Bændablaðið - 14.12.2017, Page 74
74 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Á FAGLEGUM NÓTUM
Vaxtarlag sauðfjár og burðarerfiðleikar
– Hugleiðingar eftir ferð á sauðfjárræktarráðstefnu í Lettlandi
Í byrjun ágúst 2016 var höfundi
boðið að flytja erindi um íslenska
sauðfjárrækt á ráðstefnu
sem Sauðfjárræktarsamband
Lettlands (LAAA) efndi til
í Rujiene, 160 km norður af
höfuðborginni Riga, skammt
frá landamærunum að Eistlandi.
Í Lettlandi, líkt og í hinum
Eystrasaltsríkjunum, eru
mörg sauðfjárbúin komin með
lífræna vottun. Erlendu gestirnir
auk mín voru frá Færeyjum,
Danmörku, Noregi, Finnlandi,
Þýskalandi og Bretlandi.
Ráðstefnan var vel skipulögð og
ánægjuleg en þar var m.a. fjallað
um kosti og galla hinna ýmsu
fjárkynja í norðanverðri Evrópu.
Burðarerfiðleikar
Á meðal umræðuefnanna voru
burðarerfiðleikar (dystocia)
sem geta m.a. tengst notkun
þaulræktaðra holdahrúta en víða
er nú lögð áhersla á að gera
sauðburð auðveldari og draga úr
fyrirhöfn og kostnaði. Var einkum
vikið að þrem þáttum sem geta
skipt miklu máli þegar leitast er
við að halda burðarerfiðleikum
í lágmarki, þ.e.a.s. bætt velferð
ánna, minni vinna og streyta
fjárhirðis á sauðburði og minni
dýralækniskostnaðar sem tengist
burðarhjálp, lyfjanotkun og
keisaraskurði.
Burðarerfiðleikar eru greinilega
mismiklir eftir sauðfjárkynjum
en auk erfðaþáttarins þarf að taka
tillit til umhverfistengdra þátta
svo sem fóðrunar, heilsufars,
útivistar og innistöðu, einkum á
seinni hluta meðgöngutíma. Þá
getur frjósemi haft veruleg áhrif
því að oft eru erfiðir burðir tengdir
einlembingsfæðingum. Einnig má
nefna aldur áa þar sem gemlingar
og ær sem eru að bera í fyrsta skipti
lenda frekar í burðarnauð en eldri
ær.
Víða erlendis, þar sem
blendingsrækt með ólík fjárkyn
er stunduð við framleiðslu
sláturlamba, geta komið fram
burðarerfiðleikar, sérstaklega
þegar notaðir eru hrútar af
stórvaxnari holdakynjum á ær af
smávaxnari kynjum. Best er þó að
alhæfa ekki um þessi efni. Oft er
reynsla hvers bónda notadrýgst og
gefur ganglegar vísbendingar um
hvernig best er að draga úr tíðni
erfiðra fæðinga og burðarhjálpar
á vorin.
Charollais-kynið –
auðveldari burður
Kynning þeirra Jonathan and
Carrol Barber frá Bretlandi á
Charollais fjárkyninu vakti mikla
athygli á ráðstefnunni í Rujiene.
Upprunalega er um franskt kyn að
ræða frá Saone et Loire svæðinu,
því sama og þekkt er fyrir ræktun
Charolais holdanautgripa. Þetta
fé var fyrst flutt til Bretlandseyja
fyrir 40 árum og eru hrútar af því
nú mikið notaðir við framleiðslu
blendingslamba til slátrunar með
sama hætti og t.d. breska kynið
Suffolk og hollenska kynið Texel.
Líkt og þau kyn er Charollais
þaulræktað holdakyn en við mótun
þess á 19. öld komu við sögu bæði
frönsk og bresk fjárkyn. Hrútarnir
gefa væn, þéttvaxin og vöðvamikil
föll , án þess að vera of feit.
Það sem hefur aukið vinsældir
kynsins samanborið við önnur slík
er þó sá eiginleiki að ær sem fá við
Charollais hrútum eiga auðveldara
með burð og mun minna er um
burðarerfiðleika en t.d. þegar hinir
holdmiklu Texel hrútar koma við
sögu. Rétt er að geta þess að bæði
kynin eru ágætlega frjósöm og allt
er kollótt.
Kynbótasjónarmið
En hugum nánar að vaxtarlaginu
sem þau Jonathan og Carrol
töldu mikilvægt þegar kemur að
erfiðleikum við burð.
Dálítið má glöggva sig á
meðfylgjandi myndum hve
vaxtarlagið á Charollais og
Texel er frábrugðið, einkum
frambyggingin. Texel er kubbslegt
og kassalaga fé með miklar útlögur
en Charollais féð hefur ekki eins
breiðar herðar og framparturinn er
sívalari. Með því að leggja mikla
áherslu á fleygmyndaðar herðar
til að draga úr burðarerfiðleikum
segjast ræktendur Charollais fjár
hafa mótað nokkra sérstöðu í
samanburði við önnur þaulræktuð
holdakyn.
Þannig er ljóst að vaxtarlag
er erfðaeiginleiki sem getur
skipt máli þegar leitast er við
að draga úr burðarerfiðleikum
áa. Dæmi um slíkt eru
rannsóknaniðurstöður sem dr.
Cathy M. Dwyer og samstarfsfólks
í Landbúnaðarháskólanum í
Edinborg kynntu 2012.
Þær sýndu að í skoskum
fjárhjörðum megi ná töluverðum
árangri með markvissri
skráningu burðarhjálpar og
úrvali þar sem arfgengið 0.26
hafi mældist fyrir 11.000 lamba
gagnasafn. Í sauðfjárrækt víða
um lönd er vaxandi áhersla
lögð á að ær beri sem mest án
hjálpar (easy-care), bæði vegna
hagkvæmnissjónarmiða og krafna
um bætta velferð fjárins, eins og
áður var vikið að.
Hugleiðingar um íslenska féð
Miðað við önnur fjárkyn hefur
íslenska féð verið þekkt fyrir
lága tíðni burðarerfiðleika þar sem
slíkur samanburður er þekktur,
einkum í Norður-Ameríku og
á Bretlandseyjum, aðallega
eftir 1990. Þarna liggja þó ekki
neinar samanburðarrannsóknir
að baki, eingöngu reynsla og álit
fjárbænda.
Líkt og erlendis er þessi
eiginleiki vel metinn hér á landi
og nú á dögum þegar fjárbændur
og búvísindamenn beggja vegna
Atlantshafs sýna útflutningi
íslensk fjár vaxandi áhuga af
ýmsum ástæðum er vert að hafa
þetta í huga. Þeir eru ekki aðeins
að leita eftir harðgeru og frjósömu
fé með mikla litafjölbreytni heldur
einnig holdafé með það í huga
að nota þaulræktaða íslenska
hrúta við blendingsrækt líkt og
Charollais og Texel.
Þetta endurspeglar þær
miklu breytingar á vaxtarlagi
o.fl. eiginleikum sem tengjast
vöðvamiklum og fitusnauðum
skrokkum, einkum eftir að
ómsjármælingar hófust hér á landi
fyrir nær 30 árum.
Vaxtarlag íslenskra úrvalshrúta
Af lýsingum á úrvalshrútum í hinum
víðlesnu og vinsælu hrútaskrám
sauðfjársæðingastöðvanna má
m.a. sjá að margir þeirra hrúta
hafa mikla frambyggingu.
Lýsingar á borð við; „háls
sver og herðar breiðar og vel
holdfylltar“, – „háls stuttur og
vel tengdur við mjög holdmiklar
herðar“, – „breiðar og miklar
herðar, breiða bringu og miklar
útlögur“, – „mikil vídd og góð
lögun er í framparti“, – „mjög
breiðvaxinn og bolvíður hrútur“,
gefa þetta vel til kynna.
Þá hlýtur að vakna sú hugleiðing
hvort eða hvernig þetta vaxtarlag
frambyggingarinnar sé farið að
leiða til aukinnar tíðni erfiðra
burða og burðarhjálpar. Einnig er
spurningin hvort hugsanlega komi
fram breytingar á mjaðmargrind
áa við ræktun mjög þéttvaxins
holdafjár. Aftur er mér hugsað til
Texel og alþekktrar burðarnauðar í
því kyni. Þar er vel þekkt kryppa á
baki vegna mikillar vöðvasöfnunar
en slíkt var þekkt í Stramma
83-833 og afkvæmum hans og í
Hrútaskrá 2017-2018 kemur fram
á bls. 36 að sæðingahrútur honum
óskyldur, Magni 13-944, sé með
vott af kryppu.
Sú spurning hlýtur þá einnig
að vakna hvort eða hvernig
þessi bakholdaeiginleiki tengist
bæði beina- og vöðvabyggingu
í afturhluta ánna og þar með
eiginleikum þeirra til að bera
með náttúrulegum hætti, án
hjálpar. Hvort er holdaféð okkar
að líkjast Texel eða Charollais
hvað vaxtarlag varðar ?
Skráning burðarhjálpar í
skýrsluhaldinu
Út frá framangreindum
hugleiðingum er við hæfi
að bera lof á þá nýbreytni í
sauðfjárskýrsluhaldinu að
gefa kost á skráningu vegna
burðarhjálpar, allt frá smávægilegri
eða lítilli hjálp til erfiðra fæðinga
og keisaraskurða. Þar með er unnt
að skrá ástæður burðarhjálpar, svo
sem hvort ærin sé þröng.
Eins og áður var vikið að, út
frá umræðum á ráðstefnunni
í Rujiene og rannsóknum í
Skotlandi, ættu að safnast mjög
gagnlegar upplýsingar frá fjölda
íslenskra fjárbúa á næstu árum
sem skapa grundvöll til rannsókna
á umfangi burðarhjálpar og þar
með hugsanlegra tengsla þess
vandamáls við ákveðna hrúta.
Þá má reikna með að aukin
holdanautarækt kalli á nánari
skoðun á burðarerfiðleikum í kúm.
Vegna þess hve ég tel skráningu
burðarhjálpar áa í skýrsluhaldinu
mikilvæga legg ég til að hún verði
ekki lengur valfrjáls heldur skylda.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
Höfundurinn er áhugamaður
um náttúrulegan burð, án
hjálpar. Hann er fulltrúi
Dýraverndarsambands
Íslands í Fagráði um velferð
dýra.
Texel-holdakynið er m.a þekkt fyrir mikla burðarhjálp. Charollais-holdakynið er m.a. þekkt fyrir auðveldan burð.
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
Weidemann smávélar og skotbómur til
afgreiðslu með stuttum fyrirvara
Weidemann er þýskur framleiðandi og er einn
af frumkvöðlum í smíði smærri og meðalstórra
mokstursvéla, fyrirtækið var stofnað árið 1960.
Weidemann hefur fyrir löngu sannað gæði sín
hér á landi og hefur alla tíð verið meðal mest
seldu smávéla hér á landi.
Kynntu þér vöruúrval Weidemann smávéla
með nýju íslensku myndbandi á slóðinni
www.kraftvelar.is/weidemann