu kröfur
um dýravelferð. Heilbrigði fuglanna
er gott og eggjaframleiðsla hér er
án allra lyfja eða aukaefna. Óheftur
innflutningurinn er því vals sem
þarf að stíga rólega þrátt fyrir að öll
landamæri séu að opnast þegar að
verslun og viðskiptum kemur.“ /VH
– Sjá bls. 2
Öflug markaðssetning undir
merkjum markaðsstofunnar
Icelandic lamb í árslok 2016 hefur
greinilega komið lambakjöti á
kortið hjá erlendum
ferðamönnum.
Í nýrri könnun,
sem Gallup gerði fyrir
Icelandic lamb, borða
um 52% þeirra erlendu ferðamanna
sem hingað koma íslenskt lambakjöt
á veitingastöðum. Eins hefur gengið
vonum framar að kynna merki
Icelandic lamb og 29% erlendra
ferðamanna þekkja merkið og hafa
af því jákvæða mynd. – Sjá bls. 2
Lambið er komið á
kort ferðamanna
Maturinn á ekki að kosta
hvítuna úr augunum eða
fyllingar úr tönnum
20–23
Nýjungar úr gærum
4024
Prjónastofan KIDKA
á Hvammstanga
á radarnum hjá
ferðamönnum