Bændablaðið - 14.12.2017, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
„Hver og ein húfa er með sínu
móti, þær eru ólíkar, í mismunandi
litum og með ólík mynstur til
marks um að við erum öll ólík,
hver og einn er einstakur,“ segir
Kristín Jóhannesdóttir, skólastjóri
í Oddeyrarskóla.
Í tilefni af alþjóðlegum
baráttudegi gegn einelti sem var í
nóvember tóku fjórir kennarar við
skólann sig til og prjónuðu húfu á
hvern og einn nemanda í fyrsta bekk.
Húfurnar eru með áletruninni Gegn
einelti. Þær hófu að skipuleggja
prjónaskapinn í liðnum mánuði,
brettu svo upp ermar og prjónuðu
í gríð og erg þar til allir nemendur
höfðu fengið húfu á sitt höfuð.
Þetta er annað árið í röð sem
fyrstubekkingar fá húfu að gjöf í
tilefni þessa dags. Kristín segir að
hugmyndin hafi verið fengin að láni
frá Grunnskólanum á Bolungarvík
sem einnig deildi uppskriftum að
húfum með kollegum sínum nyrðra.
Á öllum húfunum stendur: Gegn
einelti. /MÞÞ
Dugnaðarprjónakonur í Oddeyrarskóla:
Húfur gegn einelti á alla fyrstubekkinga
Dugnaðarkonur, þær Linda Óladóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Bára Árný Sigþórsdóttir og Hafdís Bjarnadóttir í Oddeyrarskóla og húfurnar góðu.
Fyrstubekkingar glaðir í bragði með húfurnar sínar.
Laugabúð 100 ára
Því var fagnað 4. desember sl.
að þá voru 100 ár liðin frá því að
Guðlaugur Pálsson kaupmaður
hóf verslunarrekstur á
Eyrarbakka. Hann rak verslun
sína í 76 ár, eða frá desember
1917 og fram í desember 1993,
þegar hann lést tæplega 98 ára
að aldri.
Fyrstu tvö árin var verslunin
staðsett í Kirkjuhúsi, en árið 1919
keypti Guðlaugur íbúðarhúsið
Sjónarhól og breytti því í verslun
og þar stóð hann síðan vaktina á
sama gólfinu til dauðadags, eða
í 74 ár.
„Verslunarrekstur Guðlaugs
var nær einstakur á landsvísu og
jafnvel þótt víðar væri leitað. Í
fyrsta lagi vegna þess hve langt
tímabil hann spannaði og í öðru
lagi vegna þess háa aldurs sem
Guðlaugur náði,“ segir Magnús
Karel Hannesson á Eyrarbakka
sem rekur nú verslunina
sem ferðamannaverslun
yfir sumartímann. Fyrsti
viðskiptavinur Guðlaugs 4.
desember 1917 var sr. Gísli
Skúlason á Stóra-Hrauni,
sóknarprestur Eyrbekkinga
og Stokkseyringa. Sr. Gísli
keypti eina litla vasabók á
22 aura. Heildarsalan þennan
fyrsta verslunardag Guðlaugs
Pálssonar var 28 kr. /MHH
Guðlaugur við verslun sína árið 1984, myndina tók Magnús Karel.
Guðlaugur var þjóðsagnapersóna Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir
heimsótti hann m.a. í opinberri heimsókn 1983.
Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit
fagnaði 90 ára afmæli sínu þann 1.
nóvember með hátíðlegri athöfn.
Frá árinu 1927 hefur verið rekin
heilsutengd starfsemi í Kristnesi.
Spítalinn hefur frá árinu 1993
verið hluti af Sjúkrahúsinu á
Akureyri, SAk. Spítalanum voru
færðar margar gjafir í tilefni dagsins.
Fjöldi gjafa barst á
afmælisdaginn
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á
Akureyri afhentu Kristnesspítala 6
milljónir króna að gjöf, sem verður
varið til kaupa á þjálfunarbúnaði í
sjúkraþjálfun og hægindastólum á
legudeildirnar. Oddfellowstúkurnar
á Akureyri færðu spítalanum 3
milljónir króna að gjöf og verða
þær notaðar til kaupa á tveimur
sérhönnuðum loftdýnum, tveimur
sjúkrarúmum sem þola þunga
einstaklinga, æfingastandbekk og
ferðasúrefnissíu. Þá verður hluta
fjármunanna varið til kaupa á
snjóblásara til að skjólstæðingar,
aðstandendur þeirra og starfsfólk
spítalans geti notið aukinnar
útivistar að vetri til. Fram kom
við afhendingu gjafanna að með
tilkomu snjóblásara rættist 90 ára
gamall draumur þeirra sem stóðu
að byggingu Kristneshælis.
Þrjú kvenfélög færðu spítalanum
peningagjafir; Kvenfélagið Iðunn
og Kvenfélagið Hjálpin, bæði í
Eyjafjarðarsveit, og Kvenfélag
Fnjóskdæla og verða fjármunirnir
notaðir til kaupa á útibekk
og ferðasúrefnissíu. Þá færði
Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis spítalanum Lazyboy-stól
að gjöf. Loks gaf Eyjafjarðarsveit
þrjá setbekki úr Lerki.
Bjarni Jónasson, forstjóri SAk,
sagði í ávarpi sínu að Kristnesspítali
hafi leikið lykilhlutverk í
heilbrigðisþjónustu allt frá því
hann tók til starfa og muni gera
áfram. „Þetta er þjónusta sem íbúar
á starfssvæði sjúkrahússins kunna
vel að meta svo sem sjá má af þeim
veglegu gjöfum sem spítalanum hafa
verið færðar nú og í gegnum tíðina,“
sagði Bjarni.
Margir hugsa hlýlega til okkar
Ingvar Þóroddsson, forstöðulæknir í
Kristnesi, sagði að þessar höfðinglegu
gjafir hjálpuðu mjög mikið til við að
endurnýja nauðsynlegan tækjakost
og búa enn betur að skjólstæðingum
sjúkrahússins. „Gjafirnar sýna að
mjög margir muna eftir Kristnesi og
hugsa hlýlega til okkar. Fyrir það er
ég afskaplega þakklátur.“
Ingvar sagði jafnframt að
meginmarkmiðin með starfseminni
í Kristnesi væru tvö; endurhæfa
fólk á hvaða aldri sem er til að það
geti verið sem lengst heima og á
vinnumarkaði og endurhæfa aldraða
með það að markmiði að þeir geti
dvalist sem lengst heima hjá sér.
/MÞÞ
Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit varð 90 ára í byrjun nóvember.
hluti af Sjúkrahúsinu á Akureyri. Meginmarkmið spítalans nú snúast um
Mynd / BB
Kristnesspítali 90 ára:
Hefur frá upphafi gegnt lykil-
hlutverki í heilbrigðisþjónustu