Bændablaðið - 14.12.2017, Side 42

Bændablaðið - 14.12.2017, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Lambadagatalið fyrir árið 2018 lítur nú dagsins ljós í fjórða sinn. Það prýðir að venju stórar og fallegar andlitsmyndir af nýlega fæddum lömbum í sínu náttúrulega umhverfi. Myndirnar fanga fegurð þeirra, persónuleika og þá einstöku dásemd sem fólgin er í nýju lífi. Dagatalið er í A4 stærð (hæð 297 mm og breidd 210 mm) þar sem hver mánuður er á einni blaðsíðu. Það er gormað með upphengju og því auðvelt að hengja það upp þar sem hentar. Á það eru merktir allir hefðbundnir helgi- og frídagar einnig eru merkingar fyrir; fánadaga, komu jólasveinanna, gömlu mánaðaheitin og ýmsa aðra daga er tengjast sögu lands og þjóðar. Dagatalið er því ekki eingöngu fallegt heldur inniheldur líka þjóðlegan fróðleik og er því tilvalið til gjafa og ekki hvað síst jólagjafa. Fallegar myndirnar og þjóðlegur fróðleikurinn veitir dagatalinu líftíma umfram það ár sem venjan er með dagatöl. Endurnærandi fyrir sál og líkama Ragnar Þorsteinsson, sauðfjárbóndi, ljósmyndari, ásamt ýmsu öðru tilfallandi, hefur veg og vanda af útgáfu lambadagatalsins, en flestar myndanna eru teknar á búi hans, Sýrnesi í Aðaldal í Suður- Þingeyjarsýslu. „Myndatakan er þó mjög skemmtileg og það er endurnærandi á sál og líkama að leggjast út á tún og taka myndir af lömbunum. Lömbin eru ýmist mynduð með mæðrum sínum eða ein og þá þarf að vera búið að vinna traust þeirra svo þau verði ekki skelkuð og hlaupi í burtu,“ segir hann. Lambadagatölin hafa hlotið góðar viðtökur, síðastliðin tvö ár hefur útgáfan verið fjármögnuð á Karolina Fund og tekist vel til, en fjármögnunin byggist á því að dagatölin eru keypt í forsölu þar. Ragnar segir megintilgang útgáfunnar fyrst og fremst vera að breiða út sem víðast fegurð og fjölbreytni íslensku sauðkindarinnar. /MÞÞ Lambadagatalið 2018 lítur dagsins ljós: Nýfædd lömb í náttúrulegu umhverfi Lambadagatalið fyrir árið 2018 lítur nú dagsins ljós í fjórða sinn. Nýja fjósið í Gunnbjarnarholti. Mynd / MHH Risafjós í byggingu í Gunnbjarnarholti Frá árinu 2012 til 2016 fjölgaði ávísuðum dagskömmtum sterkra verkjalyfja, ópíóíða, um 11% á Íslandi. Aukninguna má rekja til þess að hlutfallslega fleiri Íslendingar fá ávísað sterkum verkjalyfjum og margir fá stóra skammta. Samkvæmt því sem segir á heimasíðu landlæknis er þetta öfug þróun borið saman við það sem hefur átt sér stað í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en á síðustu árum hefur dregið úr ávísunum sterkra verkjalyfja þar. Vegna þessarar þróunar er notkunin orðin mest hér á landi. Ætlað til meðhöndlunar á bráðaverkjum Sterk verkjalyf, ópíóíðar, eru góð til að meðhöndla bráða verki í skamman tíma en sífellt fleiri rannsóknir sýna að vandi getur skapast við langvarandi notkun lyfjanna. Langtímanotkun sterkra verkjalyfja getur þannig skapað meiri vanda en henni er ætlað að leysa. Mun fleiri konur en karlar Árið 2016 voru rúmlega 36 þúsund konur og 27 þúsund karlar sem leystu út sterk verkjalyf, eða um 64 þúsund einstaklingar. Alls leystu 24,6% fullorðinna út sterk verkjalyf árið 2016, eða fjórðungur fullorðinna. Sama ár létust hér á landi 18 einstaklingar vegna ópíóíðaeitrunar, 15 karlar og 3 konur. Sérstaða Íslands meðal Norðurlandaþjóða liggur að mestu í ávísunum á Parkodin forte en í dagskömmtum talið er hlutfall kódeinlyfja í blöndum 62% af öllum sterkum verkjalyfjum. Fá önnur ávanabindandi lyf eru á markaði hér á landi sem sótt er eins mikið í. Margir einstaklingar eiga við fíknivanda að stríða vegna kódein-lyfja og reyna að fá lyfjunum ávísað frá mörgum læknum. Árið 2016 leystu 616 einstaklingar út slík lyf frá 7 eða fleiri læknum en þeir voru 554 árið 2015. Árið 2016 fengu 158 einstaklingar meira en tvöfaldan skammt af Parkodin forte hvern dag ársins en árið 2015 voru það 151 einstaklingur. Þetta jafngildir því að þessir einstaklingar taki meira en 6 töflur af Parkodin forte á dag alla daga ársins en það veldur þolmyndun og eykur líkur á frekari ávanabindingu. Flestir þeir einstaklingar sem fá ávísað frá mörgum læknum fá lyfin hjá læknum og tannlæknum sem nota ekki lyfjagagnagrunn landlæknis eða nota hann lítið. Ekki má aka undir áhrifum lyfjanna Parkodin forte er eins og mörg ávanabindandi lyf, ekki ætlað þeim sem eru að stjórna vélum eða ökutækjum. Í ljósi þess hversu margir fá ávísað sterkum verkjalyfjum og ýmsum öðrum lyfjum sem verka á miðtaugakerfið er rétt að benda á að þessir einstaklingar þurfa að gæta að því að aka ekki undir áhrifum lyfjanna. Áhrif lyfja eins og Parkodin forte geta varað í margar klukkustundir eftir að þau eru tekin inn. Lyfið inniheldur kódein en áhrif þess koma fram um 20 til 30 mínútum eftir inntöku, ná hámarki eftir um það bil tvær klukkustundir og vara 4 til 6 klukkustundir. Faraldur í Bandaríkjunum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði fyrir skömmu að ásókn í lyfseðilsskyld lyf væri faraldur í Bandaríkjunum og þjóðarskömm sem leiddi til síaukinnar fíknar í landinu. Bandaríkjamenn neyta meira af ópíóíðum og öðrum morfínskyldum lyfjum en nokkur önnur þjóð í heiminum. Tölur sýna að fleiri Bandaríkjamenn látast af völdum ofneyslu á eiturlyfjum á ári hverju en í bílslysum og eftir skotsár samanlagt. /VH Nú styttist óðum í að risafjós sem er verið að byggja á bænum Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi verði fokhelt. Það er Arnar Bjarni Eiríksson og fjölskylda hans sem byggja. Nýja fjósið verður um 4.200 fermetrar að stærð með pláss fyrir 240 kýr. Fjórir mjaltaþjónar verða í fjósinu. Á meðfylgjandi mynd má sjá grindina af nýja fjósinu en það verður byggt yfir núverandi fjós í Gunnbjarnarholti. /MHH Þjóðminjasafn Íslands: Þjóðháttasöfnun um héraðsskóla og aðra heimavistarskóla Þjóðminjasafn Íslands mun á næstunni senda út spurningaskrá um héraðsskóla og aðra heimavistarskóla til sveita á unglingastigi, en fyrirhugað er að safna upplýsingum um daglegt líf og athafnir í þessum skólum. Söfnunin byggist eingöngu á frásögnum fyrrverandi nemenda og er því fyrst og fremst verið að leita eftir minningum fólks. Spurningaskráin er hluti af þjóðháttasöfnun Þjóðminjasafns Íslands sem staðið hefur óslitið síðan 1960. Spurt er um hefðir, félagslíf, ýmisleg samskipti við aðra nemendur og starfsfólk skólans, kennslu, nám, frístundir, tengsl við fjölskyldu og heimili og fleiri. Þjóðminjasafnið leitar eftir heimildarmönnum sem vilja svara þessari spurningaskrá, bæði úr héraðsskólum og síðast en ekki síst úr öðrum heimavistarskólum. Þeir sem taka vilja þátt eru vinsamlegast beðnir um að senda netfang sitt á agust@thjodminjasafn. is. Farið verður með netföngin sem trúnaðarmál. Afrakstur söfnunarinnar verður gerður öllum aðgengilegur í menningarsögulega gagna- grunninum Sarpi eða sarpur.is. Héraðsskólar voru formlega stofnaðir 1929 en var seinna breytt í gagnfræðaskóla og störfuðu þeir áfram sem slíkir fram undir aldamótin 2000. Flestir aðrir sveitaskólar með heimavist tóku til starfa á síðari hluta 20. aldar. /VH Héraðsskólann á Laugarvatni milli 1920 og 1940. Mynd: Þjóðminjasafn Íslands. Vaxandi notkun sterkra verkjalyfja á Íslandi: 11% aukning í notkun ópíóíða – Mest sótt í Parkodin forte Árið 2016 létust hér á landi 18 einstaklingar vegna ópíóíðaeitrunar, 15 karlar og 3 konur.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.