Bændablaðið - 06.04.2017, Page 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
„Við keyptum jörðina sum-
arið 2016 og fluttum inn á
Þorláksmessu. Við vorum með
jörðina á leigu frá 2012 til vorsins
2016. Tókum við sauðfjárbúinu
2012 ásamt að leigja jörðina þar
til við keyptum hana.
Amma og afi hans Agnars
voru ábúendur á undan okkur en
Agnar er frá bænum Hofteigi sem
er næsti bær við Hvanná 2. Agnar
er því Jökuldælingur, fæddur
og uppalinn í Jökuldal. Hann er
einnig sjálfstæður verktaki, sinnir
áburðardreifingu fyrir bændur á
Austurlandi og hefur í samstarfi
við föður sinn séð um að binda
rúllur fyrir bændur í Jökuldal.
Sjálf er ég fædd og uppalin á
Selfossi og hafði verið mikið í sveit
sem barn og unglingur,“ segir Lilja
Björnsdóttir á Hvanná 2.
Býli: Hvanná 2.
Staðsett í sveit: Jökuldal
(Fljótsdalshérað).
Ábúendur: Agnar Benediktsson og
Lilja Björnsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): 2
fullorðnir, hundurinn Tóta og kanínan
Bella.
Stærð jarðar? 43 ha ræktað land.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 570
ær, 20 hrútar, 4 hestar, 1 hundur
og 1 kanína.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Við gefum morgungjöfina saman,
svo er farið í önnur tilfallandi verk
á milli gjafa.
Lilja er í háskólanámi og reynir
að sinna því á milli gjafa þegar ekki
eru erfið verk sem þarf að vinna úti.
Einnig reynum við að stíla á að gefa
kvöldgjöfina saman en það er ekki
alltaf heilagt.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Agnar: Það er allt
skemmtilegt. Miskrefjandi eftir
árstíðum. Það eru ekki til nein
leiðinleg verk í sveitinni.
Lilja: Sauðburður, fjárat á haustin
og heyskapur er skemmtilegast.
Leiðinlegast er að þrífa og bóna bíla
og tæki.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Sem blómlegasta þrátt fyrir
krefjandi verkefni næstu ára.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Okkar skoðun er
sú að félagsmálakerfið er of stórt,
of mörg félög sem okkur finnst
vera stefna að sömu markmiðum
og endar yfirleitt á sama fólkinu í
sveitunum.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Maður vill
vera bjartsýnn. Vonandi vel.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Að lambakjöt verði ekki selt sem
einn flokkur eins og er í dag.
Að hafa upprunamerkingar í kjöti.
Markaðssetja kjötið sem gæðavöru
eins og kjötið er.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Grænmetissósa fyrir Agnar og Pepsi
Max fyrir Lilju.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Steiktir súpukjötsbitar
af veturgamalli rollu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Lilja getur verið óheppin
á haustin og ætti helst ekki að vera
í kringum hesta eða fjórhjól. Hefur
tvisvar rifið sig úr axlarlið við að
keyra fjórhjól og náði að afreka eitt
haustið að velta smalahestinum sínum
ofan í gjótu. Síðasta haust var hún
mestmegnis á bíl eða gangandi og
hefur ekki slasað sig við þá iðju
ennþá.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Hægeldaður lambaframpartur og lamba-tartar
Það eru fleiri góðir vöðvar en á
hrygg og læri og velja matgæð-
ingar nú æ meira vöðva sem
eru bragðmeiri en þurfa lengri
eldunartíma til að munnbitinn
verði mjúkur.
Slíkum vöðvum er tilvalið að
henda inn í ofn á vægum hita eða
elda í rennilásapoka í vatnsbaði
(tískubylgja sem heitir souse-vide
og er komið frá veitingastöðum og
heim til þeirra sem eru tækjaóðir)
en reglan er að leyfa kjötinu að
kryddlagerast lengur, elda það við
vægari hita og á lengri tíma.
Hægeldaður eða grillaður lamba-
frampartur
Hráefni
› 1/2 lambaframpartur á beini, eða
lambaháls sem er í tísku um þessar
mundir (bæði góður úrbeinaður og á
beini).
› Salt
› Nýmalaður pipar
› 1 búnt tímían (garðablóðberg)
› 10 hvítlauksgeirar
› 1 dl olía
› 1 tsk. nýmalaður svartur pipar
Hjúpur
› 1 msk. hunang
› 1 msk. sinnep
› 1 msk. chili-sósa
› 1 msk. sojasósa
› 2 msk. dökkur púðursykur (má nota
muscovato-sykur eða jafnvel mol ass-
es-sykur sem fæst í heilsubúðum)
Penslið kjötið með olíu og kryddið
með salti og pipar. Bakið við 60 gráð-
ur í 10–24 klukkustundir.
Gott að setja hann í ofnskúffu og
leggið hvítlauk og tímían bæði ofan
á og undir.
Svo fyrir framreiðslu, penslið þá
kjötið með hjúpnum og grillið í 2–3
mínútur í viðbót.
Ef ekki á grilli, er hægt að nota
grillpönnu eða undir grilli í bakara-
ofni áfram í u.þ.b. 10 mín. eða þar til
hann verður fallega brúnn.
Berið fram með ristuðu rótargræn-
meti og kryddjurta-hollandaise-sósu
(systursósa bernaise-sósunnar), eða
majónes-sósunni sem er hér til hliðar
– með ögn af gljáanum til skrauts.
Einnig má nota úrbeinaðan frampart
í rúllu eða lambalæri.
Lamba-tartar
Nota skal alltaf bestu gæði af lambi
sem er hægt að finna í tartar, því
hann er borðaður hrár. Gott er að
setja kjötið í frysti í 15 mínútur fyrir
skurð þá verður mun auðveldara að
meðhöndla kjötvöðvann.
Hráefni
› 1 góður bein- og fitulaus lamba-
kjötsvöðvi (um það bil 370 g)
› 1 msk. kapers, sigtaður, og saxaður fínt
› 1 msk. söxuð ferskt mynta
› 2 tsk. fínt saxaður sítrónu börkur
› 2 tsk. fínt saxaður skalottlaukur
› Ögn flögusalt
› Fersk malaður svartur pipar
› 4 eggjarauður
› Ólífuolía
› ½ sítróna
› Gott brauð
Skerið kjötið í þunnar sneiðar (til
dæmis vöðva af lambalæri). Staflið
tveimur til þremur sneiðum upp og
skerið í þunnar ræmur, þá þvert í
litla bita. Setja kjötið í skál og plast-
filmu yfir. Þegar bera skal fram
blandið lambinu saman við kapers,
myntu, sítrónubörk og laukinn í
skál. Kryddið með salti og pipar og
blandið varlega saman og setjið á
disk eða gott brauð. Smyrjið kjötið
út og gerið holu fyrir eggjarauðu í
miðjuna. Setjið eggjarauðu í hverja
holu. Penslið með olíu og kreistið
ögn af sítrónusafa yfir. Stráið meira
salti yfir eftir smekk.
Gott að framreiða með heimalöguðu
majónesi.
Heimalagað majónes með dilli
Það er vel þess virði að eyða tíu
mínútum til að fullkoma réttinn með
majónesi og góðum kryddjurtum til
skrauts.
› 1 stórt egg
› 1/4 teskeið salt
› 1 tsk. hvítvíns edik
› ½ safi úr einni sítrónu
› 3/4 bolli matarolía
› 1/4 bolli ólífuolía
› 1 tsk. ferskt eða þurrkað dill (valfrjálst)
Brjótið egg og setjið í blandara og
bætið salti við. Blandið í 2–3 sekúnd-
ur þar til grunnurinn er froðukenndur.
Bætið ediki og sítrónusafa við og
blandið áfram í 10 sekúndur.
Stillið blandarann á mikinn hraða og
hellið olíunni í mjórri bunu í blandar-
ann í hægum og jöfnum straumi.
Blandan ætti að þykkna í fallega
sósu, stundum gott að setja 1 teskeið
af vatni út í ef blandan er of þykk.
Hrærið dilli saman við eða ferskri
basiliku eða öðru uppáhalds kryddinu
þínu – og bætið jafnvel rauðrófum
við.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Lambaframpartur. Lamba-tartar.
Hvanná 2