Bændablaðið - 06.04.2017, Page 43

Bændablaðið - 06.04.2017, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Skógræktin fær rúmar tutt- ugu milljónir króna úr Framkvæmdasjóði ferðamanna- staða á þessu ári til verkefna á fjórum svæðum í hennar umsjá. Hæsti styrkurinn, 15 milljónir króna, rennur til stígagerðar og viðhalds á Þórsmerkursvæðinu en einnig rennur fé til verkefna við Hjálparfoss, Laxfoss og á Kirkjubæjarklaustri. Í sumar verður unnið að lokafrá- gangi á bílastæði við Hjálparfoss og voru veittar 1,2 milljónir króna í styrk vegna þess verkefnis. Úr sjóðnum renna einnig 2,5 millj- ónir króna til smíði stiga og milli- palla að útsýnisstað sem nýlega var gerður við Laxfoss í Norðurá í Borgarfirði og verður féð nýtt til lokafrágangs þar. Til þjóðskógar- ins á Kirkjubæjarklaustri renna 1,5 milljónir króna til áframhaldandi viðhalds, endurbóta, uppgræðslu og afmarkana á gönguleiðum í Klausturskóginum og ofan við Systrafoss. Til uppbyggingar og viðhalds gönguleiða á Þórsmerkursvæðinu fær Skógræktin 15 milljónir króna úr sjóðnum til að vernda náttúru, bæta aðgengi og auka öryggi ferða- manna. Þórsmörk og Goðaland eru eitt mikilvægasta svæði landsins fyrir gangandi ferðamenn en gönguleiðir þar krefjast umfangs- mikils viðhalds og uppbyggingar vegna brattlendis og rofgjarns jarð- vegs. /MÞÞ Skógræktin hlýtur rúmar tuttugu milljónir króna til endurbóta á nokkrum þeirra ferðamannastaða sem stofnunin hefur umsjón með. Í sumar verður lokið við endurbætur sem unnið hefur verið að við Hjálparfoss undanfarin misseri. Myndir: Hreinn Óskarsson. Framkvæmdastjóður ferðamanna: Skógræktin fær 20 milljónir til fjögurra verkefna Íslenskt timbur og endurnýtt rör nýtt í tröppur í Klausturskógi. Þær aðferðir sem þróaðar hafa ver- ið við stígagerð á Þórsmörk nýtast vel í þjóðskógunum. Mannvirkin eru notað eins og mögulegt er. Myndin er úr Klausturskógi og sést til bæjar neðan skógarins. Ferðafólk í Klausturskógi er nú mun öruggara en áður var enda hefur aðstaðan verið bætt til muna. Hér sést til Systrafoss sem hefur mikið Við Hjálparfoss hefur Skógræktin stöðvað rof vegna átroðnings ferða- manna með því að nýta íslenskan við og jarðefni til stíga- og pallagerðar. Bonito ehf. • Friendtex • Praxis Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is 45238 Str. 36-42 25390 Str. 36-41 Mikið úrval af vinnufatnaði fyrir eldhús og veitingastaði Bómullarbolir, svuntur og mikið af fatnaði sem þolir 95° þvott og þarf ekki að strauja Tilboðsdagar vegna góðs gengis 25360 Str. 36-42 920020 Str. 39-46 25090 Str. 36-42 25290 Str. 36-42 ...Þegar þú vilt þægindi Drifskaftshlífar, passa á 90% allra drifskafta, 11 legur fylgja hverri hlíf Minni hlíf, A2-A3: 11.900kr Stærri hlíf, A4-A8: 19.900kr Rúllugreip með tindum 175.000kr Sendum um land allt!! Eurofestingar 12.200kr parið Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.