Bændablaðið - 14.12.2017, Side 62

Bændablaðið - 14.12.2017, Side 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Mandarínur um jólin og annað súrt Neysla á mandarínum og mandarínublendingum er mest í kringum jólahátíðina hér á landi og ófá börn sem fá mandarínu í skóinn frá jólasveininum. Mandarínur tilheyra ættkvíslinni Citrus sem inniheldur alls kyns yrki og afbrigði sítrusávaxta sem reyndar eru ber ef rétt skal vera rétt. Áætluð heimsframleiðsla á mandarínum, klementínum, tangerínum, satsúmas og öðrum mandarínublendingum er um 29 milljón tonn, sem er rúmlega 200 þúsund tonnum meira en árið 2015. Kína ber höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir þegar kemur að framleiðslu á mandarínum og mandarínublendingum og er áætlað að framleiðslan þar árið 2016 hafi verið um 20 milljón tonn. Spánn er í öðru sæti yfir stærstu framleiðendur í heiminum en einungis smá- framleiðandi samanborið við Kína þar sem heildarframleiðslan á Spáni var rétt tæp 2,2 milljón tonn. Tyrkland er í þriðja sæti með 942 þúsund tonn. Þar á eftir koma Brasilía, Egyptaland, Japan, Íran, Suður-Kórea, Marokkó og Ítalía með framleiðslu frá rúmum 942 þúsund tonnum niður í 650 þúsund tonn á ári. Neysla á mandarínum, mandarínu blendingum og öðrum sítrusávöxtum hefur verið að aukast undanfarna áratugi og gera spár ráð fyrir að hún muni halda áfram að aukast, ekki síst í safaformi. Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands var innflutningur á mandarínum, klementínum og öðru svipuðu til Íslands árið 2016 tæp 1200 tonn. Langmest var flutt inn frá Spáni eða rúm 1000 tonn, næstmest var flutt inn frá Perú, rúm 5,5 tonn, því næst koma Bandaríkin, 3,1 tonn, Suður-Afríka, rúm 2,4 tonn, Marokkó, tæp 1,9 tonn, Fílabeinströndin, rúm 12,5 tonn og Úrúgvæ, rétt rúm 11 tonn. Sama ár fluttu Íslendingar út 437 kíló af slíkum mandarínum til Grænlands. Ættkvíslin Citrus Fjöldi ólíkra tegunda af ættkvíslinni Citrus er óþekktur en talað er um fjóra megintegundir sem til hafa orðið í náttúrunni, pomeló, C. maxima, sítrónur, C. medica, papeda, C. micrantha, og mandarínur, C. reticulata. Af þessum megintegundum er svo til nánast ótölulegur fjöldi manngerðra yrkja, afbrigða, blendinga og staðbrigða. Genamengi ætt- kvíslarinnar er stórt og nánast allar tegundir, afbrigði og yrki geta frjóvgast sín á milli og gefið af sér frjóa blendinga. Dæmi um algenga ávexti sem tilheyra ættkvíslinni er appelsínur, C x sineensis, sem eru blendingur pomeó og mandarínu og greipaldins, C x paradisi, sem er blendingur appelsínu og líklega pomeló og ugli eða ljóta sem er blendingur greipaldins eða pomeló og appelsínu og tandaríu, C. tangerina, sem er staðbrigði mandarína. Öll þessi fjölbreytni var til vegna 15 milljón ára sameiginlegs forföður í litlu beri annaðhvort í Suðaustur-Asíu eða Ástralíu. Talið er að tegundin hafi farið að þróast í ýmsar áttir fyrir um það bil sjö milljón árum og með tímanum í náttúrunni og löngu síðar með hjálp manna hefur orðið til mikill fjöldi ólíkra sítrusávaxta. Sítrusar eru stórir runnar eða lítil tré sem eru á bilinu 5 til 15 metrar að hæð og með trefjarót. Greinarnar eru stundum þyrnóttar og bera stakstæð og sígræn blöð sem eru smátennt eða heilrennd, egglaga, ílöng og eilítið bylgjótt. Í blöðunum eru olíur sem gefa af sér sterka lykt séu blöðin nudduð. Blómin stakstæð eða nokkur saman í hnapp, yfirleitt hvít með fimm tveggja til fjögurra sentímetra löngum en grönnum krónublöðum sem eru ilmsterk. Fjöldi fræva og fræfla eru í hverju blómi og sjá Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.