Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 1

Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 1
7. tölublað 2017 ▯ Fimmtudagur 6. apríl ▯ Blað nr. 488 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda samþykkti stefnu með háleitum markmiðum til tíu ára: Öll sauðfjárrækt á Íslandi verði kolefnisjöfnuð fyrir 2027 – Fyrir árslok 2017 verður allt íslenskt lambakjöt framleitt án erfðabreytts fóðurs Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda (LS), sem haldinn var í Bændahöllinni við Hagatorg 30. og 31. mars 2017, samþykkti stefnu til ársins 2027 um að kolefnisjafna skuli alla greinina eins fljótt og auðið er. Stefnan er í tíu liðum og í henni er það líka gert að markmiði að lág- marka umhverfisfótspor greinar- innar. Umhverfisstefna verði vott- uð. Að allar afurðir verði rekjan- legar. Öll framleiðsla afurða verði án erfðabreytts fóðurs. Stefnt er að því að gera sauðfjárrækt sjálf- bæra til framtíðar. Greinin verði vottuð fyrir dýravelferð. Að öll viðskipti verði á sanngjörnum nótum. Sett stefna um samfélags- ábyrgð greinarinnar og að sérstaða íslenskrar sauðfjárræktar fáist viðurkennd á alþjóðavísu. Greinin verði kolefnisjöfnuð fyrir 2027 Fyrir árið 2027 skal íslensk sauð- fjárrækt verða kolefnisjöfnuð. Þetta verður gert með landgræðslu, skógrækt, endurheimt votlendis, eldsneytisskiptum og fleiri leið- um samkvæmt aðgerðaáætlun Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. frá mars 2017, sem unnin var fyrir Landssamtök sauðfjárbænda. Leitað verður samstarfs og stuðn- ings stjórnvalda og annarra aðila. Stefnt er að því að allar afurðir frá íslenskum sauðfjárbændum verði vottaðar sem kolefnishlutlausar eins fljótt og kostur er. Víðtæk stefnumótunarvinna var unnin hjá Landssamtökum sauðfjárbænda í aðdraganda búvörusamninga sem undirrit- aðir voru 19. febrúar 2016. Þessi vinna var nauðsynleg við mótun samningsmarkmiða þar sem sér- stök áhersla var lögð á jafnrétti, nýliðun, verðmætasköpun og umhverfismál. Byggt var á eldri stefnu og samþykktum um leið og lagðar voru nýjar áherslur á fjöl- mörgum sviðum. Að baki liggja úttektir, minnisblöð, skýrslur og vinna bænda, starfsfólks, ráðgjafa og sérfræðinga. Án erfðabreytts fóðurs Fyrir árið 2027 skulu allar íslenskar sauðfjárafurðir verða vottaðar sem afurðir sem framleiddar eru án erfða- breytts fóðurs. Með því er sérstaða þeirra sem náttúrulegra og hreinna afurða undirstrikuð. Í kjölfar samþykkta aðalfundar Landssamtaka sauðfjárbænda var erfðabreytt fóður bannað í íslenskri sauðfjárrækt. Bannið tók gildi 26. október 2016 með undirritun og gildistöku reglugerðar um bann við notkun á erfðabreyttu fóðri í sauð- fjárrækt. Þá var grundvöllur banns- ins styrktur enn frekar 15. desember 2016 með reglugerðarbreytingum um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu. Talsmenn LS segja að frá og með haustinu 2017 verði hægt að full- yrða að allt íslenskt lambakjöt, gærur og ull eru af dýrum sem aldrei hafa fengið erfðabreytt fóður. Ekki held- ur mjólk úr dýrum sem alin eru á erfðabreyttu fóðri. Stefnt er að því að þessi sérstaða verði alþjóðlega vottuð fyrir árið 2019. Með þessari samþykkt á aðal- fundi 2017 eru festar í sessi þær áherslur sem hafa rutt sér til rúms í starfsemi samtakanna og íslenskri sauðfjárrækt á undanförnum miss- erum og árum. Tilgangurinn er að efla íslenska sauðfjárrækt í sátt við samfélag og náttúru þar sem sérstaða, sjálfbærni, fjölbreytni og verðmæta- sköpun eru höfð að leiðarljósi. /HKr. Nýr hestalitur kominn fram í íslenska hrossastofninum – Eini hesturinn í heiminum með þennan erfðaeiginleika Einstakt afbrigði Bændablaðið fregnaði af því að á Íslandi væri nú til graðfoli sem kominn er á fjórða vetur og með einstakan lit. Freyja Imsland, doktor í erfðafræði, og Baldur Eiðsson, eigandi folans, staðfestu að svo væri. Folinn sem um ræðir heitir Ellert og er frá Baldurshaga. Hann er óvanalegur á lit, bleikálóttur, breið-blesóttur, með stórt og mikið vagl í báðum augum. Lappirnar og kviðurinn hvítur. Bakið er dökklitt, en síðurnar yrjóttar eins og hálsinn. Litmynstrið á Ellerti er kallað ýru- skjótt. Gerð var sameindaerfðafræðileg rannsókn á Ellerti, og leiddi hún í ljós að hann ber glænýjan erfða- eiginleika sem kemur svona fram í litnum. „Enn sem komið er er Ellert eini hesturinn í gervallri veröld sem ber nákvæmlega þessar literfðir. En þó vitum við eitthvað um litinn, út frá sameindafræðilegum skyldleika við hóp þekktra literfða sem finna má í ýmsum erlendum hrossakynjum. Þessi hópur lita nefnist ríkjandi hvítt, og er þekktastur þannig að fullorðin hross eru oft alhvít, með bleika húð en dökk augu,“ segir Freyja Imsland. /GHP – Sjá nánar á bls. 23 Ellert frá Baldurshaga er ýruskjóttur. Hann er með bleikálóttan grunn, lappirnar og kviðurinn hvítur. Bakið er dökklitt, en síðurnar yrjóttar eins og hálsinn. Auk þess er hann með stóra og mikla blesu. Mynd / Daníel Ingi Larsen Stjórnkerfið fær falleinkunn í fæðuöryggismálum 4 Starfar sem sjálfboðaliði á sauðfjárbúi í Bandaríkjunum 22-23 40-41 Jakuxi – húsdýr Himalajafjalla

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.