Bændablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Leggur og skel. Stökkbreyttar
skjaldbökur. Dúkka með
hrosshár. Heman. Bangsi að
borða. Mjólkurbílar. Nintendo
leikjatölva. Flugfreyjusett.
Þetta eru leikföng frá liðnum
tíma og þau er að finna á
Leikfangasafninu sem rekið er
í Friðbjarnarhúsi við Aðalstræti
46 á Akureyri.
Húsið er í hópi elstu húsa á
Akureyri, reist árið 1856, en safnið
er hugarfóstur Guðbjargar Ringsted
sem safnað hefur saman leikföngum
sem framleidd voru frá árinu 1890
til 1990 og sýnir í þessu virðulega
húsi. Í kvistherbergi á efri hæð þess
var fyrsta góðtemplarastúka Íslands
stofnuð snemma í janúar árið 1884.
„Hugmyndin að þessu safni
kviknaði í heimsókn til borgarinnar
Borgå í Finnlandi á árinu 1992. Þar
rakst ég inn á leikfangasafn í gömlu
timburhúsi og heillaðist mjög. Þeirri
flugu laust niður í höfuðið á mér
að gaman væri að setja upp svipað
safn hér heima. Ég viðraði þessa
hugmynd við vinkonur mínar sem
reyndust mjög jákvæðar og hvöttu
mig eindregið til að láta verða af
þessu,“ segir Guðbjörg.
Hefðbundið stelpudót safnaðist
vel í fyrstu
Úr varð að hún fór í fyrstu yfir
leikföng í sinni eigu, það sem enn var
til og varðveitt hafði verið frá hennar
æskuheimili, eins og hinn dýrmæti
rauði Reykjalundardúkkuvagn.
Vinkonurnar lögðu líka í púkkið,
„þannig að fyrstu leikföngin sem
mér áskotnuðust voru það sem
kallast hefðbundið stelpudót, mikið
af brúðum, dúkkuvögnum og þetta
helsta sem stelpur á árum áður léku
sér að,“ segir Guðbjörg. Hún hafði
úr nægu að moða þegar að þessum
hlutum kom og tók þátt í sýningu
með Minjasafninu á Akureyri árið
2003, en yfirskrift hennar var Dansi,
dansi dúkkan mín.
Tindátar steyptir úr setjarastöfum
Hún lét einnig verða af því að auglýsa
í Morgunblaðinu eftir leikföngum
um haustið 1992, en afraksturinn
var ekki ýkja mikill. Þó spurðist út
að Guðbjörg væri að safna gömlum
leikföngum og smám saman bættist
í safnið. Sjónvarpsmaðurinn Ingvi
Hrafn Jónsson lagði leið sína á
safnið einhverju sinni og fjallaði um
það í þætti á ÍNN. Í því samtali lét
Guðbjörg það flakka að tilfinnanlega
vantaði meira strákadót á safnið
og var ekki að sökum að spyrja,
viðbrögðin urðu góð. „Í kjölfarið fékk
ég m.a. forláta tindáta sem þrír vinir í
Reykjavík, 10 til 12 ára gamlir, gerðu
á árunum 1930 til 1932. Þeir höfðu
steypt tindátana út í móti sem faðir
eins þeirra hafði keypt í útlöndum.
Blýið fengu þeir úr setjarastöfum í
Félagsprentsmiðjunni. Tindátarnir
voru svo málaðir í fallegum litum
en þeir sem mér bárust voru allir
ómálaðir. Drengirnir saumuðu dátana
á spjöld, komu nokkrum saman fyrir
í kassa og hófu sölumennsku, m.a.
voru þeir til sölu í Thorvaldsenbazar,
en þeir urðu snemma snjallir
sölumenn, þessir strákar.“
Leikfangasafnið í Friðbjarnarhúsi á Akureyri:
Á Leikfangasafninu er
að finna þó nokkuð af
leikföngum sem smíðuð voru á
leikfangaverkstæði sem stofnað
var á Akureyri árið 1931,
en það var frumkvöðullinn
Skarphéðinn Ásgeirsson, síðar
þekktur sem Skarphéðinn í
Amaro, sem til þess stofnaði.
Hann lauk sveinsprófi í trésmíði
25 ára gamall árið 1932 og
hafði þá flust úr sveitinni í
bæinn, af Svalbarðsströndinni
til Akureyrar. Kreppan skall á,
„og menn þökkuðu guði ef þeir
fengu að vinna dagstund við
uppskipun á sementi eða annað
tilfallandi,“ segir Skarphéðinn í
viðtali við Frjálsa verslun árið
1971.
Þessi neyð knúði Skarphéðin til
að reyna eitthvað nýtt og þannig
atvikaðist að hann hóf að smíða
leikföng úr tré. Flugvél og vörubíll
voru á meðal fyrstu leikfanga hans.
Leikföngin voru það ódýr að fólk
sem þó hafði ekki mikið á milli
handanna hafði ráð á að kaupa þau
handa börnum sínum. Smíðin vatt
upp á sig og leikföng Skarphéðins
voru seld syðra, í Reykjavík og
Hafnarfirði og voru að auki kynnt
og seld um allt land. Efnivið til
leikfangaframleiðslunnar fékk
hann fyrstu árin frá Þýskalandi,
aðallega tíst og bauldósir, sem
notuð voru í dýrin, en þegar
heimsstyrjöldin skall á var
ómögulegt að nálgast efni og
framleiðslan lagðist af.
Með 4–5 menn í vinnu
Verkstæði sitt rak Skarphéðinn á
heimilum sínum, fyrst Oddagötu
7 og síðar Helgamagrastræti 2
sem hann byggði. Bæði fékk
hann teikningar af leikföngum
en hannaði einnig eigin leikföng.
Þegar mest var umleikis í
leikfangasmíðinni voru fjórir
til fimm menn í vinnu hjá
Skarphéðni. Yfir 60 mismunandi
leikföng voru framleidd hjá
Leikfangagerð Akureyrar.
Þegar svo var komið að
starfsemin hafði legið niðri í um
eitt ár, 1942, tóku sig til tveir
menn, Baldvin Leifur Ásgeirsson
og Guðmundur Tryggvason, og
stofnuðu nýja leikfangagerð
undir heitinu Leifsleikföng, en
hún var byggð á sama grunni og
Leikfangagerð Akureyrar, Baldvin
Leifur var bróðir Skarphéðins og
hafði unnið hjá honum.
Losað um innflutningshöft og
plast ryður sér til rúms
Guðmundur hætti hjá fyrirtækinu
1952, Baldvin hélt áfram en
smíðaði ýmsa aðra hluti með auk
leikfanganna. Þegar losnaði um
innflutningshöft og leikföng voru
í æ meira mæli flutt til landsins
brast grundvöllur fyrir framleiðslu
leikfanga innanlands. Í ofanálag
var plast að ryðja sér til rúms sem
efniviður í leikföng og framleiðsla
leikfanga úr því efni hófst hjá
Reykjalundi. Sögu þessarar
leikfangagerðar á Akureyri lauk
árið 1960.
Þetta kemur fram í samantekt
sem Guðbjörg Ringsted tók saman
í tilefni af sérstakri sýningu á
leikföngum frá Leikfangagerð
Akureyrar og Leifsleikföngum í
Friðbjarnarhúsi sumarið 2012.
Öflug leikfangagerð á Akureyri 1931–1960
Lundby-hús er frá því um 1960, en framleiðsla þessara dúkkuhúsa hófst
þó fyrr.
Tindátar steyptir úr setjarablýi.
Heimasaumuð dúkka með hrosshári,
nær 100 ára gömul, en hún kom frá
Eyrarbakka.
Gamlar og góðar bækur er á
Leikfangasafninu
Guðbjörg Ringsted við Leikfangasafnið á Akureyri, en það er rekið í Friðbjarnarhúsi, einu af elstu húsum bæjarins,
reist árið 1856. Myndir / MÞÞ
MENNING&LISTIR
Vagga úr basti, frá árunum um 1970.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Það hefur um árabil þótt mikil gersemi að eiga eigið eldhús.