Bændablaðið - 06.04.2017, Page 49

Bændablaðið - 06.04.2017, Page 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 kregðubreytingar. Það má þó ætla að sjúkdómurinn, þar sem hann er til staðar, geti ágerst þegar líður á haustið. Margt er enn á huldu varðandi meingerð, sjúkdómsframgang og önnur mikilvæg atriði í sjúkdómsmynd kregðu. Vegna þessara mörgu vafaatriða teljum við að svo stöddu ekki vera tímabært að halda áfram tilraunabólusetningum. Aftur á móti teljum við æskilegtr að fara út í frekari kortlagningu á kregðubreytingum í lungum sláturlamba til viðbótar við þau svæði sem þegar hafa verið tekin út (Þórarinsdóttir GE, 2014). Slík kortlangning þyrfti helst að ná yfir lengra tímabil, helst nokkur ár. Þetta þyrfti að gera til að fá gleggri mynd af áhrifum veðurfars og annarra þátta á kregðuvandamál í búfé. Þessu til viðbótar teljum við að það þurfi að vinna að rannsóknum á því hvernig smit á sér stað og hvernig fyrstu stigum sjúkdómsins vindur fram. Þetta þarf að skoða bæði við náttúrulegar aðstæður og með tilraunasmiti til að meta betur klínísk einkenni og vefjameinfræði kregðusmits og áhrif þess á heilsufar sauðfjár. Í ljósi þessarra niðurstaðna hefur nú verið stofnaður vinnuhópur um öndunarfærasjúkdóma í saufé, með aðkomu Fagráðs í sauðfjárrækt, Landbúnaðarháskóla Íslands, Matvælastofnunar og Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Þessi hópur mun vinna að því að greina betur vandamálið "hósti í fé". Charlotta Oddsdóttir, Eggert Gunnarsson, Einar Jörundsson, Ólöf G. Sigurðardóttir, Vala Friðriksdóttir og Vilhjálmur Svansson. Tilvitnanir: Friss NF et al. (1976). Mycoplasma ovipneumoniae demonstrated in Icelandic sheep. Acta Vet Scand, 17 255-257 Gaylor ME (2007). Maturity of the Lamb Immune System. Honors thesis. College of Agriculture and Life Sciences, Department of Animal Sciences, Cornell University, Ithaca, NY. Sheehan M et al. (2007). An aetio- pathologial study of chronic bronchopneumonia in lambs in Ireland, Vet J, 173 630-637. Ziegler JC et al. (2014). Safety and immunogenicity of a Mycoplasma ovipneumoniae bacterin for domestic sheep (ovis aries). PLoS ONE 9(4): e95698. doi:10.1371/journal.pone.0095698 Þórarinsdóttir GE (2014). Prevalence of bronchopneumonia in sheep in South-West to South-East Iceland; Slaughterhouse survey, Master‘s Thesis, Det Sundhedsvindenskabelige Fakultet Københavns Universitet. ...frá heilbrigði til hollustu Núverandi staða varnarhólfa Eins og flestir búfjáreigendur vita er landinu skipt upp í 26 varnarsvæði með svokölluðum varnarlínum sem ýmist eru girðingar eða náttúrulegar hindranir. Til að auðvelda eftirlit eru mismunandi litir hafðir á eyrnamerkjum í sauðfé eftir því hvaða varnarhólfi það tilheyrir. Samkvæmt núgi ldandi reglugerðum og lögum er ekki heimilt að flytja lifandi jórturdýr milli varnahólfa, þ.e.a.s. yfir varnarlínur nema sótt sé um leyfi hjá Matvælastofnun. Varnarlínurnar gegna mikilvægu hlutverki í aðgerðum sem lúta að upprætingu sjúkdóma á borð við riðuveiki og garnaveiki. Sömuleiðis geta varnarlínurnar haft mikla þýðingu við að stemma stigu við útbreiðslu nýrra smitsjúkdóma. Sjúkdómastaða sauðfjár með tilliti til riðu og garnaveiki er misjöfn á milli varnarsvæðanna og jafnvel innan sama svæðis og gilda því mismunandi reglur um flutninga á lifandi jórturdýrum frá og innan þessara svæða. Ef riðuveiki greinist á bæ er varnarsvæðið talið sýkt í 20 ár frá næstu áramótum þess árs sem síðasta tilfelli er staðfest. Ósýkt varnarsvæði eru svæði þar sem riða hefur ekki greinst síðastliðin 20 ár. Á fjórum varnarsvæðum á landinu hefur aldrei greinst riða og eru þetta einu svæðin sem flytja má líflömb frá, yfir varnarlínur, með leyfi frá Matvælastofnun. Hvorki er leyfilegt að flytja líffé inn í þessi líflambasöluhólf né á milli þeirra til að verja þau eftir fremsta megni gegn smitsjúkdómum. Á ósýktum svæðum eru engar takmarkanir settar á flutninga með lifandi fé milli hjarða innan svæðanna. Ekki má hinsvegar flytja fé yfir varnarlínur. Til að kaupa líflömb inn á ósýkt varnarsvæði þarf að sækja um leyfi til Matvælastofnunar, sbr. reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða, með síðari breytingum. Á sýktum svæðum eru allir flutningar á fé milli hjarða innan svæðanna og frá þeim (yfir varnarlínur) bannaðir, sbr. reglugerð nr. 651/2001. Til að kaupa líflömb inn á sýkt varnarsvæði þarf að sækja um leyfi til Matvælastofnunar. Sé fé flutt án leyfis yfir varnarlínur eða innan sýktra svæða er fénu lógað og getur brotið varðað sekt og jafnvel brottfellingu úr gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu. Línubrjótum er lógað skv. ákvæðum reglugerðar. Ef garnaveiki eða riða greinist taka í gildi ákveðnar takmarkanir varðandi flutning á gripum, búfjáráburði og heyi, heykögglum, hálmi, túnþökum, gróðurmold, ull, tækjabúnaði og jarð- og heyvinnslutækjum. Ef garnaveiki greinist er óheimilt að: • Láta til lífs sauðfé, geitur eða nautgripi frá bænum í tíu ár frá síðustu greiningu eða vanrækslu á bólusetningu. Bæir sem taka við jórturdýrum frá garnaveikibæjum í andstöðu við þetta ákvæði teljast garnaveikibæir jafn lengi og sá bær sem gripirnir eru frá. • Flytja af garnaveikibæjum búfjáráburð og hey, heyköggla, hálm, túnþökur og gróðurmold af landi sem húsdýraáburður hefur verið borinn á eða jórturdýr gengið á. • Flytja ull frá garnaveikibæjum óunna á aðra bæi. • Flytja af garnaveikibæjum tæki sem hafa verið notuð til moksturs, flutnings, dreifingar eða niðurplægingar á húsdýraáburði á garnaveikibæjum nema fullnægjandi sótthreinsun hafi farið fram. • Flytja af garnaveikibæjum jarð- og heyvinnslutæki nema fullnægjandi þrif hafi farið fram. Ef riða greinist er óheimilt að: • Flytja milli bæja innan sýktra svæða og áhættusvæða hvaðeina, sem getur borið smitefni milli staða, svo sem hey, heyköggla og hálm, húsdýraáburð, túnþökur og gróðurmold nema með leyfi héraðsdýralæknis og að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: a. hey sé allt í plöstuðum stór- böggum eða rúllu, b. þökur séu aðeins notaðar á svæðum þar sem sauðfé kemst ekki að. • Flytja ull á milli bæja nema með leyfi héraðsdýralæknis. • Flytja fjárklippur, markatengur, lyfjadælur og annan tækjabúnað, sem óhreinkast hefur af fé eða hugsanlega smitmengast á annan hátt á sýktu svæði, til nota í landbúnaði á ósýktu svæði, án vottorðs frá héraðsdýralækni um að fullnægjandi sótthreinsun hafi átt sér stað. Athugið að aðilar sem fara milli sóttvarnarsvæða, sýktra svæða, áhættusvæða eða ósýktra svæða, með tækjabúnað til landbúnaðarstarfa skulu fá leyfi héraðsdýralæknis og vottorð um að fullnægjandi sótthreinsun hafi átt sér stað. Þessi tæki og önnur sem óhreinkast af sauðfé á sýktum svæðum skulu sótthreinsuð samkvæmt fyrirmælum héraðsdýralæknis að lokinni notkun á hverjum stað/jörð. Lesa má nánar um þessar takmarkanir í reglugerðum um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar nr. 651/2001 og í reglugerð um garnaveiki og varnir gegn henni nr. 911/2011. Hér verður farið yfir stöðu sérhvers hólfs miðað við stöðuna í dag. 1. Landnámshólf Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Breiðabólstað árið 2003. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2023 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. Sýkt svæði: Sveitarfélögin Ölfus, Hveragerði og Árborg og Grafningur í Grímsnes- og Grafningshreppi. 2. Vesturlandshólf Bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. 3. Snæfellsneshólf Bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. Líflambasöluhólf. 4. Dalahólf Hætt að bólusetja við garnaveiki árið 2011. Hreint hólf með tilliti til riðu. 5. Vestfjarðarhólf eystra Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. Líflambasöluhólf. 6. Vestfjarðarhólf vestra Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. 7. Miðfjarðarhólf Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. 8. Vatnsneshólf Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Neðra-Vatnshorni árið 2015. Riðusýkt til 31. desember, 2035 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 9. Húnahólf Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Kambhóli árið 2007. Riðusýkt til 31. desember, 2027 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 10. Skagahólf Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli á Stóra-Gröf ytri árið 2016. Riðusýkt til 31. desember, 2036 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 11. Tröllaskagahólf Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli í Dæli árið 2009. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2029 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. Sýkt svæði: Dalvíkurbyggð norðan Hámundarstaða. 12. Grímsey Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. 13. Eyjafjarðarhólf Bólusett við garnaveiki. Hreint hólf með tilliti til riðu. 14. Skjálfandahólf Bólusett við garnaveiki í Skútu- staðahreppi. Síðasta riðutilfelli á Lóni árið 1999. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2019 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. Ósýkt svæði: Skútustaðahreppur, Engidalur og Lundarbrekka og bæir þar fyrir sunnan. Sýkt svæði: Önnur svæði í hólfinu. 15. Norðausturhólf Bólusett við garnaveiki í Jökuldal og Jökulsárhlíð austan (sunnan) Smjörfjallalínu. Síðasta riðutilfelli á Brú árið 1997. Riðusýkt hólf að hluta, til 31. desember, 2017 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. Líflambasölusvæði í N-Þingeyjarsýsluhluta hólfsins. Sýkt svæði: Jökuldalur og Jökulsárhlíð austan (sunnan) Smjörfjallalínu. 16. Héraðshólf Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli í Heiðarseli árið 1997. Riðusýkt til 31. desember, 2017 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 17. Austfjarðarhólf Ekki bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli Hátún/Ós árið 1997. Riðusýkt til 31. desember, 2017 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 18. Suðurfjarðarhólf Bólusett við garnaveiki í Breið- dals hreppi austan Breiðdals ár. Síðasta riðutilfelli á Gilsárstekk árið 2005. Riðusýkt til 31. desember, 2025 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 19. Suðausturlandshólf Bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu. 20. Öræfahólf Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu. Líflambasöluhólf. 21. Eyjafjalla- og Vestur Skaftafellssýsluhólf Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu. 22. Rangárvallahólf Bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu. 23. Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf Bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli Hurðabak árið 2010. Riðusýkt til 31. desember, 2030 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 24. Biskupstungnahólf Ekki bólusett við garnaveiki. Síðasta riðutilfelli í Gýgjar- hólskoti árið 2004. Riðusýkt til 31. desember, 2024 að því gefnu að engin ný tilfelli komi upp. 25. Grímsnes- og Laugardalshólf Bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu. 26. Vestmannaeyjar Ekki bólusett við garnaveiki. Hreint með tilliti til riðu. Ítarefni má lesa inni á www. althingi.is og www.reglugerd.is • Lög nr. 25/1993 um dýrasjúk dóma og varnir gegn þeim • Reglugerð nr. 651/2001 um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, með síðari breytingum • Reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni, með síðari breytingum • Reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða Sigrún Bjarnadóttir, dýralæknir sauðfjár- og nautgripasjúkdóma Fé á afrétti í Skaftárhreppi. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.