Bændablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri Búnaðarstofu hjá Matvælastofnun:
Innleiðing búvörusamninga og greiðslur til bænda
Talsverðar breytingar urðu á
styrkjakerfi landbúnaðarins með
nýjum búvörusamningum sem tóku
gildi um síðustu áramót.
Jón Baldur Lorange, fram-
kvæmdastjóri Búnaðarstofu hjá
Matvælastofnun, segir mikið hafa
reynt á starfsfólk Búnaðarstofu
undanfarið við innleiðingu þeirra.
„Við höfum náð að gera það sem við
höfum átt að gera án tafa að neinu
ráði. Aðalmálið var að allar greiðsl-
ur til bænda kæmust á réttum tíma í
samræmi við nýjan búvörusamning,
sem þær hafa gert.“
Breytingar á gripagreiðslum
„Í nautgriparækt urðu breytingar á
útreikningi á gripagreiðslum, sem
greiddar eru fyrir hverja árskú.
Strangari krafa var sett um burð, en
til að geta talist með í árskúafjölda
búsins þarf kýrin að hafa borið að
minnsta kosti annað hvert ár. Fyrir
vikið fækkaði árskúm en á móti hækk-
aði greiðslan fyrir hverja árskú.
Svokallaðar A, B og C stuðnings-
greiðslur í tengslum við greiðslumark
og framleiðslu breyttust þannig að
nú miðast greiðslur annars vegar
við greiðslumarkið, beingreiðslur,
og hins vegar innvegna mjólk, sam-
kvæmt upplýsingum frá afurðastöð.
Fjárfestingastuðningur í naut-
griparækt er nýr styrkjaflokkur.
Umsóknarfrestur rann út í lok
mars og alls bárust 169 umsókn-
ir. Matvælastofnun hefur rúmlega
mánuð til að leggja mat á hvort
umsóknir uppfylli skilyrði fyrir
stuðningi. Það er ljóst að fram-
kvæmdahugur er í nautgripabændum
enda liggja fyrir strangari kröfur frá
stjórnvöldum um aðbúnað og velferð
nautgripa,“ segir Jón Baldur.
Þess má geta að umsóknarfrestur
um fjárfestingastuðning í svínarækt
rennur út 1. maí, en hann var fram-
lengdur um einn mánuð, og fjár-
festingastuðningur í sauðfjárrækt
verður ekki veittur fyrr en á næsta ári.
Ekki liggur fyrir hvort framkvæmdir
sem sauðfjárbændur ráðast í á þessu
ári verði styrkhæfar, en málið er til
skoðunar í ráðuneytinu.
Breytingar í sauðfjárrækt
„Stærsta breytingin í sauðfjárrækt-
inni var ársáætlun sem Búnaðarstofu
er skylt að gera og greiða eftir. Með
ársáætluninni vita bændur fyrirfram
hvaða greiðslum þeir eiga von á
og hvenær, en þær dreifast yfir allt
árið, og síðan er ársuppgjör í febr-
úar 2018. Geymslugjaldið er fallið
niður og var sett inn í aðrar stuðn-
ingsgreiðslur. Nýr styrkjaflokkur er
svæðisbundinn stuðningur, sem sam-
kvæmt búvörusamningi skal greiddur
til bænda ,,á ákveðnum landsvæðum
sem háðust eru sauðfjárrækt“ (8.
gr.). Byggðastofnun var fengin til að
koma með tillögu um skilgreiningu á
þeim svæðum sem ættu kost á slík-
um stuðningi og hvernig útdeilingu
skyldi háttað. Matvælastofnun byggir
síðan á gögnum frá Byggðastofnun
við greiðslu á styrknum, en stofnunin
nýtti jafnframt heimild í reglugerð um
að víkja frá skilyrðum um fjarlægðar-
mörk í þeim tilfellum þar sem sýnt var
fram á ófærð þjóðvega að lögbýli skv.
skilgreiningu í reglugerð.
Stuðningsgreiðslur til sauðfjár-
bænda árið 2017 eru beingreiðslur
út á greiðslumark, svæðisbundinn
stuðningur, gæðastýringargreiðslur
og beingreiðslur í ull. Síðari tvær
greiðslurnar eru áætlaðar miðað við
framleiðslu síðastliðins árs, en verða
síðan gerðar upp í ársuppgjöri miðað
við framleiðslu þessa árs. Greiðslur
til nýliða taka mið af ásetningi sam-
kvæmt haustskýrslu.“
Jón Baldur segir Matvælastofnun
hafa reiknað rafrænar ársáætlanir
byggðar á viðamiklum gögnum í
AFURÐ, greiðslukerfi landbúnað-
arins, fyrir um 2.100 aðila, og birt
þær á Bændatorginu, þar sem bændur
hafa aðgang að þeim undir rafræn
skjöl. Bændur höfðu 20 daga til að
koma með athugasemdir við þær og
á Matvælastofnun að hafa svarað
öllum athugasemdum fyrir 15. apríl.
Stofnunin er þegar búin að fara yfir
langflestar athugasemdir sem hafa
borist og gera leiðréttingar á ársáætl-
un bænda ef þess var þörf.
Skilyrði fyrir greiðslum
Að sögn Jóns Baldurs eru nú strangari
skilyrði í nýjum búvörusamningum
fyrir stuðningsgreiðslum en var áður.
„Framleiðendur verða að vera skráð-
ir eigendur eða leigjendur lögbýlis,
stunda þar landbúnað sem fellur undir
atvinnugreinanúmer í landbúnaði
skv. atvinnuvegaflokkun Hagstofu
Íslands, hafa virkt virðisaukaskatts-
númer, hafa staðið fullnægjandi skil á
hjarðbók, heilsukorti (lyfja- og sjúk-
dómaskráning) og afurðaskýrsluhaldi
Bændasamtaka Íslands.“
Jón Baldur segir að á fyrstu
dögum og vikum nýs árs hafi þetta
vafist fyrir þó nokkrum bændum
að átta sig á þessum nýju skilyrð-
um, og því hafi álagið á starfsfólk
Búnaðarstofu verið mikið við að veita
upplýsingar og greiða úr flækjum
sem komu upp í skráningum bænda
í gagnagrunnum. „Eina leiðin til að
tryggja fumlausa framkvæmd á svo
umfangsmiklu kerfi var að byggja
upp rafrænt stjórnsýslukerfi, og
það hefur verið gert með tölvukerf-
inu AFURÐ á undanförnum árum.
AFURÐ vinnur úr þeim gögnum sem
eru til staðar hjá Matvælastofnun og
Bændasamtökunum í mismunandi
kerfum. Vandamál koma upp þegar
skráningar á upplýsingum um bú eru
ekki samræmdar, til dæmis ef bændur
skrá greiðslumark á búi A en afurða-
skýrsluhaldið er síðan fært á búi B. Ef
AFURÐ hefur ekki verið ,,upplýst“
um þessi tengsl þá þýðir það einfald-
lega: ,,The Computer says no“. Hluti
af forritaþróun okkar í tengslum við
nýja búvörusamninga er að tryggja
að bændur fái tilkynningar í afurða-
skýrsluhaldskerfum ef þeir eru ekki
að uppfylla öll skilyrði um skil á
skýrsluhaldinu. Þessum upplýsingum
hefur síðan AFURÐ aðgang að þegar
gengið er frá greiðslum til bænda.
Þeir bændur sem standast ekki öll
skilyrði eru settir sjálfkrafa í bið
þangað til brugðist hefur verið við.“
Gripagreiðslur fyrir geitur
„Stjórnvöld ákváðu að styðja
við geitfjárræktina í nýjum
búvörusamningum. Við vorum að
greiða fyrstu gripagreiðslurnar til
geitfjárbænda í síðasta mánuði. Þetta
eru um hundr að geitfjáreigendur með
um þúsund geitur,“ segir Jón Baldur.
Innlausn á mjólk
Jón Baldur segir að frá áramótum
hafi verið einn innlausnardagur fyrir
mjólk og að hann hafi verið líflegur.
„Á þessum eina degi innleysti ríkið
greiðslumark fyrir um eina milljón
lítra af mjólk en eftirspurnin var
rúmlega tvær milljónir lítra. Það
fengu því ekki allir allt það magn
sem þeir vildu kaupa. Úthlutun fór
því eftir reglum um forgangshópa í
samræmi við reglugerð um stuðning
við nautgriparækt.“
1. maí verður svo annar innlausn-
ardagur og segist Jón Baldur ekki
eiga von á að hann verði jafn líflegur
og sá fyrri.
Lífræn ræktun
„Stjórnvöld auka stuðning til aðlögun-
ar að lífrænum framleiðsluháttum
einnig umtalsvert frá því sem áður var.
Árlega verður varið á samningstíman-
um um 35 milljónum króna, í stað 3,5
milljóna áður. Stuðningur við hvern
framleiðanda getur að hámarki numið
50% af árlegum aðlögunarkostnaði.
Umsóknum skal skila inn í rafrænt
umsóknarkerfi Matvælastofnunar, eigi
síðar en 15. maí ár hvert.“
Jarðræktarstyrkir og landgreiðslur
„Á þessu fyrsta ári nýs samnings eykst
vægi jarðræktar í stuðningi ríkisins við
landbúnað til muna. Á síðasta ári voru
veittar um 237 milljónir í jarðræktar-
styrki en í ár veitir ríkið alls um 618
milljónir í jarðræktarstyrki og land-
greiðslur, þar sem landgreiðslustyrkur
er nýr styrkjaflokkur.
Búnaðarsamböndin sjá að úttektir
og auknar kröfur eru gerðar varðandi
túnkortagerð. Við höfum fundað með
Landmælingum Íslands um sam-
vinnu varðandi landupplýsingakerfi,
og það hefur verið nefnt að möguleiki
væri á að nýta gervitunglamyndir á
vegum Evrópusambandsins. Mér er
sagt að myndirnar séu það nákvæm-
ar að það megi sjá hvað er verið að
rækta á hverri spildu, en það hlýtur
að auðvelda allt eftirlit.“ /VH
Matvælastofnun auglýsir eftir umsækjendum vegna nýliðunarstuðnings í samræmi við
Nýliðunarstuðningur er veittur til fjárfestinga í búrekstri. Markmið stuðningsins er að
aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.
1. maí 2017.
www.mast.is
Nýliðunarstuðningur
Auglýst er eftir umsækjendum
Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri Búnaðarstofu hjá Matvælastofnun. Mynd / smh