Bændablaðið - 14.12.2017, Síða 74

Bændablaðið - 14.12.2017, Síða 74
74 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Á FAGLEGUM NÓTUM Vaxtarlag sauðfjár og burðarerfiðleikar – Hugleiðingar eftir ferð á sauðfjárræktarráðstefnu í Lettlandi Í byrjun ágúst 2016 var höfundi boðið að flytja erindi um íslenska sauðfjárrækt á ráðstefnu sem Sauðfjárræktarsamband Lettlands (LAAA) efndi til í Rujiene, 160 km norður af höfuðborginni Riga, skammt frá landamærunum að Eistlandi. Í Lettlandi, líkt og í hinum Eystrasaltsríkjunum, eru mörg sauðfjárbúin komin með lífræna vottun. Erlendu gestirnir auk mín voru frá Færeyjum, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Þýskalandi og Bretlandi. Ráðstefnan var vel skipulögð og ánægjuleg en þar var m.a. fjallað um kosti og galla hinna ýmsu fjárkynja í norðanverðri Evrópu. Burðarerfiðleikar Á meðal umræðuefnanna voru burðarerfiðleikar (dystocia) sem geta m.a. tengst notkun þaulræktaðra holdahrúta en víða er nú lögð áhersla á að gera sauðburð auðveldari og draga úr fyrirhöfn og kostnaði. Var einkum vikið að þrem þáttum sem geta skipt miklu máli þegar leitast er við að halda burðarerfiðleikum í lágmarki, þ.e.a.s. bætt velferð ánna, minni vinna og streyta fjárhirðis á sauðburði og minni dýralækniskostnaðar sem tengist burðarhjálp, lyfjanotkun og keisaraskurði. Burðarerfiðleikar eru greinilega mismiklir eftir sauðfjárkynjum en auk erfðaþáttarins þarf að taka tillit til umhverfistengdra þátta svo sem fóðrunar, heilsufars, útivistar og innistöðu, einkum á seinni hluta meðgöngutíma. Þá getur frjósemi haft veruleg áhrif því að oft eru erfiðir burðir tengdir einlembingsfæðingum. Einnig má nefna aldur áa þar sem gemlingar og ær sem eru að bera í fyrsta skipti lenda frekar í burðarnauð en eldri ær. Víða erlendis, þar sem blendingsrækt með ólík fjárkyn er stunduð við framleiðslu sláturlamba, geta komið fram burðarerfiðleikar, sérstaklega þegar notaðir eru hrútar af stórvaxnari holdakynjum á ær af smávaxnari kynjum. Best er þó að alhæfa ekki um þessi efni. Oft er reynsla hvers bónda notadrýgst og gefur ganglegar vísbendingar um hvernig best er að draga úr tíðni erfiðra fæðinga og burðarhjálpar á vorin. Charollais-kynið – auðveldari burður Kynning þeirra Jonathan and Carrol Barber frá Bretlandi á Charollais fjárkyninu vakti mikla athygli á ráðstefnunni í Rujiene. Upprunalega er um franskt kyn að ræða frá Saone et Loire svæðinu, því sama og þekkt er fyrir ræktun Charolais holdanautgripa. Þetta fé var fyrst flutt til Bretlandseyja fyrir 40 árum og eru hrútar af því nú mikið notaðir við framleiðslu blendingslamba til slátrunar með sama hætti og t.d. breska kynið Suffolk og hollenska kynið Texel. Líkt og þau kyn er Charollais þaulræktað holdakyn en við mótun þess á 19. öld komu við sögu bæði frönsk og bresk fjárkyn. Hrútarnir gefa væn, þéttvaxin og vöðvamikil föll , án þess að vera of feit. Það sem hefur aukið vinsældir kynsins samanborið við önnur slík er þó sá eiginleiki að ær sem fá við Charollais hrútum eiga auðveldara með burð og mun minna er um burðarerfiðleika en t.d. þegar hinir holdmiklu Texel hrútar koma við sögu. Rétt er að geta þess að bæði kynin eru ágætlega frjósöm og allt er kollótt. Kynbótasjónarmið En hugum nánar að vaxtarlaginu sem þau Jonathan og Carrol töldu mikilvægt þegar kemur að erfiðleikum við burð. Dálítið má glöggva sig á meðfylgjandi myndum hve vaxtarlagið á Charollais og Texel er frábrugðið, einkum frambyggingin. Texel er kubbslegt og kassalaga fé með miklar útlögur en Charollais féð hefur ekki eins breiðar herðar og framparturinn er sívalari. Með því að leggja mikla áherslu á fleygmyndaðar herðar til að draga úr burðarerfiðleikum segjast ræktendur Charollais fjár hafa mótað nokkra sérstöðu í samanburði við önnur þaulræktuð holdakyn. Þannig er ljóst að vaxtarlag er erfðaeiginleiki sem getur skipt máli þegar leitast er við að draga úr burðarerfiðleikum áa. Dæmi um slíkt eru rannsóknaniðurstöður sem dr. Cathy M. Dwyer og samstarfsfólks í Landbúnaðarháskólanum í Edinborg kynntu 2012. Þær sýndu að í skoskum fjárhjörðum megi ná töluverðum árangri með markvissri skráningu burðarhjálpar og úrvali þar sem arfgengið 0.26 hafi mældist fyrir 11.000 lamba gagnasafn. Í sauðfjárrækt víða um lönd er vaxandi áhersla lögð á að ær beri sem mest án hjálpar (easy-care), bæði vegna hagkvæmnissjónarmiða og krafna um bætta velferð fjárins, eins og áður var vikið að. Hugleiðingar um íslenska féð Miðað við önnur fjárkyn hefur íslenska féð verið þekkt fyrir lága tíðni burðarerfiðleika þar sem slíkur samanburður er þekktur, einkum í Norður-Ameríku og á Bretlandseyjum, aðallega eftir 1990. Þarna liggja þó ekki neinar samanburðarrannsóknir að baki, eingöngu reynsla og álit fjárbænda. Líkt og erlendis er þessi eiginleiki vel metinn hér á landi og nú á dögum þegar fjárbændur og búvísindamenn beggja vegna Atlantshafs sýna útflutningi íslensk fjár vaxandi áhuga af ýmsum ástæðum er vert að hafa þetta í huga. Þeir eru ekki aðeins að leita eftir harðgeru og frjósömu fé með mikla litafjölbreytni heldur einnig holdafé með það í huga að nota þaulræktaða íslenska hrúta við blendingsrækt líkt og Charollais og Texel. Þetta endurspeglar þær miklu breytingar á vaxtarlagi o.fl. eiginleikum sem tengjast vöðvamiklum og fitusnauðum skrokkum, einkum eftir að ómsjármælingar hófust hér á landi fyrir nær 30 árum. Vaxtarlag íslenskra úrvalshrúta Af lýsingum á úrvalshrútum í hinum víðlesnu og vinsælu hrútaskrám sauðfjársæðingastöðvanna má m.a. sjá að margir þeirra hrúta hafa mikla frambyggingu. Lýsingar á borð við; „háls sver og herðar breiðar og vel holdfylltar“, – „háls stuttur og vel tengdur við mjög holdmiklar herðar“, – „breiðar og miklar herðar, breiða bringu og miklar útlögur“, – „mikil vídd og góð lögun er í framparti“, – „mjög breiðvaxinn og bolvíður hrútur“, gefa þetta vel til kynna. Þá hlýtur að vakna sú hugleiðing hvort eða hvernig þetta vaxtarlag frambyggingarinnar sé farið að leiða til aukinnar tíðni erfiðra burða og burðarhjálpar. Einnig er spurningin hvort hugsanlega komi fram breytingar á mjaðmargrind áa við ræktun mjög þéttvaxins holdafjár. Aftur er mér hugsað til Texel og alþekktrar burðarnauðar í því kyni. Þar er vel þekkt kryppa á baki vegna mikillar vöðvasöfnunar en slíkt var þekkt í Stramma 83-833 og afkvæmum hans og í Hrútaskrá 2017-2018 kemur fram á bls. 36 að sæðingahrútur honum óskyldur, Magni 13-944, sé með vott af kryppu. Sú spurning hlýtur þá einnig að vakna hvort eða hvernig þessi bakholdaeiginleiki tengist bæði beina- og vöðvabyggingu í afturhluta ánna og þar með eiginleikum þeirra til að bera með náttúrulegum hætti, án hjálpar. Hvort er holdaféð okkar að líkjast Texel eða Charollais hvað vaxtarlag varðar ? Skráning burðarhjálpar í skýrsluhaldinu Út frá framangreindum hugleiðingum er við hæfi að bera lof á þá nýbreytni í sauðfjárskýrsluhaldinu að gefa kost á skráningu vegna burðarhjálpar, allt frá smávægilegri eða lítilli hjálp til erfiðra fæðinga og keisaraskurða. Þar með er unnt að skrá ástæður burðarhjálpar, svo sem hvort ærin sé þröng. Eins og áður var vikið að, út frá umræðum á ráðstefnunni í Rujiene og rannsóknum í Skotlandi, ættu að safnast mjög gagnlegar upplýsingar frá fjölda íslenskra fjárbúa á næstu árum sem skapa grundvöll til rannsókna á umfangi burðarhjálpar og þar með hugsanlegra tengsla þess vandamáls við ákveðna hrúta. Þá má reikna með að aukin holdanautarækt kalli á nánari skoðun á burðarerfiðleikum í kúm. Vegna þess hve ég tel skráningu burðarhjálpar áa í skýrsluhaldinu mikilvæga legg ég til að hún verði ekki lengur valfrjáls heldur skylda. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson Höfundurinn er áhugamaður um náttúrulegan burð, án hjálpar. Hann er fulltrúi Dýraverndarsambands Íslands í Fagráði um velferð dýra. Texel-holdakynið er m.a þekkt fyrir mikla burðarhjálp. Charollais-holdakynið er m.a. þekkt fyrir auðveldan burð. Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500 Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526 www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is Weidemann smávélar og skotbómur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara Weidemann er þýskur framleiðandi og er einn af frumkvöðlum í smíði smærri og meðalstórra mokstursvéla, fyrirtækið var stofnað árið 1960. Weidemann hefur fyrir löngu sannað gæði sín hér á landi og hefur alla tíð verið meðal mest seldu smávéla hér á landi. Kynntu þér vöruúrval Weidemann smávéla með nýju íslensku myndbandi á slóðinni www.kraftvelar.is/weidemann
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.