Bændablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Þýska efnafyrirtækið Bayer hefur verið að vinna að því að kaupa bandaríska efnafyrirtækið Monsanto. Forsvarsmenn fyrir- tækjanna eru nú sannfærðir um að það takist að ganga frá öllum lausum endum fyrir lok þessa árs. Fjallað var um málið á vefsíðu Farm Industry News þann 8. mars. Þar kemur einnig fram að þótt við- ræður séu í fullum gangi þá vinni fyrirtækin, að sögn forsvarsmanna þeirra, enn á sama grunni sem harð- ir keppinautar. Um sjö þúsund milljarða viðskipti Samkvæmt tímaritinu Forbes, bauð Bayer 66 milljarða dollara í Monsanto í septem- ber á síðasta ári, eða sem svarar um 7.260 milljarða íslenskra króna miðað við gengi í byrjun síðustu viku. Fyrirtækið var í maí 2016 metið af Forbes á rúm- lega 42 milljarða dollara (4.620 milljarða ísl. kr.). Risafyrirtækið Bayer Bayer á 150 ára sögu í lyfjatækni, neytendaheilbrigðismálum, í upp- skeruvísindum og dýraheilbrigði, samkvæmt heimasíðu fyrirtæk- isins. Höfuðstöðvar Bayer AG eru í Leverkusen í Þýskalandi. Fyrirtækið er með 27.400 starfs- menn í Asíu og í Kyrrahafslöndum og veltir þar um 11 milljörðum evra á ári. Þá er það með 12.800 starfsmenn í Norður-Ameríku og er veltan þar um 12,8 milljarðar evra. Í Evrópu, Mið-Austurlöndum og í Afríku er veltan 17,8 milljarðar og starfsmenn fyrirtækisins eru 59.500. Þar af 37.000 í Þýskalandi. Í Suður-Ameríku eru um 12.500 starfsmenn og veltan þar um 5,1 milljarður evra. Samtals er velta Bayer því um 46,7 milljarðar evra, sem samsvarar um 5.600 milljörð- um íslenskra króna. Efnarisinn Monsanto Efnafyrirtækið Monsanto var stofn- að 1901 og er með höfuðstöðvar í St. Louis í Missouri í Bandaríkjunum. Það er með samtals ríflega 20.000 starfsmenn á 353 starfsstöðvum í 69 löndum. Þar af eru 10.000 starfsmenn á 125 starfsstöðvum í Bandaríkjunum. Bæði fyrirtækin hafa verið stór- tæk í þróun á erfðatækni í landbún- aði. Einnig í framleiðslu á eiturefnum til að eyða „illgresi“, sem líka eru nefnd „varnarefni“ í landbúnaði. Adrian Percy, sem er einn af yfirmönnum tækni- deildar Bayer, segir að þótt þeir séu stórir á markaðnum varðandi varnarefnin, þá hafi aldrei verið virkt samráð á milli fyrir- tækja í sama geira. Með samruna fyrirtækjanna geti menn unnið náið saman að þróun „varnarefna“ og þróun erfðabreyttra tegunda. „Þetta er mikilvægt þar sem menn hafa nú vaxandi áhyggjur út af þoli illgresis.“ Þar á hann væntan- lega við það að illgresi hefur verið að mynda þol gegn eiturefnunum sem fyrirtækin framleiða og ætlað er að drepa það. Ýmis kornafbrigði hafa m.a. einmitt verið hönnuð til að þola þessi eiturefni af vísinda- mönnum Monsanto. Hann segir að þetta sé ekki sér bandarískt vanda- mál, heldur hafi slíkt líka verið að koma upp í Brasilíu, Ástralíu og í Evrópu. Þess má geta að Monsanto hefur ekki einungis verið að hanna erfða- breyttar nytjajurtir með þol gegn eiturefnum og fleiru, heldur hefur fyrirtækið líka verið frumkvöðull í þróun margvíslegra gróðureyðing- arefna á liðnum áratugum. Orðspor fyrirtækisins á þessu sviði hefur verið afar neikvætt og hefur það átt í útistöðum og málaferlum við bændur víða um heim. Hafa menn því leitt líkur að því að við samruna við Bayer verði nafnið Monsanto afmáð. Með gríðarlegan fjölda vísindamanna Percy bendir á að sameining rann- sókna- og þróunardeilda Bayer og Monsanto muni hafa á sínum snærum 10 þúsund rannsóknar- menn, vísindamenn og tæknimenn, eða 5.000 frá hvoru fyrirtæki um sig. Fjármagn sem varið verði til rannsókna í sameiginlegu fyrirtæki muni fara yfir 2,5 milljarða dollara. Það sé nauðsynlegt til að hjálpa ræktendum. Einnig til að mæta þeim málum sem eru að koma upp. „Við þurfum nýsköpun til að auka framleiðni matvæla. Við vitum sem fyrirtæki að gríðarleg tækifæri eru falin í nýsköpun í landbúnaði. Á stafrænu hliðinni eru nemar og gervihnettir og við þurfum að fjárfesta meira í slíku til að koma nýsköpuninni til bænda.“ Með allan þennan fjölda vísinda- manna á bak við sig þarf engan að undra að auðvelt hafi reynst að fá aragrúa vísindamanna til að skrifa undir yfirlýsingar og röksemda- færslur fyrirtækjanna á opinber- um vettvangi, gegn gagnrýni efa- semdaradda um ágæti líftækni- og eiturefnaiðnaðarins. Hrifinn af mikilli getu Monsanto Adrian Percy viðurkenndi í samtali við Farm Industry News að hann hafi í upphafi verið mótfallinn kaup- um Bayer á Monsanto. Eftir að hafa farið yfir tilboðið hafi honum snúist hugur og sé hrifinn af mikilli getu Monsanto. „Það mun fylgja okkur í aukinni og skilvirkari fjárfestingu og við að vinna í sameiningu að sérhæfðum lausnum.“ Nýtt hveitiafbrigði á markað 2020 Bæði fyrirtækin hafa fjárfest gríðar- lega í þróun á erfðabreyttu hveiti. Segir Percy að nú sé verið að vinna að afbrigði hjá Bayer þar sem byggt er á kynblöndun og koma eigi á markað 2020. Segir hann að með því að leggja saman getu Monsanto í sama geira verði mögulega hægt að flýta þróuninni á kornmarkaði. Samruni fyrirtækjanna þarf að hljóta samþykki yfirvalda á 30 stöðum. Búið sé að samþykkja regluverkið á 20 stöðum og reikn- að sé með að verkinu ljúki í lok þessa árs. Svipaðar spurningar hafi verið uppi varðandi samrunann hjá yfirvöldum í Bandaríkjunum, í Evrópusambandinu og í Kína. Góð áhrif á nýsköpun og samkeppni? Percy heldur því fram að samruninn muni hafa góð áhrif á nýsköpun og samkeppni. Í því ljósi eru eftirfar- andi orð hans mjög athyglisverð: „Einkaleyfi á erfðaefni og eigin- leikum hefur fært fyrirtækjum okkar velgengni. Við erum að gera það sama við okkar vísindagögn og gert er í loftslagsmálunum, við vinnum með fjölda fyrirtækja og söluaðilum. Ræktendur munu njóta betri þjón- ustu með þessu móti. Við munum vinna með mismunandi vörumerkj- um.“ Bændurnir hafa síðan val um að fá vörur eftir sínum þörfum frá ólíkum söluaðilum.“ Þetta hlýtur að teljast nokkuð sér- stök túlkun á hvernig stefnt sé að því að auka fjölbreytni og samkeppni á vörum sem seldar eru til bænda. Þeir fái með samruna Bayer og Monsanto val um að velja sáðkorn og aðrar vörur tengda ræktun frá fjölmörgum mismunandi söluaðilum. Vörurnar verða svo að stórum hluta framleidd- ar af sameinaða risafyrirtækinu sem þá verður orðið í afar sterkri stöðu sem framleiðandi á markaði. /HKr. Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Vottaður hífi- og festingabúnaður Námskeið um notkun á hífibúnaði Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði Hífi- og festingabúnaður Efnaiðnaðarstórveldi í lyfja- og landbúnaðargeiranum að skríða í eina sæng: Unnið hörðum höndum að samruna efnarisanna Bayer og Monsanto – Reiknað með að kaup upp á tugi milljarða dollara geti gengið í gegn fyrir árslok 2017 Þótt margir í vísindaheiminum telji að samruni efnarisa á borð við Bayer og Monsanto geti orðið vísindunum til góðs, þá eru um leið uppi miklar efasemdaraddir um ágæti þess. Ótti er m.a. við að það muni leiða til enn aukins eiturefnahernaðar gagnvart náttúrunni, eins og þessi mynd af vefsíðu Marketwatch gefur til kynna. Rannsóknir á líftæknisviði er aðalsmerki Bayer. Er fyrirtækið stórtækt í þróun lyfja og plöntuafbrigða og nýtir þar væntanlega mikillar þekkingar sinna starfsmanna í erfðatækni. Mynd af vefsíðu Bayer Beiting erfðatækni í ræktun er meðal viðfangsefna Bayer.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.