Bændablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
LESENDABÁS
Sókn um Suðurland:
Gamlar sögur
„Dauður minkur er dauður
minkur og annað skiptir ekki
máli.“ Þessa setningu sagði
vanur minkaveiðimaður við mig
einhverju sinni þegar ég nefndi
hve mikilvægt væri að kyngreina
og skrá alla veidda minka, einnig
tíma og veiðistað. Þetta yrði að
gera þó hræin væru orðin léleg.
Það hefur verið veitt í
minkasíur alllengi, meðal annars
á Suðurlandi og komin 12 ár og
3.154 minkar. Þegar litið er til baka
rifjast ýmislegt upp.
Eitt sinn var manni boðið með
er ég fór til að hreinsa minkasíur
við Þingvallavatn, teknir voru
12 minkar þann dag. Ég hafði
ágætan fylgdarmann, starfsmann
Umhverfisstofnunar, hann fylgdi
mér við hreinsun minkasíanna og
á heimleiðinni segir hann: „Fer
þetta ekki bráðum að verða gott?“ -
Það var um tíma einhver núningur
gagnvart veiðum í minkasíur af
hálfu manna sem héldu því fram
að það væri vont fyrir minka að
drukkna.
Önnur mynd kemur í hugann.
Við mæltum okkur mót, Jakub
Ckopuroski frá Póllandi,
Rannveig Magnúsdóttir túlkur og
ég (RB). Við hófum ferðina við
Þrastalund og við vitjuðum um
nokkrar minkasíur á svæðinu frá
Þrastalundi upp að Þingvallavatni
og vorum um hádegi búin að finna
17 minka. Því miður er varla unnt
að nota minkasíur nema á Íslandi
vegna annarra vatnadýra.
Þrátt fyrir það held ég að Jakub
hafi fundist aðferðin og afköst all
sérstök.
Rannsóknir
Rannsóknarverkefnið Ölfus-
Öxará-Grímsnes var unnið á
svæði Ölfuss, Þingvallavatns
og Grímsness.og Grafnings.
VSÓRÁÐGJÖF vann skýrslu
um fyrstu 4 árin, þar kom vel
fram að vetraraflinn var 44%
af ársaflanum. Þannig er fram
komið að miklu máli skiptir um
staðarval og aðstæður þegar valinn
er veiðistaður. Verkefninu Ö-Ö-G
lauk árið 2012.
Skráning aflans og gagnavinnsla
grundvallast frá upphafi við
tiltekinn veiðistað á tilteknum
tíma.
Uppgjör er unnið fyrir hvert
sveitarfélag sem eru nú og hafa
lengi verið 6, þau síðan dregin
saman í uppgjör sem kallast á
pappírunum Sókn um Suðurland.
Rannsóknir er lúta að árangri
og afköstum minkasía miðast við
minkaár sem er talið júlí-júlí.
Nú að nýloknu uppgjöri
minkaársins 2016 fyrir Suðurland,
það er að segja fyrir 6 sveitarfélög
á Suðurlandi, þá er litið til baka
yfir12 ára aðgerðir og 3154
minka. Það má læra mikið um
minkastofninn á Íslandi með
samfelldri vinnslu og skráningu
í mörg ár. Minkasíur eru yfirleitt
alltaf á sama stað og halda því
föstu og óbreyttu veiðiálagi á
hverjum stað í mörg ár. Skráningin
snýst ekki eingöngu um skýrslu
til sveitarfélags, heldur hitt að
árangur veiðanna, ástand stofnsins
og margt er gerist á vettvangi
tegundarinnar má lesa úr skráningu
5000–6000 einstaklinga á mörgum
mismunandi svæðum í 13 ár.
Súlurit: Veitt í minkasíur á
Suðurlandi
Myndin sýnir minkaveiðar Vasks á
bakka og Reynis Bergsveinssonar,
6 hreppar á Suðurlandi.
Súluritið sem kalla má Sókn um
Suðurland segir nokkra sögu. Öll
árin er steggjaveiðin miklu meiri
en læðuveiðin. Það er nærtækast
að túlka á þann hátt að á vettvangi
veiðanna hafi hlutfall lifandi dýra
verið þetta. Það myndi, ef rétt
væri, tákna að læðurnar lifðu
við mun lakari kjör en steggirnir.
Stærðarmunur er mikill milli
kynjanna og ef til vill skiptir hann
máli.
Árið 2013 fellur læðuveiðin
snöggt um 40%, það skeði ótvírætt
vegna veðurfars á Suðurlandi.
Um veturinn gerði snöggt
stórflóð og sumarið varð mjög
kalt og blautt. Það versta um
áratugaskeið. Minkasteggirnir
standast veðurfarið, þeim fækkar
lítið það ár. Minkaárið 2016 og
oftar er hlutfall steggjanna nærri
helmingi hærra en læðanna. Þá
fer að vakna sú spurning hvort
þeir eigi jafnvel hlut að máli með
vanhöld kvenkynsins.
Minkalæðurnar bera náttúrlega
uppi stofninn og grunnregla er að
hann þrefaldist árlega við got.
Gotstað velja læðurnar yfirleitt
þar sem gott er til fanga og
yfirleitt ár eftir ár á sama stað.
Takist minkaveiðin svo vel að á
nærliggjandi svæðum sé fallandi
stofn, þá eyðist ættin og aðrir koma
ekki í óðalið.
Algengt er að meirihluti
fjölskyldu komi saman í eina
minkasíu í nánd við gotstað. Þá
annaðhvort hættir að veiðast eða
að dóttir frá fyrri árum tekur við
óðalinu. Ef enn veiðist fjölskylda
á 3.–4. ári þarf að auka veiðiálagið
í grennd með fleiri minkasíum eða
á annan hátt ef hentugra reynist.
Veiðist hins vegar bara steggir
þá hefur ættin verið upprætt en
veiðistaðurinn að sjálfsögðu látinn
haldast.
Skáldlegt má það kallast. „Sókn
um Suðurland.“ Tæknilega séð og
talað þá er augljóst að unnt er að
draga verulega úr áframhaldandi
tjóni af völdum minka. Þjóðin hefur
vanrækt skyldu sína þar að lútandi.
Núverandi stjórnsýslufyrirkomulag
er ónothæft. Nýjustu fréttir af
vettvanginum Sókn um Suðurland
er að Sveitarfélagið Rangárþing
ytra hafi kvótasett minkaveiðina.
Borgarbyggð og Skagafjörður
höfðu fyrr tekið upp sína eigin
verndarstefnu. Gott hjá ykkur, eða
er það ekki? Jú, jú, alveg prýðilegt,
segir ekki Umhverfisstofnun
„Húrra?“ Við Umhverfisstofnun
vil ég segja þetta: „Fer þetta ekki
bráðum að verða gott hjá ykkur?“
Reynir Bergsveinsson
Við Steingrímsstöð 26. september 2010. Jakub Ckopuroski var eins konar veiðistjóri í baltneska beltinu, eyjum og
Sókn gegn sunnlenskum minkum. Hreinsun með minkasíum
Gagnavinnsla nóvember 2017 Reynir Bergsveinsson.
Minkárgang Steggir Læður Minkasíur Heildarveiði Veiðni
2004 29 27 18 56
2005 93 54 52 147
2006 92 68 65 160
2007 114 84 82 198
2008 164 92 108 256
2009 196 105 135 301
2010 189 108 153 297
2011 179 111 167 290
2012 159 126 192 285
2013 153 77 189 230
2014 193 112 190 305
2015 186 127 197 313
2016 213 103 206 316
2017 var
2018 100 50
2019
2020 100 50 250 markmið
Samtals 2.060 1.244
Markmið sett 2015
2017 varð að hopa
Maríus Jónasson fylgdist með veiðum í fjögur ár.
Reynir Bergsveinsson við gamla Fordinn á Kambabrún. Þessi bíll fór margar
ferðir á Suðurlandið.
Myndin sýnir minkaveiðar Vasks á
bakka og Reynis Bergsveinssonar,
6 hreppar á Suðurlandi.