Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201852
FÓLK&FYRIRTÆKI
Atlantsflug komið með heilsárstarfsemi á Skaftafellsflugvelli:
Með þrjár flugvélar og þyrlu og byggja upp
ferðaþjónustumiðstöð í jaðri þjóðgarðsins
Jón Grétar Sigurðsson, fram-
kvæmda stjóri Atlantsflugs, hefur
rekið útsýnisflug frá Skafta-
fellsflugvelli ásamt eiginkonu
sinni, Sveinbjörgu Eggertsdóttur,
síðan 1995. Fram til þessa hefur
það verið árstíðabundið en nú
er að verða breyting á því með
heilsársrekstri auk þess sem
búið er að taka í notkun nýja og
glæsilega flugstöð með flugskýli
fyrir allt að sex til sjö flugvélar.
„Frá því að við byrjuðum á þessu
1995 vorum við með útsýnisflug
frá Skaftafelli frá því í júní og
kannski fram í september, en
ekkert yfir vetrartímann. Við höfum
síðan rekið viðhaldsverkstæði
á Reykjavíkurflugvelli fyrir
atvinnuvélar samhliða þessu og það
hefur líka verið okkar vetrarvinna.
Þannig höfum við m.a. sinnt
viðhaldsþjónustu á þyrlunum fyrir
Norðurflug í níu ár,“ sagði Jón
Grétar í samtali við Bændablaðið.
„Síðan 1998 höfum við verið
þarna með einfalda afgreiðslu í
sumarhúsi við flugvöllinn. Í fyrra
tókum við svo þá ákvörðun að gera
breytingar á rekstrinum og fara út í
heilsársstarfsemi í Skaftafelli. Þeirri
ákvörðun fylgir að við færum alla
okkar starfsemi austur og hættum
viðhaldsþjónustunni í Reykjavík.
Fyrir austan munum við sinna
viðhaldinu fyrir okkur sjálf auk þess
sem við sinnum viðhaldi fyrir eitt
grænlenskt flugrekstrarfyrirtæki.“
Stefnt að frekari uppbyggingu í
Skaftafelli
Hugmyndin um uppbyggingu
í Skaftafelli hefur síðan undið
upp á sig og miðar nú við að
skapa þarna aðstöðu sem býður
ferðaþjónustufyrirtækjum sem
vilja nýta sér hana og eru að sinna
þessu svæði. Hefur rekstraraðilum
í þessari grein þegar verið kynntur
þessi möguleiki á samstarfi.
Segir Jón að ef á þurfi að halda
geri skipulagið ráð fyrir mögulegum
stækkunum og hægt sé að byggja
á fimm lóðum á svæðinu. Þá sé
heimilt að byggja tvær jafn stórar
eða stærri byggingar en nýja
flugskýlið er nú.
Veitingasala og bensínstöðin
í Freysnesi flyst á
flugvallarsvæðið
Ráðgert er að bensínstöð og
veitingasalan sem verið hefur í
söluskálanum í Freysnesi komi líka
inn á þetta svæði við flugvöllinn.
„Við erum þar í samstarfi við
hótel- og landeigendur í Freysnesi,
þær Önnu M. Ragnarsdóttur,
Jón Benediktsson og Laufeyju
Lárusdóttur um að mynda á
flugvallarsvæðinu kjarna fyrir
ferðatengda starfsemi á svæðinu
sem er rétt fyrir utan landamerki
þjóðgarðsins,“ segir Jón.
„Þá getur þjóðgarðurinn sinnt
því hlutverki sem hann á að gera án
þess að þar séu ferðaþjónustuaðilar
líka með aðsetur líkt og hann hefur
þegar boðað.“
Einnig með aðstöðu á
Bakkaflugvelli
Auk aðstöðunnar í Skaftafelli þá
hefur Atlantsflug verið með aðsetur
á Bakkaflugvelli yfir sumarið og
flogið þaðan yfir Eyjafjallajökul,
Mýrdalsjökul, Þórsmörk og fallegu
hálendissvæðin þar innar í landinu
eins og Landmannalaugar og
Lakagíga. Að sögn Jóns hefur svo
líka verið flogið til Vestmannaeyja.
Flugskýlisbygging búin að vera á
prjónunum síðan 2009
„Við erum búin að vera með það
á prjónunum að byggja flugskýli
í Skaftafelli síðan 2009 í landi
Freysness. Fyrst þurfti að gera
breytingu á aðalskipulagi og í
framhaldi af því þurfti að fara í gerð
deiliskipulags.“
Með tvær flugbrautir
„Þarna erum við með 15 hektara land
undir flugvallarsvæði á einkalandi
sem við leigjum af landeigendum
í Freysnesi sem við höfum átt gott
samstarf við. Á þessu svæði erum
við með tvær flugbrautir, aðra 600
metra og hina 1.000 metra. Það er
hægt að fara með lengri brautina í
2.000 metra ef þörf verður á en á
deiliskipulagi er nú gert ráð fyrir
1.500 metra braut.
Við erum því mjög vel sett
með gott rými í kringum okkur
og aðflugsaðstæður mjög góðar.
Við erum að vísu ekki með
aðflugsvita, en einn af þremur helstu
flugstefnuvitum (VOR) landsins er
á Ingólfshöfða sem er ekki langt frá
okkur.“
Flugskýli, farþegaafgreiðsla
og skrifstofur byggðar
á 14 mánuðum
„Ég lét mæla út fyrir skýlinu í ágúst
2017 og við hófum framkvæmdir
1. september sama ár. Byggingin
var svo komin upp og kláruð á 14