Bændablaðið - 06.04.2017, Page 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Hrossabændur - hestamenn!
Vantar hross til slátrunar á næstu vikum.
Forðist biðlista í haust.
Sláturpantanir í síma 480 4100.
Sláturfélag Suðurlands
Selfossi
AÐALFUNDARBOÐ
Aðalfundur Beint frá býli, félags heimavinnsluaðila, verður
haldin 8. apríl 2017 í Litlu sveitabúðinni í Nesjum í Hornafirði
og hefst klukkan 13:00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundarsetning.
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
3. Ávörp gesta.
4. Erindi.
5. Skýrsla formanns (stjórnar) félagsins um starfsemi á liðnu ári.
6. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár lagðir fram
til afgreiðslu. Umræður um skýrslu formanns og reikninga.
7. Breytingar á samþykktum BFB.
8. Kosning aðalstjórnar og varastjórnar.
9. Kosning tveggja skoðunarmanna.
10. Árgjald ákveðið.
11. Önnur mál sem félagið varðar.
Athygli er vakin á því að lagðar verða fram tillögur að breytingum
á samþykktum og verða þær sendar félagsmönnum í tölvupósti.
Að fundi loknum verður boðið upp á kvöldverð í boði félagsins
í Litlu sveitabúðinni, fyrrum húsnæði N1.
Stjórnin.
ÓMISSANDI Í SAUÐBURÐINN
LAMBBOOST OG FLORYBOOST eru fæðubótarefni sem verka styrkjandi og
efla ónæmiskerfi unglamba. 100% náttúrulegar vörur sem löngu hafa sannað sig.
Auðvelt í notkun, þarf ekki að blanda og kemur með íslenskum leiðbeiningum.
Nánari upplýsingar hjá dýralæknum og umboðsaðila www.dyraheilsa.is
Lambboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Heilbrigð þarmaflóra – Mjólkursýrugerlar
Eflir ónæmiskerfið – Broddur
Örvandi – Jurtakraftur (kóla, gúarana)
Eykur líkamlegan styrk – Flókin samsetning vítamína og járns
Eykur orku – Nauðsynlegar fitusýrur, glúkósi, þríglyseríðar
LAMBBOOST
FLORYBOOST
Floryboost stuðlar að jafnvægi þarmaflórunnar og
saltbúskap líkamans þegar meltingartruflanir gera vart við sig.
Verndar þarmana – Viðarkol og leir sem draga í sig eiturefni
Kemur jafnvægi á saltbúskap líkamans – Natríumklóríð,
magnesíumklóríð, kalíumklóríð og fosföt
Eykur orku – Dextrósi
Styrkir erta slímhúð – Nauðsynlegar olíur unnar m.a. úr rósmaríni,
cajeput, timótei og thymol
Síðumúla 30 - Reykjavík
Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri
Sími 462 3504
bíður uppá alhliða lausn fyrir
hótelherbergið eða gistiheimilið.
veggi fjóssins. Flest þeirra snéru
eingöngu að dönskum aðstæðum
eins og gengur og gerist s.s. um
val á heppilegu grasfræi, verkun á
maísvotheyi, notkun á hugbúnaði
SEGES til þess að halda utan um
fóðuröflunina, lagerstjórnun þegar
fóðrið er komið í stæðu og svo um
fóðrunina sjálfa.
Samkeppni gull-ráðunautanna
Af mörgum góðum erindum var
etv. áhugaverðast að heyra um
gull-ráðunautana en árið 2016 var
efnt til samkeppni allra nautgripa-
ráðunauta í Danmörku og þeir sem
gátu skilað bestum árangri, mælt
sem framgangur og hagkvæmni
fóðrunar hjá útvöldum kúabúum.
Þrír ráðunautar stóðu uppi sem
sigurvegarar. Þau greindu svo frá
því hvað þurfti til, til þess að vinna
þessa skemmtilegu samkeppni.
Heilt yfir má líklega draga
saman niðurstöður ráðunautanna í
það að það er mikilvægt að draga
saman mikið af gögnum frá þeim
búum sem unnið er með, standa
fyrir verklegum fundum með mörg-
um bændum, fara í heimsóknir til
bænda á álagstímum til þess að fá
rétta tilfinningu fyrir því sem þarf
að gera og kynna sér vel vinnubrögð
bænda með því að prófa sjálf(ur)
að grípa í verkin. Ella verði erfitt
að setja sig vel inn í verkin og fyrir
vikið er hætta á að ráðgjöfin hitti
ekki í mark.
10. Samvinna
Í þessari málstofu var lögð áhersla
á bústjórn og voru flutt átta erindi
í málstofunni. Sjö þeirra fjölluðu
með einum eða öðrum hætti um
mannahald og það að stjórna mörgu
starfsfólki á búum og etv. á erindi
þeirra ekki beint við á Íslandi. Eitt
erindið fjallaði um slysahættu við
bústörf á kúabúum. Þar kom m.a.
fram að algengustu slysin sem
verða á kúabúum verða þegar verið
að er ragast í nautgripum. Þar á eftir
koma vélaslys og þá slys vegna
falls. Þessar upplýsingar komu frá
fulltrúa danska vinnueftirlitsins og
koma trúlega heim og saman við
tíðni slysa á kúabúum hér á landi.
11. Sérfundir um einstök kúakyn
Síðasta málstofa fagþingsins voru
svokallaðir kvöldfundir félaganna
sem standa á bak við einstök kúa-
kyn í Danmörku og mætti eiginlega
segja að um þrjár aðskildar málstof-
ur sé að ræða, þ.e. fyrir kúabændur
með rauðar danskar kýr (RDM),
kúabændur með Jersey kýr og svo
hinn stóra hóp kúabænda með
svartskjöldóttar kýr (Holstein). Á
þessum kvöldfundum eru tekin fyrir
innri málefni félaganna en alltaf
fengnir fyrirlesarar einnig til þess
að brjóta fundina upp.
Allt framlagt efni og flest erindi
fagþingsins er hægt að hlaða niður
af heimasíðu fagþingsins: www.
kvaegkongres.dk. Þá voru ennfrem-
ur mörg tekin upp með svipuðum
hætti og margir lesendur þekkja frá
t.d. Veffræðslukerfi Landssambands
kúabænda. Þar má hlusta og horfa á
upptökur þeirra fyrirlestra. Rétt er
að geta þess að mest allt efni er á
dönsku en þó er hluti þess á ensku.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Sviðsstjóri mjólkurgæðasviðs
Dýralækninga- og gæðadeild
SEGES í Danmörku
Frá Kvægkongres, Fagþingi nautgriparæktarinnar í Herning í Danmörku.
SKAGFIRÐINGAR - NÆRSVEITAMENN
Húsdýraundirburður
Erum með innlendan undirburð á góðu verði. Keyrum heim á bæi
ef keypt eru heil bretti.
Upplýsingar og pantanir hjá Gunnari Óla í Stokkhólma.
Sími 8647747.
Veljum Íslenskt!