Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Sauðfjárbændur komnir í samstarf við fjölda íslenskra veitingastaða:
Tíu veitingastöðum veitt viðurkenning fyrir
að kynna gestum íslenskt lambakjöt
– Samhliða voru staðfestir tveir nýir samningar við rekstraraðila 20 veitingastaða á landinu
Föstudaginn 31. mars veittu
íslenskir sauðfjárbændur viður-
kenningar þeim samstarfsveitinga-
húsum sem þykja hafa skarað
fram úr við að kynna íslenska
lambakjötið fyrir erlendum ferða-
mönnum.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkar
viðurkenningar eru veittar. Þriggja
manna dómnefnd var skipuð þeim
Hafliða Halldórssyni matreiðslu-
manni, sem var formaður nefndar-
innar, Sigurlaugu M. Jónasdóttur,
útvarpskonu hjá RÚV, og Dominique
Plédel Jónsson hjá SlowFood
Reykjavík. Hún valdi úr þá staði
sem hljóta viðurkenningu að þessu
sinni. Áætlað er að þetta verði árviss
viðburður.
Viðurkenningarathöfn fór fram í
Bændahöllinni við Hagatorg og hlutu
eftirfarin veitingahús viðurkenningu:
Lamb-Inn í Eyjafjarðarsveit.
Hótel Smyrlabjörg í Suðursveit.
Fiskfélagið Reykjavík.
Fiskmarkaðurinn, Reykjavík.
Íslenski barinn Ingólfsstræti,
Reykjavík.
Gallery restaurant Hótel Holti,
Reykjavík.
Grillið Hótel Sögu, Reykjavík.
Matur og Drykkur, Reykjavík.
Smurstöðin í Hörpu í Reykjavík.
Vox Hilton Hótel, Reykjavík
Yfir 60 íslenskir veitingastaðir eru
samstarfsaðilar bænda í verkefninu
Icelandic Lamb og setja íslenskt
lambakjöt í öndvegi. Árangurinn
hefur farið fram úr björtustu vonum
og sala á lambakjöti hjá samstarfs-
stöðunum hefur aukist verulega sam-
hliða samvinnunni.
Þetta er hluti af stærra verkefni
undir yfirskriftinni „Aukið virði
sauðfjárafurða“. Auk veitingar
viðurkenningar fór fram við sama
tækifæri staðfesting undirskrifta
tveggja samstarfssamninga. Það
var við Íslandshótel og annar við
eignartengd fyrirtæki undir nöfnun-
um Apótekið, Sushi Sosial, Tapas
barinn og Sæta svínið. Alls falla
undir þessa tvo nýju samninga um
20 veitingastaðir sem munu leggja
áherslu á lambakjöt á sínum matseðl-
um.
Þessa má geta að meðal fjöl-
breyttra léttra veitinga úr sauðfjár-
afurðum sem veittar voru við þetta
tækifæri var lambabacon sem vakti
mikla lukku meðal viðstaddra. /HKr.