Bændablaðið - 14.12.2017, Side 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Indriði Aðalsteinsson, bóndi á
Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp,
segir óvenju mikið um mýs á þessu
hausti og man vart eftir öðru eins.
„Maður áttaði sig á því upp úr 20.
september að það var ekkert venjuleg
músaógn sem að manni steðjaði.
Þetta er miklum mun meira en maður
á að venjast,“ sagði Indriði í samtali
við Bændablaðið í byrjun nóvember.
Nú mánuði síðar er staðan jafnvel enn
verri og ekkert lát á músafaraldrinum.
Langt umfram allt sem ég hef
nokkru sinni kynnst
„Það hefur verið mikill músagangur
á þessu hausti og auðvitað hefur gott
árferði hlaðið ansi vel undir þær. Það
var enginn vetur síðast og þegar svo
er fer þetta auðvitað að fjölga sér.“
Samkvæmt Vísindavefnum geta
mýs getið af sér margar kynslóðir á
einu sumri þegar vel árar. Er þar vísað
í rannsóknir sænska vistfræðingsins
Bengtson á lífi hagamúsa við ólíkar
aðstæður á ólíkum stöðum á Íslandi.
„Það virðist engin leið að taka
kúfinn af þessum músafaraldri. Það
koma bara nýjar og nýjar bylgjur
af músum í kjölfarið. Þetta er orðið
langt umfram allt sem ég hef nokkru
sinni kynnst og hef ég þó oft átt í
löngum og erfiðum músaslag hér á
Skjaldfönn,“ segir Indriði.
Gott afdrep fyrir mýs í
kjarrlendinu
„Maður hefur svo sem verið að kljást
við mýs vegna kringumstæðna hér
á svæðinu. Í hlíðunum hér er ígildi
þó nokkuð margra Teigsskóga sem
skapa skjól og fæðu fyrir mýsnar með
öllu sínu brumi, berjum og öðru sem
þar er að finna. Svo rennur á hér í
gegnum túnið, rétt við bæjargaflinn
og bakkarnir á henni eru hlaðnir af
fæðu eins og hvönn. Þar fellur til
gríðarlega mikið af hvannarfræjum
sem mýsnar tímgast á og nota sem
vetrarforða. Þær koma svo heim
að húsum þegar harðnar á dalnum
á haustin. Maður er því vanur frá
blautu barnsbeini að kljást við þennan
ófögnuð.“
Með öflugan kött og nýja
sjálfvirka vígvél
„Ég er með öflugan kött og það voru
kannski 6 til 14 mýs sem lágu eftir
hverja nóttu á hans vettvangi. Maður
hefur svo sjálfur gripið til varna,
bæði með eitri, fellum og svo nýjustu
vígvélinni.“
Stríðstólið sem Indriði nefnir er
byggt á gamalli músaveiðitækni og
hefur að hans sögn verið frá fornu
fari nefnt „Fjalaköttur“ sem veiðir
í sig sjálfur.
Einföld og ódýr
en afkastamikil gildra
„Ég hef verið að reyna nýja útgáfu
af þessu sem er 10 lítra fata sem
hálffyllt er af vatni. Það er þó
upplagt að vera með saltkjötssoð,
eða soð af sviðum eða hangikjöti
í fötunni sem dregur mýsnar að af
lyktinni. Síðan er klippt plastræma
úr langhlið á tveggja lítra gosflösku,
svona 20 sentímetrar að lengd og
4–5 á breidd. Hún er negld niður
í fjöl sem sett er upp á kantinn á
fötunni svo mýsnar geti gengið upp
eftir fjölinni. Maður setur smjörva
eða eitthvað sem ilmar vel yst á
endann á plastræmunni. Þegar þær
svo álpast út á hana gefur hún eftir
og mýsnar falla í soðið og drukkna.
Ég hef fengið mest 19 mýs á einni
nóttu í svona gildru.“
Mýsnar skila steinum í staðinn
fyrir eitrið
„Svo er maður með venjulegar
músafellur líka. Þegar maður sá í
hvað stefndi var ljóst að maður yrði
að verja heyrúllurnar fyrir ágangi
músa. Setti ég því eitur í eiturkassa
sem tæmdust eins og skot.
„Það merkilega er að í staðinn
fyrir eitrið sem mýsnar átu hafa
þær borið steina í kassann sem þær
virðast skila í staðinn fyrir það sem
þær átu. Þetta eru steinar sem flestir
eru á stærð við krækiber, en allt
upp í fingurbjargarstærð. Á þessu
háttalagi músanna kann ég enga
skýringu.
Ég spurði því meindýraeyðinn
minn, sem lærður er í þessum
fræðum, Konráð Magnússon, að
þessu. Hann rekur meindýraeftirlitið
Firringu ehf. í Reykjavík og hefur
verið hér með mér á vetrarveiðum
og legið hér á grenjum í yfir tvo
áratugi. Hann hafði heldur enga
skýringu á þessu.“
Skráð veiði 1.400 mýs
frá því í september
„Ég fór ekki að halda bókhald
yfir músaveiðina í haust fyrr en
fyrir þrem vikum. Fyrstu vikuna
var veiðin 240 mýs og 190 aðra
vikuna. Þá var hún 90 í síðustu
viku. Það sem ég hef skráð frá því
í haust er komið yfir 1.400 mýs. Þá
er ótalið það sem kötturinn hefur
étið og ekkert sést af og eins það
sem eiturkassarnir drepa, en af þeim
finnur maður lítið því þær ráfa í
burtu áður en þær drepast.“
Telur Indriði að með öllu, bæði
skráðri veiði og þeim músum sem
eitur, köttur og mýs hafa étið af
ættingjum sínum úr fellum, geti
þetta hæglega verið 1.500 til 1.600
mýs sem fargað hefur verið síðan í
september. Það er heima við hús og
við rúllustæðu á Skjaldfönn.
„Þetta er því hreint með
ólíkindum,“ segir Indriði.
Mýsnar éta fallna félaga úr
músafellum
„Það eru yfir 300 sem ég er búinn
að ná í fellur í reykkofa sem ég er
með. Þá eru mýs sem fara í fellurnar
líka étnar af öðrum músum. Þær
eru margar hverjar étnar upp til
agna. Ég var orðinn svo leiður á
að eiga við fellurnar að ég setti hér
fötu með sviðasoði í gærkvöldi [3.
desember] og í morgun tíndi ég
16 stykki upp úr fötunni. Þetta er
ekkert eðlilegt og virðist ekkert lát
á þessum faraldri.
Indriði segi mikla alvöru hér á
ferð. Sennilega átti sig ekki allir
á þeim skaða sem mýs geta valdið
ef þær naga sig í gegnum plast
á rúllum. Fyrir utan að heyið í
rúllunum skemmist þegar loft kemst
að því, þá getur skemmt hey líka
valdið banvænni eitrun hjá skepnum
sem það éta.
Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp, í harðri baráttu við óvenju mikinn músagang:
Hefur drepið vel á annað þúsund mýs
en samt sér ekki högg á vatni
– Segir þetta langt umfram allt sem hann hafi nokkru sinni kynnst og nauðsynlegt sé að verja kindurnar
Þjóðtrúin segir ýmislegt um mýs
þegar kemur að veðurspám.
Hagamýs hafa t.d. löngum verið
taldar afar veðurglöggar.
Sagt er að ef mýs grafi snemma
holur, dragi að sér mikinn
vetrarforða, eða leiti inn í hús og
bæi, bendi það til að veturinn verði
slæmur. Líka var talið að mýsnar
fyndu á sér úr hvaða átt myndi
helst blása um veturinn og sneru
holuopum sínum undan veðri.
Áður fyrr fylgdist almenningur
til sjávar og sveita mun betur með
öllum breytingum í náttúrunni
en þekkist í dag, enda átti fólk
líf sitt undir veðurfarinu. Sumt
flokkast þó undir hjátrú, en
samt telja margir að tengja megi
hegðun dýra við væntanlegar
breytingar á veðurfari og jafnvel
jarðskjálfta. Eru hross t.d. sögð
finna á sér ef jarðskjálfti er á
næsta leiti. Hafa menn reynt að
finna fyrir því vísindaleg rök,
eins og að hross skynji mögulega
betur en menn útstreymi
lofttegundarinnar radons sem
fylgt geti jarðskjálftum. Haraldur
Sigurðsson eldfjallafræðingur
nefnir t.d. í grein sem hann skrifaði
í ágúst 2016 að vaxandi útstreymi
á radoni geti verið vísbending um
stóra viðburði í jarðskorpunni.
„Hinn 6. apríl árið 2009 reið
stór jarðskjálfti, af stærðinni
6,3 yfir fornu borgina L’Aquila
á Ítalíu. Um 300 manns fórust.
Nokkrum mánuðum áður fór
að bera á tíðum smáskjálftum
undir borginni. Almenningur
varð órór, einkum eftir að amatör
skjálftafræðingur spáði því að stór
skjálfti væri yfirvofandi. Hans
spádómur var byggður á vaxandi
útstreymi af radon gasi úr jörðu, og
sennilega var það rétt hjá honum,“
segir Haraldur.
Hvort mýs búi yfir eiginleikum
til að skynja eitthvað í umhverfinu
sem geti varað þær við aðsteðjandi
vetrarhörkum á komandi
mánuðum, skal þó ekkert fullyrt
um hér.
H agamýs eru litlar (oftast um 9 cm að lengd án hala og 25–35 g að
þyngd), með kringlótt eyru og
langan hala. Þær eru mjög líkar
húsamúsum (Mus musculus) í
útliti nema hvað húsamúsin
er grárri, grábrún eða gulbrún
að ofan en ljósari á kviðnum,
og augun eru stærri. Á ýmsum
Evrópumálum, þ.á m. á latn-
esku, er þessi tegund kölluð
í raun betur í högum, görðum og
mólendi en í skógi.
Veðurglöggar hagamýs
Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp.
Stórvirkur músabani sem kostar lítið. Efnið er málningarfata úr plasti, strimill
einn nagli. Í fötuna er svo gott að setja kraftmikið soð af hangikjöti, saltkjöti
og veiðir í sig sjálfur.
H agamýs tímgast ört en það ræðst þó mjög af tíðarfari og aðstæðum.
Meðgöngutími þeirra er 25–26
dagar og meðalfjöldi músarunga
er um 5. Þeir fæðast hárlausir og
blindir en vaxa hratt; mýsnar
verða kynþroska um tveggja
mánaða gamlar og nokkrar kyn-
slóðir geta því fæðst á einu ári.
Þar sem hlýtt er í veðri og fæða
næg geta þær tímgast mestallt
árið en í kaldari löndum tímg-
ast þær aðeins á sumrin, jafnvel
aðeins í júní og júlí. Mýsnar lifa
sjaldan lengur en eitt ár.
Á Íslandi eru helstu óvinir
hagamúsarinnar refir, minkar,
ýmsir fuglar, svo sem uglur og
fálkar, og svo auðvitað kettir og
mannskepnan.