Bændablaðið - 06.04.2017, Page 30

Bændablaðið - 06.04.2017, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri Búnaðarstofu hjá Matvælastofnun: Innleiðing búvörusamninga og greiðslur til bænda Talsverðar breytingar urðu á styrkjakerfi landbúnaðarins með nýjum búvörusamningum sem tóku gildi um síðustu áramót. Jón Baldur Lorange, fram- kvæmdastjóri Búnaðarstofu hjá Matvælastofnun, segir mikið hafa reynt á starfsfólk Búnaðarstofu undanfarið við innleiðingu þeirra. „Við höfum náð að gera það sem við höfum átt að gera án tafa að neinu ráði. Aðalmálið var að allar greiðsl- ur til bænda kæmust á réttum tíma í samræmi við nýjan búvörusamning, sem þær hafa gert.“ Breytingar á gripagreiðslum „Í nautgriparækt urðu breytingar á útreikningi á gripagreiðslum, sem greiddar eru fyrir hverja árskú. Strangari krafa var sett um burð, en til að geta talist með í árskúafjölda búsins þarf kýrin að hafa borið að minnsta kosti annað hvert ár. Fyrir vikið fækkaði árskúm en á móti hækk- aði greiðslan fyrir hverja árskú. Svokallaðar A, B og C stuðnings- greiðslur í tengslum við greiðslumark og framleiðslu breyttust þannig að nú miðast greiðslur annars vegar við greiðslumarkið, beingreiðslur, og hins vegar innvegna mjólk, sam- kvæmt upplýsingum frá afurðastöð. Fjárfestingastuðningur í naut- griparækt er nýr styrkjaflokkur. Umsóknarfrestur rann út í lok mars og alls bárust 169 umsókn- ir. Matvælastofnun hefur rúmlega mánuð til að leggja mat á hvort umsóknir uppfylli skilyrði fyrir stuðningi. Það er ljóst að fram- kvæmdahugur er í nautgripabændum enda liggja fyrir strangari kröfur frá stjórnvöldum um aðbúnað og velferð nautgripa,“ segir Jón Baldur. Þess má geta að umsóknarfrestur um fjárfestingastuðning í svínarækt rennur út 1. maí, en hann var fram- lengdur um einn mánuð, og fjár- festingastuðningur í sauðfjárrækt verður ekki veittur fyrr en á næsta ári. Ekki liggur fyrir hvort framkvæmdir sem sauðfjárbændur ráðast í á þessu ári verði styrkhæfar, en málið er til skoðunar í ráðuneytinu. Breytingar í sauðfjárrækt „Stærsta breytingin í sauðfjárrækt- inni var ársáætlun sem Búnaðarstofu er skylt að gera og greiða eftir. Með ársáætluninni vita bændur fyrirfram hvaða greiðslum þeir eiga von á og hvenær, en þær dreifast yfir allt árið, og síðan er ársuppgjör í febr- úar 2018. Geymslugjaldið er fallið niður og var sett inn í aðrar stuðn- ingsgreiðslur. Nýr styrkjaflokkur er svæðisbundinn stuðningur, sem sam- kvæmt búvörusamningi skal greiddur til bænda ,,á ákveðnum landsvæðum sem háðust eru sauðfjárrækt“ (8. gr.). Byggðastofnun var fengin til að koma með tillögu um skilgreiningu á þeim svæðum sem ættu kost á slík- um stuðningi og hvernig útdeilingu skyldi háttað. Matvælastofnun byggir síðan á gögnum frá Byggðastofnun við greiðslu á styrknum, en stofnunin nýtti jafnframt heimild í reglugerð um að víkja frá skilyrðum um fjarlægðar- mörk í þeim tilfellum þar sem sýnt var fram á ófærð þjóðvega að lögbýli skv. skilgreiningu í reglugerð. Stuðningsgreiðslur til sauðfjár- bænda árið 2017 eru beingreiðslur út á greiðslumark, svæðisbundinn stuðningur, gæðastýringargreiðslur og beingreiðslur í ull. Síðari tvær greiðslurnar eru áætlaðar miðað við framleiðslu síðastliðins árs, en verða síðan gerðar upp í ársuppgjöri miðað við framleiðslu þessa árs. Greiðslur til nýliða taka mið af ásetningi sam- kvæmt haustskýrslu.“ Jón Baldur segir Matvælastofnun hafa reiknað rafrænar ársáætlanir byggðar á viðamiklum gögnum í AFURÐ, greiðslukerfi landbúnað- arins, fyrir um 2.100 aðila, og birt þær á Bændatorginu, þar sem bændur hafa aðgang að þeim undir rafræn skjöl. Bændur höfðu 20 daga til að koma með athugasemdir við þær og á Matvælastofnun að hafa svarað öllum athugasemdum fyrir 15. apríl. Stofnunin er þegar búin að fara yfir langflestar athugasemdir sem hafa borist og gera leiðréttingar á ársáætl- un bænda ef þess var þörf. Skilyrði fyrir greiðslum Að sögn Jóns Baldurs eru nú strangari skilyrði í nýjum búvörusamningum fyrir stuðningsgreiðslum en var áður. „Framleiðendur verða að vera skráð- ir eigendur eða leigjendur lögbýlis, stunda þar landbúnað sem fellur undir atvinnugreinanúmer í landbúnaði skv. atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, hafa virkt virðisaukaskatts- númer, hafa staðið fullnægjandi skil á hjarðbók, heilsukorti (lyfja- og sjúk- dómaskráning) og afurðaskýrsluhaldi Bændasamtaka Íslands.“ Jón Baldur segir að á fyrstu dögum og vikum nýs árs hafi þetta vafist fyrir þó nokkrum bændum að átta sig á þessum nýju skilyrð- um, og því hafi álagið á starfsfólk Búnaðarstofu verið mikið við að veita upplýsingar og greiða úr flækjum sem komu upp í skráningum bænda í gagnagrunnum. „Eina leiðin til að tryggja fumlausa framkvæmd á svo umfangsmiklu kerfi var að byggja upp rafrænt stjórnsýslukerfi, og það hefur verið gert með tölvukerf- inu AFURÐ á undanförnum árum. AFURÐ vinnur úr þeim gögnum sem eru til staðar hjá Matvælastofnun og Bændasamtökunum í mismunandi kerfum. Vandamál koma upp þegar skráningar á upplýsingum um bú eru ekki samræmdar, til dæmis ef bændur skrá greiðslumark á búi A en afurða- skýrsluhaldið er síðan fært á búi B. Ef AFURÐ hefur ekki verið ,,upplýst“ um þessi tengsl þá þýðir það einfald- lega: ,,The Computer says no“. Hluti af forritaþróun okkar í tengslum við nýja búvörusamninga er að tryggja að bændur fái tilkynningar í afurða- skýrsluhaldskerfum ef þeir eru ekki að uppfylla öll skilyrði um skil á skýrsluhaldinu. Þessum upplýsingum hefur síðan AFURÐ aðgang að þegar gengið er frá greiðslum til bænda. Þeir bændur sem standast ekki öll skilyrði eru settir sjálfkrafa í bið þangað til brugðist hefur verið við.“ Gripagreiðslur fyrir geitur „Stjórnvöld ákváðu að styðja við geitfjárræktina í nýjum búvörusamningum. Við vorum að greiða fyrstu gripagreiðslurnar til geitfjárbænda í síðasta mánuði. Þetta eru um hundr að geitfjáreigendur með um þúsund geitur,“ segir Jón Baldur. Innlausn á mjólk Jón Baldur segir að frá áramótum hafi verið einn innlausnardagur fyrir mjólk og að hann hafi verið líflegur. „Á þessum eina degi innleysti ríkið greiðslumark fyrir um eina milljón lítra af mjólk en eftirspurnin var rúmlega tvær milljónir lítra. Það fengu því ekki allir allt það magn sem þeir vildu kaupa. Úthlutun fór því eftir reglum um forgangshópa í samræmi við reglugerð um stuðning við nautgriparækt.“ 1. maí verður svo annar innlausn- ardagur og segist Jón Baldur ekki eiga von á að hann verði jafn líflegur og sá fyrri. Lífræn ræktun „Stjórnvöld auka stuðning til aðlögun- ar að lífrænum framleiðsluháttum einnig umtalsvert frá því sem áður var. Árlega verður varið á samningstíman- um um 35 milljónum króna, í stað 3,5 milljóna áður. Stuðningur við hvern framleiðanda getur að hámarki numið 50% af árlegum aðlögunarkostnaði. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar, eigi síðar en 15. maí ár hvert.“ Jarðræktarstyrkir og landgreiðslur „Á þessu fyrsta ári nýs samnings eykst vægi jarðræktar í stuðningi ríkisins við landbúnað til muna. Á síðasta ári voru veittar um 237 milljónir í jarðræktar- styrki en í ár veitir ríkið alls um 618 milljónir í jarðræktarstyrki og land- greiðslur, þar sem landgreiðslustyrkur er nýr styrkjaflokkur. Búnaðarsamböndin sjá að úttektir og auknar kröfur eru gerðar varðandi túnkortagerð. Við höfum fundað með Landmælingum Íslands um sam- vinnu varðandi landupplýsingakerfi, og það hefur verið nefnt að möguleiki væri á að nýta gervitunglamyndir á vegum Evrópusambandsins. Mér er sagt að myndirnar séu það nákvæm- ar að það megi sjá hvað er verið að rækta á hverri spildu, en það hlýtur að auðvelda allt eftirlit.“ /VH Matvælastofnun auglýsir eftir umsækjendum vegna nýliðunarstuðnings í samræmi við Nýliðunarstuðningur er veittur til fjárfestinga í búrekstri. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. 1. maí 2017. www.mast.is Nýliðunarstuðningur Auglýst er eftir umsækjendum Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri Búnaðarstofu hjá Matvælastofnun. Mynd / smh

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.