Bændablaðið - 06.04.2017, Page 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
ræktun á jarðarberjum utandyra
ætti að geta verið arðvænleg hér
á landi.
„Jarðarberjarækt í Evrópu á
víða undir högg að sækja vegna
sjúkdóma og aukinnar eiturefna-
notkunar og í flestum tilfellum eru
það sjúkdómar sem ekki þekkjast
á Íslandi. Að mínu mati er það líka
kostur að jarðarber sem ræktuð eru
utandyra á Íslandi verða aldrei eins
stór og fyrir vikið bragðbetri en
jarðarber sem ræktuð eru í Suður-
Evrópu.
Önnur áhugaverð tegund fyrir
Ísland er hafþyrnir, Hippophae
rhamnoides, Við erum með í
ræktun afbrigði sem er blending-
ur milli hafþyrnis sem vex villtur
í Finnlandi og stórvaxinnar haf-
þyrnistegundar frá Rússlandi.“
Hafþyrnir er sérbýlisplanta og
því þarf bæði kyn til að frjóvgun
geti átt sér stað og plantan þrosk-
að aldin. Leif segir að plöntur
sem eru blendingar milli finnsku
og rússnesku tegundanna kallist
Ottó og Eva eftir kyni og að ekki
sé annað að sjá en að þær dafni
vel í Lepplax, sem er á svipaðri
breiddargráðu og Reykjavík.
Kirsuber frá Kanada
„Helsta nýjungin í gróðrarstöðinni
er nýtt afbrigði af kirsuberjum
sem upprunnið er í Kanada. Berin
þroskast snemma og eru mjög
bragðgóð og sæt. Ég er nokkuð
viss um að þetta afbrigði henti vel
á Íslandi þar sem það er harðgert
og tekur ekki á sig mikinn vind
vegna þess hversu lágvaxið það er.
Leif segist sannfærður um að enn
sé hægt að finna fjölda afbrigða af
ávaxtatrjám og berjarunnum sem
geti vaxið og gefið aldin á Íslandi.
„Við erum rétt að byrja að skoða
allan þann fjölda sem er á boðstól-
um og ef við gefum okkur tíma og
prófum okkur áfram þá eigum við
eftir að ná árangri.“ /VH
Leif Blomqvist á ráðstefnu um berjarækt sem haldið var á Hótel Sögu 12.
mars síðastliðinn. Myndir / TB
Jón Kr. Arnarson, garðyrkjufræðingur og kennari við Landbúnaðarháskóla
Íslands, Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur og Leif Blomqvist.
Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður
Garðyrkjuskóla LbhÍ.
Áhugasamt ræktunarfólk hlustaði af mikilli athygli á fyrirlestra um berjarækt.
Guðmundur Steinsson, Margrét María Leifsdóttir og Hallur Hróarsson.
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Við fjármögnum
atvinnutæki