Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 58

Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 201758 LESENDABÁS Enn um ull og brenglaða hugsun Í síðasta Bændablaði, þ. 23.3. þ.m., er grein um ull og fleira, eftir Davíð Herbertsson. Sem vinur og málsvari sauðkinda verð ég að játa að það var klausa, í þeirri að mörgu leyti ágætu grein, sem stakk mig svo í hjartað að ég get ekki orða bundist. Þar segir greinarhöfundur, eftir að hafa farið faglegum orðum um haust- og vetrarrúning, „það er ill með- ferð að láta þær vera í ullinni inni í hlýjum húsum“. En það er engin klausa, ekkert orð um illa meðferð að láta þær vera mannsberar úti í vorhretum og vor- næðingi íslenskrar veðráttu. Þetta kalla ég brenglaða hugsun og hætti ekki, meðan ég get haldið á penna, að reyna að vinda ofan af, þessari á allan handa máta, snarbrengl- uðu, ullareyðileggjandi og mann- skemmandi hugsun og framkvæmd við aðbúnað sauðfjár og útrýmingu þels af jörðinni. Sauðkindin er í eðli sínu sköpuð til útivistar. Það er brenglað að troða henni í kös inn í þröngri kró mis- jafnlega vel loftræstra húsa, meira en hálft árið, meina henni útivist og hreyfingu. Þessi langa húsvist kostar dýrari húsagerð, meira fóður, meiri vinnu og óhreinni ull, heldur en léttbyggðari hús þar sem fé liggur við opið í góðviðri, stóru baggarnir gefnir í þar til hannaðar grindur og þrifalega farið með fóður og fénað. Stórt hús og hlöðurými, hannað til að stúka sundur með léttum grind- um um sauðburð, þjónar einnig innistöðu í vondum veðrum að vetri. Það er brenglað að klæða sauð- kindina úr eðlilegri hlífðarkápu sinni, þegar vetur gengur í garð og hennar eðlislæga vörn fer að mynda þéttustu, mýkstu og hlýjustu hárin til að verjast vetrarkuldanum. Eyðileggja með því dýrmæta sér- stöðu íslensku ullarinnar, kalla fram tvöfaldan kostnað og fyrirhöfn með snoðklippingu rétt fyrir vorkulda, hret og illa líðan skjálfandi, manns- berjúgra skrokka aumingja kind- anna, sem vegna þessarar heimsku hafa nú ekkert reyfi eða skjól til að verja sig og lömbin gegn næðingn- um. Plastábreiðan, sem strengd var yfir húskróna og nýrúna skrokkana í vetur, vísfjarri, ásamt tillitssemi, meðlíðan og vörn, þegar mest á reynir .Að rýja vel fýlda kind að vorinu um leið og flutt er „á fjall“, sleppt á heiði eða aðra sumarhaga, er skemmtilegt, helmingi ódýrara og kindinni eðlilegt. Vorkuldar um garð gengnir og sumarið fram undan. Fleiri lömb, meira kjöt. Það eitt er stefnan ef stefnu skyldi kalla. Er ekki kominn tími til að hugsa sitt ráð og huga að fleiru? Var ekki í þessu sama Bændablaði klausa um „stórlega umfram“ framleiðslu á kindakjöti? Voru ekki líka að heimt- ast ær af útigöngu í einhverjum firði þarna fyrir austan, vel útlítandi ær, tvílemdar samkv. sónarskoðun, því með þeim var þarna í frelsinu tvílembingshrútur undan annarri? Búinn að sýna sitt eðli til undaneld- is. Er það ekki besta meðalhófið, 2 lömb á á? Og dugnaður til að nýta sér það sem í boði er? Maðurinn, með sitt drottnunar- og húsbóndavald, ber ábyrgð á öryggi og velllíðan skepn- unnar, sem hann hefur tekið í sína þjónustu. Hann ber einnig ábyrgð á að forða henni frá hættum, smala til byggða í tíma að hausti, stjórna beit og gjöf þegar vetrar. En talandi um ábyrgð nú á tímum, verður manni á að spyrja: Hvar er hana að finna? Varð hún kannski úti einhvers staðar á öræfum skilningsleysis og sérhyggjugræðginnar? Og enginn Fjalla-Bensi lengur til að leggja á sig leit að óheimtum manngildum trausts og ábyrgðar? Er ekki kominn tími til að staldra við og skoða áttavitann? 26.3. 2017 Guðríður B. Helgadóttir Innlend framleiðsla og færri kolefnisspor Loftslagsmálin eru mál okkar allra og við getum öll lagt okkar af mörk- um. Aukin innlend mat- vælaframleiðsla er ein leið til að fækka kolefn- issporum og tryggja fæðu-og matvælaöryggi. Að tala fyrir ábyrgð í loftslagsmálum og vilja á sama tíma auka innflutn- ing matvæla til landsins er þversögn sem gengur ekki upp. Þversögnin Matarsóunarverkefni eru almennt í tísku, og lífrænn og staðbundinn matur (local food) og fækkun kolefnisspora eru í tísku. Það þykir fínt að borða lífrænan „local“ mat og ferðamenn virðast t.a.m. sækjast sérstaklega eftir því sem og heimamenn í auknum mæli. Þess vegna skýtur það skökku við að sama fólk og talar fyrir öllum þessum fínu málum vill á sama tíma stórauka innflutning á matvælum – matvælum sem við getum vel ræktað hér á landi. Vissulega þurfum við að kortleggja betur af hvaða tegundum við ættum e.t.v. að framleiða minna af og hvers konar framleiðslu við ættum auka. Það er engum greiði gerður með því að framleiða vöru ef næg eftirspurn er ekki fyrir hendi. Aukinn innflutningur og fleiri kolefnisspor Flutningur á matvælum milli landa eykur sóun og fjölgar kolefnisspor- um. Auknir flutningar matvæla kalla á aukin afföll miðað við að fæðunn- ar sé neytt sem næst framleiðslustað. Umbúðir auka umfang vörunnar og eru oft óumhverfisvænar. Allt eykur þetta efnis- og orkunotkun og þar með eykst útblástur gróðurhúsa- lofttegunda. Að því sögðu þá væri skynsamlegt að stjórnvöld myndu beita sér fyrir aukinni innlendri mat- vælaframleiðslu og draga úr inn- flutningi, í stað þess að auka hann, þ.e. ef þeim væri alvara með því að fylgja stefnu sinni í loftslagsmálum. Þurfum frekari rannsóknir Talsmenn aukins innflutnings matvæla bera því oft við að inn- lend framleiðsla skilji líka eftir sig kolefnisspor þar sem að flytja þarf ýmis aðföng fyrir framleiðsluna til landsins. Þessir talsmenn hafa þó ekki látið rannsaka málið heldur er eingöngu um getgátur að ræða. Samtök garðyrkjubænda létu hins vegar vinna fyrir sig stórmerki- lega skýrslu fyrir ekki svo löngu síðan um kolefnis- spor garðyrkjunnar. Í henni er mjög margt áhugavert, t.d. að íslenska agúrkan skilur einungis um 44% af kolefnisspori eftir sig miðað við þá innfluttu. Við eigum mikið inni hjá garð- yrkjunni en hár raforku- kostnaður hindrar verulega nýjar fjárfestingar í garð- yrkjunni. Nauðsynlegt er að garðyrkjubændur fái sérstaka gjaldskrá. Það væri gagnlegt að hafa haldbæran samanburð kolefnisspora á innlendri og erlendri framleiðslu frá fleiri greinum en garð- yrkjunni. En auðvitað ættu kolefnissporin ekki að vera eini viðmiðunar- þátturinn heldur áhersla á fæðuöryggi þjóðarinnar og matvælaöryggi, þar sem íslensk matvara er í fremstu röð í heiminum. Matvælaframleiðsla er framtíðin Skýrsla nefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslags- breytingar, sem kom út á dögunum, er umhugsunarverð. Þar er talið að loftslagsbreytingar muni ógna fæðuöryggi jarðarbúa í framtíðinni. Mat skýrsluhöfunda er að framboð á matvælum muni ekki haldast í hendur við fjölgun jarðar- búa á næstu áratugum. Þessar fréttir kalla á að við Íslendingar metum stöðu okkar hvað varðar bæði mat- vælaframleiðslu og framleiðslu á innlendum orkugjöfum. Við þurf- um að huga að því hvað við getum lagt af mörkum í loftslagsmálum og landbúnaðurinn er hluti af lausn vandans, þar með talið framlag bænda til aukinnar framleiðslu fóð- urs og matvæla á Íslandi. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins Silja Dögg Gunnarsdóttir. Meiri vangaveltur um félagsmál Í 4. tbl. Bændablaðsins (Bbl.), 23. feb. 2017, bls. 50, er að finna pistil minn þar sem ég finn að tregðu BÍ til að veita félagsmönnum sínum upplýsingar um málefni samtak- anna, eins og ársreikninga o.fl. Sérstaklega tiltók ég að fundar- gerð aukabúnaðarþings frá í haust fyndist ekki á heimasíðu BÍ. Nú hefur verið bætt úr því en í ljós kemur að á henni eru mein- legir annmarkar. Á fundinum var lögð fram tillaga um gagngerar breytingar á samþykktum BÍ, fram kom breytingartillaga sem var svo dregin til baka. Fram kom önnur breytingartillaga, sem var samþykkt. Tilgreind eru þau þingskjöl, sem innihalda þessar tillögur, en þau er hvergi að finna í eða með fundar- gerðinni. Við, almennir félagsmenn, fáum því engar upplýsingar um hvað var verið að samþykkja né hvað var ekki samþykkt. Ég minnist þess ekki að hafa áður séð svo aumlegar fundargerðir að ekki séu a.m.k. skráðar þær tillög- ur sem samþykktar eru. Þó kastar nú tólfunum þegar lögð er fram og samþykkt tillaga um félagsgjald 2017. Efni hennar er ekki að finna í fundargerðinni, en upphæðin birtist okkur fyrst í heimabankanum eða heimsendum greiðsluseðli. (Athygli vekur að krafan er flokkuð með almennum viðskiptakröfum en ekki valgreiðslukröfum, þar sem hún á auðvitað heima). Nú sé ég engin líkindi til að þessi vinnubrögð megi rekja til neinna annarlegra hvata, heldur sé um að kenna annaðhvort vankunnáttu í fundarsköpum eða, sem mér finnst líklegra, kæruleysi. Það er eins og þetta ágæta fólk, sem sat þarna innan fjögurra veggja fundarsalarins, hafi aldrei leitt hugann að því að utan þeirra væri að finna fólk, sem hefur bæði áhuga á og hagsmuni af að vita hvað þarna er um vélað. Því hefur birting þessarar fundar- gerðar ekki slegið neitt á áhyggjur mínar af einbeittum óvilja BÍ til að gefa grasrót sinni þær upplýsingar sem eðlilegt er að krafist sé. Þann 3. mars var ársfundur sam- takanna haldinn á Akureyri. Stuttlega var frá honum sagt í Bbl. 9. mars. Var þar stiklað á stóru en þó nefndar nokkrar tölur um rekstur á vegum BÍ. Þær voru hins vegar svo óskipulega fram settar að engin leið er að fá af þeim neina trausta mynd af fjárhags- málefnum samtakanna. Nú er það svo að Bbl. er líklega fremur ætlað til almennrar ímyndar- sköpunar en fjöllunar um félagsleg eða fagleg málefni bænda, en nú set ég fram kröfu um að á heimasíðu BÍ verði settar greinargóðar upp- lýsingar um það sem fram kom á ársfundinum: • Fundargerð fundarins • Ársreikningar dótturfélaga og hlutdeildarfélaga BÍ, hvers í sínu lagi með skýringum. • Samstæðureikning móðurfé- lagsins. • Rekstraráætlun þessa árs, eink- um hvað varðar ætluð útgjöld til RML og búnaðarsambandanna. • Annað, sem máli kann að skipta í þessu sambandi. Vilji forráðamenn BÍ ekki verða við þessu stendur upp á þá að tilgreina málefnalegar ástæður fyrir því. Á heimasíðu BÍ er að finna ábendingar um ávinning manna af félagsaðild. Þar á meðal er fyrirheit um 30% afslátt af greiðslum fyrir not af forritum samtakanna. Til lítils kemur það þegar ekki er ljóst hvert listaverðið er. Eins og ég benti á í fyrri pistli mínum eru bændur nauðbeygðir til að kaupa afnot af þessum forritum að viðlögðum missi beingreiðslna úr ríkissjóði. Nú hefur ráðherra kynnt þá ætlun sína að lögbinda þetta fyr- irkomulag. Með það í huga hlýtur að vera áleitið álitamál hvort ekki sé um ólögmæta mismunun að ræða milli þeirra sem skráðir verða sem félagar í BÍ og annarra. Hvar væri þá félagafrelsið? Því vil ég ítreka þá sjálfsögðu kröfu að verðskráin verði birt, enda hafi hún hlotið staðfestingu ráðherra eins og verðskrár búnaðarsamband- anna eiga að hafa. Eins og málið er í pottinn búið verður ekki öðru trúað að óreyndu en þetta þyki sjálfsögð regla. – Sjáum hvað setur. 29. mars, 2017 Guðmundur Þorsteinsson. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.