Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 46

Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Stöðnun er verulega óholl til lengd- ar. Að komast upp úr stöðnun getur þurft átak. Átakið Heimaslóð var hugsað til að efla bjartsýni og framfarahug. Sumarið 2015 var lagt af stað með verkefnið á vegum Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga (BSSÞ) og Búnaðarsambands Norður-Þingeyinga (BSNÞ). Megin markmið verkefnisins var að efla búskap, greina tækifæri og koma góðum verkefnum í réttan farveg. Unnsteinn Snorri Snorrason bútækniráðgjafi var ráðinn sem verk- efnastjóri. Bændum gafst kostur á að skrá sig í verkefnið og fengu þeir þannig verkefnastjóra í heimsókn sér að kostnaðarlausu. Hlutverk hans var að vinna að þeim verkefnum sem hver og einn var að fást við og fá til samstarfs þá aðila sem hentuðu hverju verkefni. Bændur greiddu fyrir vinnu umfram þann tíma sem fór í heimsókn og samantekt eftir heimsóknina. Samstarfsverkefni Verkefnið var frá upphafi sam- starfsverkefni BSSÞ, BSNÞ, Félags sauðfjábænda Suður-Þingeyjarsýslu og Félags Þingeyskra kúabænda. Sparisjóður Suður-Þingeyinga, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hafa jafnframt verið þátttakendur í verkefninu. Fleiri samstarfsaðila mætti nefna eins og MATÍS og Þingeyjarsveit. Verkefnið var styrkt af Framleiðnisjóði land- búnaðarins og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga. Að auki var verkefnið fjármagnað af BSSÞ, BSNÞ og tekj- um af seldri þjónustu. Fjölbreytt verkefni Alls hafa um 65 bændur verið heimsóttir á vegum verkefnisins í báðum sýslum. Þannig má segja að stór hluti starfandi bænda á svæðinu hafi verið virkir þátttakendur. Þá hafa verið haldnir fundir og erindi á vegum verkefnisins við ýmis tækifæri. Verkefnin sem hafa verið unnin eru af ýmsum toga. Mörg tengjast endurbótum á aðbúnaði gripa eða vinnuastöðu. Ættliðaskipti eru aðkallandi verkefni. Þau geta verið flókin úrlausnar t.d. þar sem eignarhald jarða er dreift. Þar hefur Ráðgjafarmiðstöðin spilað lykilhlut- verk. Út frá verkefninu Heimaslóð hafa jafnvel sprottið upp hliðarverk- efni. Þannig var settur saman hópur allra þeirra aðila sem hafa áhuga á heimavinnslu afurða og skipulagt námskeið fyrir þá. Námskeiðið hlaut m.a. styrk hjá Framleiðnisjóði land- búnaðarins. Námskeiðið fólst í því að fara með þátttakendur í gegnum þau skref sem þarf að taka þegar verið er að þróa vörur til heimavinnslu. Gæðastýringu, innra eftirlit, vinnslu- aðferðir, útlit og umbúðir og svo mætti áfram telja. Starfsmenn Matís komu að þessu verkefni og hefur Matarsmiðjan á Laugum nýst vel fyrir þetta starf. Þar er aðgengi að vottaðri aðstöðu sem gerir aðilum kleift að hefja fram- leiðslu á vörum án þess að þurfa að leggja í mikla fjárfestingu í upphafi. Kúabændur huga að framkvæmdum Stór hluti kúabænda á svæðinu tók þátt í verkefninu. Haustið 2016 voru haldnir fundir á 7 stöðum með kúabændum. Reynt var að hafa fundina ekki of fjölmenna, þannig að hver og einn gæti komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Fundirnir voru óformlegir og þannig skap- aðist stemning sem minnti frekar á spjall bænda við eldhúsborðið en eiginlegan fagfundi. Alls mættu 90% allra starfandi kúabænda á svæðinu á fundina. Markmið fundanna var fyrst og fremst að átta sig á þeirri framtíðarsýn sem bændur höfðu. Almennt má segja að sú óvissa sem ríkt hafði um rekstrarskilyrði greinarinnar hafi haldið aftur af framkvæmdum á svæðinu. Hluti bænda er enn með fram- leiðslu í básafjósum og eru þeir ýmist búnir að gera endurbætur á sinni aðstöðu eða ætla sér að ráðast í endurbætur á komandi árum. Heilt yfir má þó segja að það sé mikill sóknarhugur í þingeyskum kúa- bændum sem m.a. kom fram í mikl- um fjölda umsókna um fjárfestinga- stuðning samkvæmt reglugerð um stuðning í nautgriparækt. En um 1/3 af starfandi bændum á svæðinu sóttu um styrk til framkvæmda á þessu ári. Þar að auki eru fjölmargir bændur sem eru að huga að framkvæmdum á næstu árum. Afleysingar Eitt er það verkefni sem hvað flest- ir kúabændur vilja að hugað sé að. Það er að efla skipulag á afleys- ingaþjónustu bænda. Eftir því sem bændum fækkar verður erfiðara að sækja sér aðstoð innan sveitar þegar slíkar aðstæður koma upp. Þá vilja bændur hafa aðgang að afleysingu með reglulegum hætti til að komast í frí frá búskapnum. Hvort svo sem menn ætli sér af bæ eða einfaldlega njóta þess að vera í fríi heima hjá sér. Þá nefna bændur líka að skipulagt afleysingakerfi nýtist þegar upp koma skyndileg veikindi eða slys. Einhvers konar skipulag afleys- inga hefur verið reynt með ýmsum hætti um allt land. Árangurinn hefur verið misjafn, en oft hefur tekist vel til. Þetta þarf landbúnaðurinn í heild að skoða og má þar t.d. nefna að horft sé til árangurs Norðmanna á þessu sviði, en þar er afleysinga- þjónusta búin að vera rótgróin í ára- tugi og mikilvægur þáttur í rekstrar- skilyrðum greinarinnar. Ferðaþjónustan í mikill sókn Það er ekki ofsögum sagt að ferða- þjónusta hafi verið mörgum þátttak- endum Heimaslóðar ofarlega í huga. Bæði eru margir nú þegar komnir í ferðaþjónustu samhliða sínum búrekstri og fleiri sjá sér tækifæri í greininni. Sumir eru að huga að gistingu, aðrir að afþreyingu, þannig hafa menn ólíka snertifleti við ferða- þjónustuna sem skapar samlegðar- áhrif. Með aukinni afþreyingu á svæðinu stoppa ferðamenn lengur sem fjölgar gistinóttum og keyptri þjónustu. Unnið er að því að koma mat- vöru úr héraði á diska ferðamanna en sívaxandi áhugi er meðal þeirra sem sækja landið heim að neyta þeirrar fjölbreyttu flóru matvæla sem framleidd eru á svæðinu. Hins vegar er þörf á því að gera fyrirtækj- um það auðveldara að nálgast slíkar vörur. Hér er einnig gullið tækifæri fyrir þá sem eru í heimavinnslu að koma vörum sínum á markað í sinni heimasveit. Á vegum heimaslóðar- verkefnisins er unnið að því að koma vörum úr heimabyggð til hótela og veitingastaða á svæðinu sem stuðlar bæði að auknu framboði á matvöru úr héraði en er einnig mikilvægur hlekkur í að minnka akstur og auka sjálfbærni. Framhald verkefnisins Það er auðvitað erfitt að meta árangur af svona verkefni enda er hann ekki orðinn áþreifanlegur. Heimaslóð hefur komið hugmynd- um af stað sem annars væru ekki komnar upp á yfirborðið og haft verulega jákvæð áhrif í héraði. Fjöldi þátttakenda var fram úr björtustu vonum. Ætlunin er að verk efnið Heimaslóð fái að lifa áfram, þróast og styðja með virkum hætti við búskapar- og atvinnuþró- un á svæðinu. En eitt er ljóst, verk- efnið hefur skilað fleiri broshýrum bændum Unnsteinn Snorri Snorrason, verkefnastjóri Heimaslóðar Heimaslóð ÞEKKIR ÞÚ EINHVERN SEM SKARAR FRAM ÚR Í MATVÆLAGEIRANUM? N O R R Æ N U M A T A R V E R Ð L A U N I N „Embla“ eru ný norræn matarverðlaun sem er ætlað að hampa norrænni matarmenningu. Þessa dagana er verið að safna tilnefningum frá Íslandi. Það eru bændasamtök á Norðurlöndunum í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina sem veita verðlaunin. Á vefsíðunni emblafoodaward.com er tekið við tilnefningum í sjö flokka sem eru: - Matvælaiðnaðarmaður Norðurlanda 2017 - Hráefnisframleiðandi Norðurlanda 2017 - Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir marga 2017 - Matarblaðamaður Norðurlanda 2017 - Mataráfangastaður Norðurlanda 2017 - Matvælafrumkvöðull Norðurlanda 2017 - Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir börn og ungmenni 2017 Skráningarfrestur til hádegis þann 17. apríl 2017. Skráningareyðublöð fyrir flokkana sjö (á íslensku) er að finna á www.emblafoodaward.com, en þar má einnig fræðast betur um verðlaunin og tilurð þeirra. Á FAGLEGUM NÓTUM Vel var mætt þegar kynning á verkefninu fór fram í félagheimilinu Ýdölum 20. Ágúst 2015. Mynd / Unnsteinn Snorri.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.