Bændablaðið - 06.04.2017, Side 10

Bændablaðið - 06.04.2017, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Mannaráðningar í sveitum landsins: Höfum hlutina í lagi Sumarið er tíminn þegar fleiri hendur þarf til starfa víða um sveitir. Sauðburður er vinnufrek- ur, heyskapur, viðhaldsvinna sem hentar að vinna á sumrin og margt fleira kallar á ráðningar á tímabundnar ráðningar á starfs- fólki. Mikilvægt er þá að huga að umgjörð þessara ráðninga. Bændasamtök Íslands og Starfsgreinasambandið gera með sér kjarasamninga um kaup og kjör starfsfólks í landbúnaði. Starfsmenn sem vinna við ferðaþjónustu falla hins vegar ekki undir þennan samn- ing. Þennan kjarasamning má finna á heimasíðu Bændasamtakanna og margra aðildarfélaga Starfsgreina- sambandsins. Gera á skriflega ráðningarsamninga Samkvæmt kjarasamningnum á að gera ráðningarsamning sem er skrif- legur samningur um nánari útfærslu innan þeirra marka sem kjarasamn- ingurinn heimilar. Bændur eru eindregið hvattir til að gera slíkan samning skriflega við starfsfólk sitt. Bændasamtökin og Starfsgreina- sambandið gáfu einnig út sameig- inlega yfirlýsingu fyrr í vetur um sjálfboðaliða í landbúnaði. Í yfirlýs- ingunni segir meðal annars: „Það er sameiginlegt viðfangsefni aðila að stuðla að því að fyrirtæki og lögbýli í framleiðslu eða þjónustu, greiði laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga og lög hér á landi. Ef kjarasamningar eru ekki virtir grefur það undan starfsemi annarra og spillir forsendum eðlilegrar samkeppni og dregur úr ávinningi alls samfélagsins af traustu og heil- brigðu atvinnulífi.“ Einnig er áréttað að það sé andstætt kjarasamningum og meginreglum á vinnumarkaði að sjálfboðaliðar gangi í almenn störf launafólks í efnahagslegri starfsemi. Það má árétta að engu skipt- ir hvort launagreiðandi á aðild að Bændasamtökunum eða öðrum sam- tökum fyrirtækja. Samkvæmt lögum um kjarasamninga nr. 55/1980 bind- ur kjarasamningur alla þá sem greiða laun (og þiggja laun) fyrir störf sem kjarasamningurinn tekur til bæði launþega og launagreiðendur. Vistráðning ekki sama og ráðning vemjulegs starfsfólks Vistráðning eða „Au Pair“ er sér- stakt ráðningarform. Þar er ekki um að ræða hefðbundna vinnu og lýtur hún því ekki sömu lög- málum og ráðning samkvæmt kjarasamningum. Þessu er þó stundum ruglað saman og leggja Bændasamtökin áherslu á að menn forðist að blanda vistráðningu saman við ráðningu starfsfólks til hefðbundinna bústarfa. Vistráðning er hugsuð sem möguleiki ungs fólks til að mennta sig og kynnast annarri menningu. Ungt fólk býr þá hjá fjölskyldu, tekur þátt í léttum heimilisstörfum og/eða umönnun barna á heim- ilinu og lífi fjölskyldunnar eftir atvikum. Í staðinn fær viðkom- andi að kynnast landi og þjóð, fær vasapeninga og húsnæði og tækifæri til að sækja námskeið. Útlendingastofnun þarf enn frem- ur að gefa út vistráðningaleyfi fyrir fólk sem kemur frá löndum utan EES. Upplýsingar um þetta ráðningar- form má til dæmis finna á heima- síðu Starfgreinasambandsins. Einstaklingar sem koma frá löndum utan EES þurfa skilyrð- islaust að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi. Vinnumálastofnun veitir upplýsingar um hvernig standa skal að slíku. Viðkomandi einstaklingur þarf enn fremur að fá kennitölu. Standa á skil á tryggingargjaldi Gera skal ráðningarsamning og standa skil á greiðslu trygginga- gjalds af launum. Þá kemst við- komandi starfsmaður inn í íslenska sjúkra tryggingakerfið. Fólk sem ekki er sjúkratryggt hérlendis en þarf á heilbrigðisþjónustu að halda verður að greiða fullt verð fyrir. Nánari upplýsingar er á finna á www.sjukra.is. Á heimasíðu Vinnumála- stofnunar, www.vmst.is er einnig að finna ýmsar upplýsingar um veitingu atvinnuleyfa og annað sem viðkemur ráðningu á erlendu starfsfólki, en sömu skilyrði eiga ekki við í öllum tilfellum. Bændur eru hvattir til að fara yfir þessi mál og sýna í verki, að þeir geti verið öðrum til fyrir- myndar í að fara að settum reglum samfélagsins um mannaráðningar. Erna Bjarnadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri BÍ FRÉTTIR Skýrsla um úttekt á Matvælastofnun: Nær ekki að sinna öllum lög- bundnum skyldum sínum – Of mikið vinnuálag á starfsmönnum og stjórnendum Skýrslu vegna stjórnsýsluúttekt- ar á Matvælastofnun (MAST) var skilað til atvinnu- og nýsköpun- arráðuneytisins í gær. Í skýrslunni kemur fram að MAST nær ekki að sinna öllum lögbundnum skyldum sínum og mikið álag er á stjórnend- um og starfsmönnum. Þá starfar stofnunin ekki nægilega vel sem samstillt heild, auk þess sem ímynd stofnunarinnar meðal eftirlitsþega og almennings sé ekki nægilega góð. Gunnar Bragi Sveinsson, þáver- andi sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra síðustu ríkisstjórnar, setti í byrjun desembermánaðar á síðasta ári af stað vinnu á úttekt á starfsemi Matvælastofnunar í kjölfar svokall- aðs Brúneggjamáls. Var þeim dokt- or Ólafi Oddgeirssyni, dýralækni og framkvæmdastjóra ráðgjafarfyrir- tækisins Food Control Consultants Ltd. í Skotlandi, og Bjarna Snæbirni Jónssyni stjórnunarráðgjafa falið að gera úttektina. Þörf á heildstæðri matvælastefnu Var þeim Ólafi og Bjarna gert að fara yfir verkferla Matvælastofnunar hvað varðar eftirlit með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit, greina starfsaðferðir og bera saman við það sem almennt gerist hjá sam- bærilegum stofnunum í Evrópu. Í skýrslunni er farið yfir starfsemi MAST, þróun, verklag og lagðar til leiðir til úrbóta. Það kemur fram að stofnunin býr að verðmætum mannauði en styrkja þurfi starf stofnunarinnar, meðal annars með markvissari stjórnun og stefnumótun, skýrari verklags- reglum og betri miðlun upplýsinga. Jafnframt sé þörf á heildstæðri mat- vælastefnu auk þess sem skipulag matvælaeftirlits sé of flókið. Yfirstjórn gat gripið fyrr inn í Brúneggjamálið Í sérstakri umfjöllun um Brún- eggjamálið eru gerðar athugasemd- ir við að ekki hafi verið brugðist fyrr við af yfirstjórn MAST, varðandi ítrekaðar athugasemd- ir dýralæknis frá árinu 2007. Skýrsluhöfundar telja það óviðun- andi að athugasemdir stofnunarinn- ar hefðu ekki verið teknar alvarlega ár eftir ár og hefði sú háttsemi átt að hafa komið til kasta yfirstjórn- ar miklu fyrr en árið 2015 þegar fyrst var farið að ræða um að beita alvarlegum þvingunarað- gerðum. „Höfundar fengu álit frá lögfræðingi á skrifstofu matvæla og landbúnaðar hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og hefur hann bent á að mögulegar þvingunarráðstafanir voru til staðar í þágildandi 3. mgr. 16. gr. laga um búfjárhald nr. 103/2002. Í málsgreininni var mælt fyrir um vörslusviptingu búfjár. Það er álit fyrrgreinds lögfræðings að mögu- lega hefði verið hægt að láta reyna á fyrrgreint þvingunarúrræði. Er bent á að ef sérfræðingar MAST hefðu metið aðbúnað búfjár hjá Brúneggjum með þeim hætti að um vanfóðrun, harðýðgi eða slæman aðbúnað hafi verið ræða þá hefði verið mögulegt að láta á það reyna að vörslusvipta fyrr en áætlað var að gera árið 2015. Fyrrgreint úrræði hefði þó aðeins verið heimilt ef lögmætu markmiði hefði ekki verið náð með öðru vægara móti og umráðamaður búfjár hefði ekki brugðist við athugasemdum MAST. Hins vegar liggur fyrir að ekkert faglegt mat lá fyrir hjá stofnun- inni um að harðýðgi hafi verið beitt og kom því aldrei til álita að beita þessari þvingun í gildistíð eldri löggjafar. Það er ekki fyrr en með setningu nýrrar velferðarreglugerð- ar um alifugla og versnandi ástandi á búunum, m.a. vegna nýrra krafna, að stofnunin taldi að tilefni væri til að beita vörslusviptingu. Árið 2012 komst eftirlitsmað- ur að þeirri niðurstöðu að 4 hús af alls 9 væru ekki hæf til að hýsa varphænur. Í skýringum frá MAST kom fram, að hér var um að ræða mat þáverandi eftirlitsmanns, sem hefði þurft að staðfesta og fjalla nánar um. Það liggur hins vegar fyrir að þeir eftirlitsmenn sem fram- kvæmdu úttektir árin á eftir viku ekki að þessu atriði í skýrslum sínum eða lögðu fram sambærilegt mat um það hvort húsin væru hæf til notkunar eða ekki og því var þessari athugasemd ekki fylgt frekar eftir af hálfu MAST.“ Varðandi umbúðamerkingar Brúneggja, þar sem merki vistvænnar landbúnaðarframleiðslu var að finna, segja skýrsluhöfundar að MAST hefði á grundvelli neytendaverndar átt að beita sér af meiri hörku í eftirfylgni. „MAST vakti athygli viðkomandi búnaðarsambands á því að Brúnegg uppfyllti ekki ákvæði reglugerðar um vistvæna landbúnaðarframleiðslu, og sendi síðar erindi til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins þegar engin viðbrögð komu af hálfu viðkomandi búnaðarsambands, en málið virðist í framhaldi af því hafa gufað upp. […] Hins vegar ber á það að líta, að ekki er að öllu leyti við stofnunina að sak- ast, heldur er hér um að ræða skýrt dæmi um veikleika í matvælaeftirliti í þeim tilvikum þar sem ábyrgð er ekki á einni hendi og jafnvel óvissa um hver og hvernig skuli staðið að eftirliti til þess að fylgja eftir skýrum ákvæðum matvælalaga.“ Heildstæð umbótaáætlun Í skýrslunni eru tvenns konar áskor- anir tilteknar, sem fyrr segir, sem stofnunin stendur frammi fyrir. Annars vegar sú að MAST nær ekki að sinna öllum lögbundnum skyldum sínum og mikið vinnuálag hvíli á stjórnendum, en hins vegar að stofnunin starfi ekki nægilega vel sem ein samstillt heild – ímyndin meðal eftirlitsþega og í samfélaginu í heild sé ekki þannig nægilega góð. Þessar áskoranir tengist innbyrðis. „Það er því nauðsynlegt að skoða nánar undirliggjandi orsakaþætti og greina hvar koma þurfi við úrbótum til þess að tryggja betur jákvæða og uppbyggilega þróun. Niðurstöður kannana á menningu og hugarfari benda til þess að innan MAST fari töluverð orka og tími í ýmiss konar innri mál sem með réttri nálgun ætti að vera hægt að koma í veg fyrir. Miðað við þessar niðurstöður virð- ist liggja nokkuð beint við að kraft- ar starfsfólks nýtast ekki til fulls. Með þessu er ekki fullyrt að þeir álagstengdu þættir sem bersýnilega eru að há starfseminni séu eingöngu heimatilbúnir. Framkvæma þarf nánari greiningu á verkefnum og aðföngum til þess að kanna málið til hlítar. Miðað við það mikilvæga hlutverk sem MAST er trúað fyrir til þess að tryggja hagsmuni bæði atvinnulífsins og allra landsmanna, er nauðsynlegt að þær úrbætur sem nauðsynlegar eru fái fulla athygli, bæði stjórnvalda og stjórnenda stofnunarinnar. Segja má að rétt sé að hefja eft- irfarandi orsakakeðju með því að benda á, að eins og mál standa nú er sú löggjöf sem MAST starfar eftir bæði margslungin og flókin auk þess sem opinber stefna og framtíðarsýn er óljós og þar með kröfur og markmið um árangur. Óljós sameiginleg sýn stjórnvalda og starfsmanna MAST á hlutverk og markmið starfseminnar veldur því að skyldur og heimildir eru ekki fyllilega ljósar að mati stjórnenda, og þar með eru starfsmenn ekki nægilega samstilltir um sameig- inlegt hlutverk, enda verkefnin mjög margbreytileg. Það skal tekið fram, að unnið er að endurnýjun laga um MAST og er mikilvægt að sú endurnýjun fari fram í nánu samstarfi milli ráðuneytis, stofn- unar og hagsmunaaðila og að í kjölfarið verði mótuð heildræn opinber stefna um starfsemina sem auðveldar ákvarðanir um áherslur í þróun innviða hennar og eftirfylgni með árangri,“ segir meðal annars í skýrslunni um úrbótaáætlunina. MAST vinnur áfram með tillögur skýrsluhöfunda MAST segir í tilkynningu vegna útgáfu skýrslunnar að stofnunin muni „vinna áfram með tillögur skýrsluhöf- unda í samstarfi við þriggja manna verkefnisstjórn sem ráðuneytið mun skipa í kjölfarið með það að mark- miði að styðja frekar við starfsemi stofnunarinnar. Samhliða þeirri vinnu verður unnið áfram að nýjum lögum um Matvælastofnun sem skilgreina munu betur hlutverk stofnunarinnar, skyldur og heimildir.“ Hægt er að nálgast skýrsluna á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins, atvinnuvegaraduneyti.is. /smh Í sérstakri umfjöllun um Brúneggjamálið eru gerðar athugasemdir við að ekki Mynd / smh Mynd / HKr. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Hafa áhrif um land allt!

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.