Bændablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Þýska efnafyrirtækið Bayer
hefur verið að vinna að því að
kaupa bandaríska efnafyrirtækið
Monsanto. Forsvarsmenn fyrir-
tækjanna eru nú sannfærðir um
að það takist að ganga frá öllum
lausum endum fyrir lok þessa
árs.
Fjallað var um málið á vefsíðu
Farm Industry News þann 8. mars.
Þar kemur einnig fram að þótt við-
ræður séu í fullum gangi þá vinni
fyrirtækin, að sögn forsvarsmanna
þeirra, enn á sama grunni sem harð-
ir keppinautar.
Um sjö þúsund milljarða
viðskipti
Samkvæmt tímaritinu
Forbes, bauð Bayer
66 milljarða dollara í
Monsanto í septem-
ber á síðasta ári, eða
sem svarar um 7.260
milljarða íslenskra króna
miðað við gengi í byrjun
síðustu viku. Fyrirtækið var í
maí 2016 metið af Forbes á rúm-
lega 42 milljarða dollara (4.620
milljarða ísl. kr.).
Risafyrirtækið Bayer
Bayer á 150 ára sögu í lyfjatækni,
neytendaheilbrigðismálum, í upp-
skeruvísindum og dýraheilbrigði,
samkvæmt heimasíðu fyrirtæk-
isins. Höfuðstöðvar Bayer AG
eru í Leverkusen í Þýskalandi.
Fyrirtækið er með 27.400 starfs-
menn í Asíu og í Kyrrahafslöndum
og veltir þar um 11 milljörðum
evra á ári. Þá er það með 12.800
starfsmenn í Norður-Ameríku og er
veltan þar um 12,8 milljarðar evra.
Í Evrópu, Mið-Austurlöndum og
í Afríku er veltan 17,8 milljarðar
og starfsmenn fyrirtækisins eru
59.500. Þar af 37.000 í Þýskalandi.
Í Suður-Ameríku eru um 12.500
starfsmenn og veltan þar um 5,1
milljarður evra. Samtals er velta
Bayer því um 46,7 milljarðar evra,
sem samsvarar um 5.600 milljörð-
um íslenskra króna.
Efnarisinn Monsanto
Efnafyrirtækið Monsanto var stofn-
að 1901 og er með höfuðstöðvar í St.
Louis í Missouri í Bandaríkjunum.
Það er með samtals ríflega 20.000
starfsmenn á 353 starfsstöðvum
í 69 löndum. Þar af eru 10.000
starfsmenn á 125 starfsstöðvum í
Bandaríkjunum.
Bæði fyrirtækin hafa verið stór-
tæk í þróun á erfðatækni í landbún-
aði. Einnig í framleiðslu á
eiturefnum til að eyða
„illgresi“, sem líka eru
nefnd „varnarefni“ í
landbúnaði. Adrian
Percy, sem er einn af
yfirmönnum tækni-
deildar Bayer, segir
að þótt þeir séu stórir
á markaðnum varðandi
varnarefnin, þá hafi aldrei
verið virkt samráð á milli fyrir-
tækja í sama geira. Með samruna
fyrirtækjanna geti menn unnið náið
saman að þróun „varnarefna“ og
þróun erfðabreyttra tegunda.
„Þetta er mikilvægt þar sem
menn hafa nú vaxandi áhyggjur út
af þoli illgresis.“ Þar á hann væntan-
lega við það að illgresi hefur verið
að mynda þol gegn eiturefnunum
sem fyrirtækin framleiða og ætlað
er að drepa það. Ýmis kornafbrigði
hafa m.a. einmitt verið hönnuð til
að þola þessi eiturefni af vísinda-
mönnum Monsanto. Hann segir að
þetta sé ekki sér bandarískt vanda-
mál, heldur hafi slíkt líka verið að
koma upp í Brasilíu, Ástralíu og í
Evrópu.
Þess má geta að Monsanto hefur
ekki einungis verið að hanna erfða-
breyttar nytjajurtir með þol gegn
eiturefnum og fleiru, heldur hefur
fyrirtækið líka verið frumkvöðull í
þróun margvíslegra gróðureyðing-
arefna á liðnum áratugum. Orðspor
fyrirtækisins á þessu sviði hefur
verið afar neikvætt og hefur það
átt í útistöðum og málaferlum við
bændur víða um heim. Hafa menn
því leitt líkur að því að við samruna
við Bayer verði nafnið Monsanto
afmáð.
Með gríðarlegan fjölda
vísindamanna
Percy bendir á að sameining rann-
sókna- og þróunardeilda Bayer
og Monsanto muni hafa á sínum
snærum 10 þúsund rannsóknar-
menn, vísindamenn og tæknimenn,
eða 5.000 frá hvoru fyrirtæki um
sig. Fjármagn sem varið verði til
rannsókna í sameiginlegu fyrirtæki
muni fara yfir 2,5 milljarða dollara.
Það sé nauðsynlegt til að hjálpa
ræktendum. Einnig til að mæta
þeim málum sem eru að koma upp.
„Við þurfum nýsköpun til að
auka framleiðni matvæla. Við vitum
sem fyrirtæki að gríðarleg tækifæri
eru falin í nýsköpun í landbúnaði.
Á stafrænu hliðinni eru nemar
og gervihnettir og við þurfum að
fjárfesta meira í slíku til að koma
nýsköpuninni til bænda.“
Með allan þennan fjölda vísinda-
manna á bak við sig þarf engan að
undra að auðvelt hafi reynst að fá
aragrúa vísindamanna til að skrifa
undir yfirlýsingar og röksemda-
færslur fyrirtækjanna á opinber-
um vettvangi, gegn gagnrýni efa-
semdaradda um ágæti líftækni- og
eiturefnaiðnaðarins.
Hrifinn af mikilli getu Monsanto
Adrian Percy viðurkenndi í samtali
við Farm Industry News að hann
hafi í upphafi verið mótfallinn kaup-
um Bayer á Monsanto. Eftir að hafa
farið yfir tilboðið hafi honum snúist
hugur og sé hrifinn af mikilli getu
Monsanto.
„Það mun fylgja okkur í aukinni
og skilvirkari fjárfestingu og við að
vinna í sameiningu að sérhæfðum
lausnum.“
Nýtt hveitiafbrigði á markað 2020
Bæði fyrirtækin hafa fjárfest gríðar-
lega í þróun á erfðabreyttu hveiti.
Segir Percy að nú sé verið að vinna
að afbrigði hjá Bayer þar sem byggt
er á kynblöndun og koma eigi á
markað 2020. Segir hann að með
því að leggja saman getu Monsanto
í sama geira verði mögulega hægt
að flýta þróuninni á kornmarkaði.
Samruni fyrirtækjanna þarf að
hljóta samþykki yfirvalda á 30
stöðum. Búið sé að samþykkja
regluverkið á 20 stöðum og reikn-
að sé með að verkinu ljúki í lok
þessa árs. Svipaðar spurningar hafi
verið uppi varðandi samrunann
hjá yfirvöldum í Bandaríkjunum, í
Evrópusambandinu og í Kína.
Góð áhrif á nýsköpun og
samkeppni?
Percy heldur því fram að samruninn
muni hafa góð áhrif á nýsköpun og
samkeppni. Í því ljósi eru eftirfar-
andi orð hans mjög athyglisverð:
„Einkaleyfi á erfðaefni og eigin-
leikum hefur fært fyrirtækjum okkar
velgengni. Við erum að gera það
sama við okkar vísindagögn og gert
er í loftslagsmálunum, við vinnum
með fjölda fyrirtækja og söluaðilum.
Ræktendur munu njóta betri þjón-
ustu með þessu móti. Við munum
vinna með mismunandi vörumerkj-
um.“ Bændurnir hafa síðan val um
að fá vörur eftir sínum þörfum frá
ólíkum söluaðilum.“
Þetta hlýtur að teljast nokkuð sér-
stök túlkun á hvernig stefnt sé að því
að auka fjölbreytni og samkeppni á
vörum sem seldar eru til bænda. Þeir
fái með samruna Bayer og Monsanto
val um að velja sáðkorn og aðrar
vörur tengda ræktun frá fjölmörgum
mismunandi söluaðilum. Vörurnar
verða svo að stórum hluta framleidd-
ar af sameinaða risafyrirtækinu sem
þá verður orðið í afar sterkri stöðu
sem framleiðandi á markaði. /HKr.
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Efnaiðnaðarstórveldi í lyfja- og landbúnaðargeiranum að skríða í eina sæng:
Unnið hörðum höndum að samruna
efnarisanna Bayer og Monsanto
– Reiknað með að kaup upp á tugi milljarða dollara geti gengið í gegn fyrir árslok 2017
Þótt margir í vísindaheiminum telji að samruni efnarisa á borð við Bayer
og Monsanto geti orðið vísindunum til góðs, þá eru um leið uppi miklar
efasemdaraddir um ágæti þess. Ótti er m.a. við að það muni leiða til enn
aukins eiturefnahernaðar gagnvart náttúrunni, eins og þessi mynd af vefsíðu
Marketwatch gefur til kynna.
Rannsóknir á líftæknisviði er aðalsmerki Bayer. Er fyrirtækið stórtækt í þróun lyfja og plöntuafbrigða og nýtir þar
væntanlega mikillar þekkingar sinna starfsmanna í erfðatækni. Mynd af vefsíðu Bayer
Beiting erfðatækni í ræktun er meðal
viðfangsefna Bayer.