Bændablaðið - 14.12.2017, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
FÓLK&FYRIRTÆKI
Á Hvammstanga í Miðfirði er rekin
ullarvöruverksmiðjan KIDKA
ehf. Þar er prjóna- og saumastofa
ásamt ferðamannaverslun og
heildsölu.
KIDKA er afsprengi stærstu
saumastofu landsins sem rekin
var undir ýmsum nöfnum á
Hvammstanga í yfir 40 ár. KIDKA
er í eigu Irinu Kamp og Kristins
Karlssonar. Framleiðslan er nær
eingöngu úr íslenskri ull sem keypt
er af Ístex ehf. í Mosfellsbæ.
Irina segir að ferðamanna-
straumurinn til þeirra aukist ár frá
ári. Það hefur ekki síst vakið áhuga
ferðamanna að þar gefst fólki kostur
á að ganga um verksmiðjuna og sjá
fólk að störfum. Þannig kynnist fólk
því frá fyrstu hendi að um ósvikna
alíslenska prjónavöru er að ræða.
Prjónavélarnar eru þó þýskar að
uppruna. Nafn fyrirtækisins segir
Irina vera sprottið upp úr orðaleik
föður síns með nöfn þeirra Kristins.
Tíu manna vinnustaður
„Það eru í kringum tíu manns
að vinna hér núna.Við erum að
framleiða peysur og smávörur úr
íslenskri ull. Það er mjög vinsælt
hjá ferðamönnum að sjá að þetta er
raunverulega framleitt hér, en ekki í
Kína eða annars staðar,“ segir Irina.
„Þetta skiptir máli því það getur
verið mjög villandi fyrir kaupendur
sem vilja kaupa íslenskar vörur að
sjá kannski bara merkinguna Design
in Iceland, en ekkert um það hvar
varan er framleidd.
Þá þykir ferðamönnum líka
gaman að horfa hér út um gluggana,
en í sjónum á firðinum hér fyrir
framan má oft sjá hvali. Það þykir
þeim mjög merkilegt.“
Opið hús
Einn angi af þeirri viðleitni að kynna
almenningi vörur fyrirtækisins var
að í prjónastofunni var opið hús og
haldin kynning eða tískusýning 3.
desember síðastliðinn fyrir gesti og
heimafólk. Var viðburðurinn vel
sóttur og báru krakkarnir sem þar
sýndu sig mjög fagmannlega.
Starfsemin gengur vel
Irina segir sölu á þeirra vörum ganga
vel.
„Það hafa verið sveiflur í þessu,
en nú gengur vel og ullin er alltaf
vinsæl. Það var svolítið erfitt þegar
flísefnið kom, en nú vill fólk frekar
fá vörur úr náttúrulegum efnum. Við
erum að selja hér í versluninni hjá
okkur og í verslunum í Reykjavík,
á Akureyri og úti um allt land.
Sem stendur erum við eingöngu að
framleiða okkar vörulínu. Við höfum
framleitt fyrir Þýskalandsmarkað og
fyrir Rússland, en þar sem gengið er
nú óhagstætt þá höldum við okkur
bara við heimamarkað.“
„Svo er merkið okkar KIDKA
að verða nokkuð þekkt hjá
ferðamönnum. Þá erum við að búa
til netverslun á heimasíðu okkar svo
Íslendingar geti líka verslað þar.
Við leggjum því mikla áherslu á að
kynna starfsemina fyrir Íslendingum
og að þeir geti pantað okkar vörur
á netinu.“
Flíkurnar ýfðar með
spænskum könglum
Irina segir íslensku ullina sérstaka
um margt og t.d. sé hægt að ýfa hana
sem ekki er hægt með alla ull. Fer
ýfingin fram í sérstökum vélum
þar sem notaðir eru náttúrulegir
könglar frá Spáni sem þykja ekki
síðri til þessara verka en einhverjar
gaddaspólur úr stáli.
„Ég er frá Þýskalandi en hef búið
hér í 20 ár. Ég kom hingað og var að
temja hesta. Ég
var svo í hestamennsku í mörg ár og
þá m.a. að ferðast með túrista yfir
hálendið. Síðan hef ég verið hér og
á nú helminginn í þessu fyrirtæki.
Prjónaiðnaður á Hvammstanga
síðan 1972
Miklar sviptingar hafa verið í
prjónaiðnaðinum á Íslandi í
gegnum tíðina. Einna þekktastar
eru verksmiðjur Álafoss í
þáverandi Mosfellssveit og öflugar
verksmiðjur Sambandsins á
Akureyri. Prjónafyrirtæki hafa síðan
komið og farið og önnur stofnuð á
þeirra grunni. Segja má að KIDKA
sé byggð á slíkum grunni.
Prjónastofan Drífa hf. var
stofnuð á Hvammstanga árið 1972.
Undir síðustu aldamót var stofnað
sérstakt félag um framleiðsluna
undir nafninu Ísprjón ehf. Undir
nafninu Drífa ehf. varð þá sölu- og
markaðshluti fyrirtækisins.
Ísprjón/Drífa fluttu svo í nýtt
einnar hæðar rúmgott 1.000
fermetra stálgrindarhús árið
2000, en húsið, sem var í eigu
nokkurra heimamanna, var reist
árið 1999. Kristinn Karlsson var
þá framleiðslustjóri fyrirtækisins.
Hluti af tækjabúnaðinum kom frá
prjónastofunni Foldu á Akureyri.
Í kjölfar gjaldþrots þess fyrirtækis
1998 var prjónadeild fyrirtækisins
keypt til Hvammstanga. Vefstólar
Foldu voru hins vegar seldir með
vefdeild Foldu til Skagastrandar.
Við flutninginn í nýja húsið
í júlí árið 2000 flutti Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra
ræðu og sagði það merkilega
staðreynd að á Hvammstanga væri
ein fullkomnasta og trúlega stærsta
prjónastofa í ullariðnaði í Norður-
Evrópu. Þarna er nú aðsetur KIDKA
í dag.
Ísprjón/Drífa verður Freyjuprjón
og síðan KIDKA
Ísprjón/Drífa tók síðan breytingum.
Rússar komu inn sem eignaraðilar
ásamt BYKO og fékk fyrirtækið þá
nafnið Freyjuprjón sem um árabil
var ein af stærstu prjónastofum
landsins. Irina Kamp og Kristinn
Karlsson keyptu síðan Freyjuprjón
af BYKO og Rússum 2008. Fékk
fyrirtækið þá nafnið KIDKA.
Lesendur geta svo kynnt sér hvað
þar er á boðstólum á vefslóðinni
www.kidka.com
Kristinn Karlsson segir fyrirtækið vel búið tækjum.
Irina Kamp við saumavélina að setja saman prjónahúfu. Myndir / HKr.
Fjöldi gesta mætti til að fylgjast með tískusýningu á framleiðsluvörum KIDKA sem haldin var í framleiðslusal
fyrirtækisins þann 3. desember.
Verslun KIDKA er í einu horninu á rúmgóðu verksmiðjuhúsnæði fyrirtækisins á
Hvammstanga.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Prjónastofan KIDKA á Hvammstanga á radarnum hjá ferðamönnum:
Hægt að skoða flíkur í framleiðslu og hvali
sem busla í sjónum fyrir utan gluggann