Bændablaðið - 14.12.2017, Page 48

Bændablaðið - 14.12.2017, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Leggur og skel. Stökkbreyttar skjaldbökur. Dúkka með hrosshár. Heman. Bangsi að borða. Mjólkurbílar. Nintendo leikjatölva. Flugfreyjusett. Þetta eru leikföng frá liðnum tíma og þau er að finna á Leikfangasafninu sem rekið er í Friðbjarnarhúsi við Aðalstræti 46 á Akureyri. Húsið er í hópi elstu húsa á Akureyri, reist árið 1856, en safnið er hugarfóstur Guðbjargar Ringsted sem safnað hefur saman leikföngum sem framleidd voru frá árinu 1890 til 1990 og sýnir í þessu virðulega húsi. Í kvistherbergi á efri hæð þess var fyrsta góðtemplarastúka Íslands stofnuð snemma í janúar árið 1884. „Hugmyndin að þessu safni kviknaði í heimsókn til borgarinnar Borgå í Finnlandi á árinu 1992. Þar rakst ég inn á leikfangasafn í gömlu timburhúsi og heillaðist mjög. Þeirri flugu laust niður í höfuðið á mér að gaman væri að setja upp svipað safn hér heima. Ég viðraði þessa hugmynd við vinkonur mínar sem reyndust mjög jákvæðar og hvöttu mig eindregið til að láta verða af þessu,“ segir Guðbjörg. Hefðbundið stelpudót safnaðist vel í fyrstu Úr varð að hún fór í fyrstu yfir leikföng í sinni eigu, það sem enn var til og varðveitt hafði verið frá hennar æskuheimili, eins og hinn dýrmæti rauði Reykjalundardúkkuvagn. Vinkonurnar lögðu líka í púkkið, „þannig að fyrstu leikföngin sem mér áskotnuðust voru það sem kallast hefðbundið stelpudót, mikið af brúðum, dúkkuvögnum og þetta helsta sem stelpur á árum áður léku sér að,“ segir Guðbjörg. Hún hafði úr nægu að moða þegar að þessum hlutum kom og tók þátt í sýningu með Minjasafninu á Akureyri árið 2003, en yfirskrift hennar var Dansi, dansi dúkkan mín. Tindátar steyptir úr setjarastöfum Hún lét einnig verða af því að auglýsa í Morgunblaðinu eftir leikföngum um haustið 1992, en afraksturinn var ekki ýkja mikill. Þó spurðist út að Guðbjörg væri að safna gömlum leikföngum og smám saman bættist í safnið. Sjónvarpsmaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson lagði leið sína á safnið einhverju sinni og fjallaði um það í þætti á ÍNN. Í því samtali lét Guðbjörg það flakka að tilfinnanlega vantaði meira strákadót á safnið og var ekki að sökum að spyrja, viðbrögðin urðu góð. „Í kjölfarið fékk ég m.a. forláta tindáta sem þrír vinir í Reykjavík, 10 til 12 ára gamlir, gerðu á árunum 1930 til 1932. Þeir höfðu steypt tindátana út í móti sem faðir eins þeirra hafði keypt í útlöndum. Blýið fengu þeir úr setjarastöfum í Félagsprentsmiðjunni. Tindátarnir voru svo málaðir í fallegum litum en þeir sem mér bárust voru allir ómálaðir. Drengirnir saumuðu dátana á spjöld, komu nokkrum saman fyrir í kassa og hófu sölumennsku, m.a. voru þeir til sölu í Thorvaldsenbazar, en þeir urðu snemma snjallir sölumenn, þessir strákar.“ Leikfangasafnið í Friðbjarnarhúsi á Akureyri: Á Leikfangasafninu er að finna þó nokkuð af leikföngum sem smíðuð voru á leikfangaverkstæði sem stofnað var á Akureyri árið 1931, en það var frumkvöðullinn Skarphéðinn Ásgeirsson, síðar þekktur sem Skarphéðinn í Amaro, sem til þess stofnaði. Hann lauk sveinsprófi í trésmíði 25 ára gamall árið 1932 og hafði þá flust úr sveitinni í bæinn, af Svalbarðsströndinni til Akureyrar. Kreppan skall á, „og menn þökkuðu guði ef þeir fengu að vinna dagstund við uppskipun á sementi eða annað tilfallandi,“ segir Skarphéðinn í viðtali við Frjálsa verslun árið 1971. Þessi neyð knúði Skarphéðin til að reyna eitthvað nýtt og þannig atvikaðist að hann hóf að smíða leikföng úr tré. Flugvél og vörubíll voru á meðal fyrstu leikfanga hans. Leikföngin voru það ódýr að fólk sem þó hafði ekki mikið á milli handanna hafði ráð á að kaupa þau handa börnum sínum. Smíðin vatt upp á sig og leikföng Skarphéðins voru seld syðra, í Reykjavík og Hafnarfirði og voru að auki kynnt og seld um allt land. Efnivið til leikfangaframleiðslunnar fékk hann fyrstu árin frá Þýskalandi, aðallega tíst og bauldósir, sem notuð voru í dýrin, en þegar heimsstyrjöldin skall á var ómögulegt að nálgast efni og framleiðslan lagðist af. Með 4–5 menn í vinnu Verkstæði sitt rak Skarphéðinn á heimilum sínum, fyrst Oddagötu 7 og síðar Helgamagrastræti 2 sem hann byggði. Bæði fékk hann teikningar af leikföngum en hannaði einnig eigin leikföng. Þegar mest var umleikis í leikfangasmíðinni voru fjórir til fimm menn í vinnu hjá Skarphéðni. Yfir 60 mismunandi leikföng voru framleidd hjá Leikfangagerð Akureyrar. Þegar svo var komið að starfsemin hafði legið niðri í um eitt ár, 1942, tóku sig til tveir menn, Baldvin Leifur Ásgeirsson og Guðmundur Tryggvason, og stofnuðu nýja leikfangagerð undir heitinu Leifsleikföng, en hún var byggð á sama grunni og Leikfangagerð Akureyrar, Baldvin Leifur var bróðir Skarphéðins og hafði unnið hjá honum. Losað um innflutningshöft og plast ryður sér til rúms Guðmundur hætti hjá fyrirtækinu 1952, Baldvin hélt áfram en smíðaði ýmsa aðra hluti með auk leikfanganna. Þegar losnaði um innflutningshöft og leikföng voru í æ meira mæli flutt til landsins brast grundvöllur fyrir framleiðslu leikfanga innanlands. Í ofanálag var plast að ryðja sér til rúms sem efniviður í leikföng og framleiðsla leikfanga úr því efni hófst hjá Reykjalundi. Sögu þessarar leikfangagerðar á Akureyri lauk árið 1960. Þetta kemur fram í samantekt sem Guðbjörg Ringsted tók saman í tilefni af sérstakri sýningu á leikföngum frá Leikfangagerð Akureyrar og Leifsleikföngum í Friðbjarnarhúsi sumarið 2012. Öflug leikfangagerð á Akureyri 1931–1960 Lundby-hús er frá því um 1960, en framleiðsla þessara dúkkuhúsa hófst þó fyrr. Tindátar steyptir úr setjarablýi. Heimasaumuð dúkka með hrosshári, nær 100 ára gömul, en hún kom frá Eyrarbakka. Gamlar og góðar bækur er á Leikfangasafninu Guðbjörg Ringsted við Leikfangasafnið á Akureyri, en það er rekið í Friðbjarnarhúsi, einu af elstu húsum bæjarins, reist árið 1856. Myndir / MÞÞ MENNING&LISTIR Vagga úr basti, frá árunum um 1970. Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Það hefur um árabil þótt mikil gersemi að eiga eigið eldhús.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.