Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Grásleppuvertíðin hefst eftir
nokkrar vikur. Að þessu sinni
standa grásleppukarlar frammi
fyrir nýjum og áður óþekktum
vanda. Þeir hafa verið sviptir
vottun um sjálfbærar veiðar á þeirri
forsendu að of mikið af sel og teistu
komi í grásleppunetin sem meðafli.
Þar með getur orðið erfitt að selja
grásleppuhrognin á mikilvægustu
mörkuðunum fyrir þessa vöru.
Grásleppuveiðar við Ísland eru
áhættusöm atvinnugrein. Í fyrsta
lagi eru veiðarnar mjög háðar veðri.
Stundum tekst mönnum ekki að
draga netin í bátana vegna óveðurs
eða færa þau nægilega djúpt svo
veðrið nái ekki að skemma þau.
Missa kannski allt úthaldið í einum
veðurofsa. Þótt ekki fari svo illa,
veiðist ekkert meðan bræla er en
leyfilegir veiðidagar halda hins
vegar áfram að líða óbættir. Á
síðasta ári voru dagarnir 46 talsins
og þá þarf að nýta samfleytt frá því
að hver og einn leggur sín net og þar
til hann dregur þau upp í síðasta sinn.
Í öðru lagi hefur markaðsástand
fyrir grásleppuhrogn ekki verið
upp á það besta á síðustu árum
sem endurspeglast í því að dregið
hefur úr þátttöku í veiðunum. Ef öll
grásleppuveiðileyfi væru nýtt gætu
yfir 400 bátar stundað veiðarnar, en
meðalfjöldinn á undanförnum árum
hefur verið 240–250 bátar.
Afturköllun vottunar
Nýjasti vandinn er svo sá að
svokölluð MSC vottun um sjálfbærar
grásleppuveiðar við Ísland hefur
verið afturkölluð á þeirri forsendu
að of mikið af landsel, útsel og
teistu komi í grásleppunetin sem
meðafli. Vottunarstofan Tún sem
annast þessa vottun byggir á skýrslu
Hafrannsóknastofnunar um meðafla
á grásleppuveiðum þar sem leiddar
eru að því líkur að þessi meðafli
geti ógnað þessum stofnum.
Grásleppukarlar mótmæla harðlega
mati Hafrannsóknastofnunar á
umfangi meðafla á grásleppuveiðum.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir í samtali við höfund þessa
pistils að það sé ekkert nýtt að selir
og fuglar flækist í grásleppunet og
engin ástæða sé til að afturkalla
vottunina af þeim sökum. Örn
gerir þá athugasemd við skýrslu
Hafrannsóknastofnunar að hún
byggi eingöngu á gögnum frá
veiðieftirlitsmönnum Fiskistofu
en ekkert á aflaskýrslum
frá sjómönnunum sjálfum.
Veiðieftirlitsmennirnir séu einkum
að skoða meðafla í upphafi vertíðar
og ekki síst á þeim stöðum þar sem
vitað er um meðafla, eins og t.d. í
Breiðafirði og á Húnaflóasvæðinu.
Þessar tölur séu síðan uppreiknaðar
fyrir allt landið eins og meðafli
sé jafnmikill alls staðar, á öllum
veiðitímanum og á öllu dýpi. Þetta
sé víðs fjarri raunveruleikanum.
Sums staðar komi lítið sem ekkert
af sel í grásleppunet. Þá komi teista
ekki í net sem lögð séu neðan við
ákveðið dýpi en hún sé samt reiknuð
að fullu inn í meðafla alls staðar. Örn
fullyrðir að Hafrannsóknastofnun
ofmeti meðaflann á grásleppuveiðum
gróflega og hefur LS óskað eftir því
við sjávarútvegsráðuneytið að reynt
verði að leysa þetta mál svo vottunin
geti komist á að nýju.
Ófullnægjandi skráning
Sérfræðingar Hafrannsókna-
stofn unar, Guðmundur Þórðarson
og Guðjón Sigurðsson, hafa
svarað gagnrýni Landssambands
smábátaeigenda í grein í Fiskifréttum
þar sem þeir segja að erfiðlega hafi
gengið að fá grásleppukarla til þess
að skrá allan meðafla í afladagbók
og því ekki hægt að styðjast við gögn
þeirra, en þess í stað orðið að reiða sig
eingöngu á gögn veiðieftirlitsmanna.
Tekið er sem dæmi að á árunum
2014–16 hafi eftirlitsmenn skráð
meðafla fugla eða spendýra í 67%
róðrum þegar þeir voru um borð, en
meðafli var eingöngu skráður í 15%
róðra þegar eftirlitsmenn voru ekki
um borð. Samkvæmt skráningum
sjómanna í afladagbækur árið 2017
komu að minnsta kosti 400 landselir
í netin, um 200 útselir, 286 hnísur,
600 teistur og 1.800 aðrir sjófuglar.
Áætlað mat Hafrannsóknastofnunar,
byggt á eftirlitsferðum Fiskistofu,
er talsvert hærra, eða á bilinu 700–
1.100 landselir, 970–2.100 útselir,
240–440 hnísur, 1.300–2.121 teistur,
og um 4.800 aðrir sjófuglar. Bent er
á að þetta sé fimmfaldur munur á
meðafla í heild.
Sérfræðingarnir viðurkenna að
sú aðferð að uppreikna meðaflann
yfir landið allt út frá þeim róðrum
sem eftirlitsmennirnir fóru í sé ekki
gallalaus því aðstæður geti verið
mismunandi í tíma og rúmi. Best
væri ef sjómennirnir sjálfir skráðu
allan meðafla í samræmi við lög og
reglur, en svo lengi sem skráningu
þeirra sé ábótavant sé eina raunhæfa
leiðin að auka gagnasöfnun, t.d.
með auknu eftirliti eða upptöku
öryggismyndavéla. Hvort tveggja
sé hins vegar mjög kostnaðarsamt.
Neikvæð áhrif á
markaðssetningu
En hvaða áhrif hefur afturköllun
MSC vottunarinnar á markaðs-
setningu grásleppuhrogna frá
Íslandi? Örn Pálsson segir að
hún gæti leitt til þess að erfiðlega
gangi að selja til mikilvægra
markaðslanda, svo sem Svíþjóðar,
Þýskalands og jafnvel Danmerkur,
en tæpur helmingur hrognanna hefur
farið til þessara landa. Á síðasta ári
nam grásleppuhrognaframleiðslan
á Íslandi 8.600 tunnum.
Útflutningsverðmæti þeirra nam
1,8 milljörðum króna. Helmingur
hrognanna er unninn í kavíar í
tveimur verksmiðjum hérlendis
(hjá Vigni Jónssyni á Akranesi og
hjá ORA) en hinn helmingurinn
fer óunninn til vinnslu erlendis.
Að auki er grásleppan sjálf fryst án
hrogna og seld til Kína, en henni
var áður fleygt að undanskildu því
takmarkaða magni sem verkað hefur
verið fyrir þá sem sólgnir eru í signa
grásleppu.
Milljarða verðmæti
Samkvæmt upplýsingum Lands-
sambands smábátaeigenda starfa hátt
í 800 manns við veiðar og vinnslu
á grásleppu hérlendis. Eins og áður
kom fram hefur þátttaka í veiðunum
og aflinn farið minnkandi í takt við
markaðsástandið. Meðalafrakstur
af grásleppuveiðum síðustu tíu
ára er 10–11 þúsund tunnur af
hrognum sem er vel innan þeirra
marka sem Hafrannsóknastofnun
telur ráðlegt að veiða. Mest hefur
útflutningsverðmæti hrognanna á
einu ári farið í 3 milljarða króna
en þá fór saman metveiði, hagstætt
verð og gengi.
Nú er svo komið að Íslendingar
og Grænlendingar veiða um
95% af allri grásleppu í Norður-
Atlantshafi. Afrakstur hvorrar
þjóðar var 8.600 tunnur í fyrra.
Sjómenn á Nýfundnalandi, sem
áður voru mjög umsvifamiklir í
þessum veiðum, veiða nánast ekkert
lengur. Norðmenn hafa líka stórlega
dregið úr veiðum og það sem Danir
og Svíar veiða er mest selt ferskt til
neytenda.
Lífsstíll frekar en lífsviðurværi
En hvar við landið er grásleppan
aðallega veidd og hverjir veiða hana?
Grásleppan er dyntóttur fiskur og því
getur verið æði sveiflukennt milli ára
hvar best veiðist. Almennt má segja
að veiðin hafi verið einna tryggust
í innanverðum Breiðafirði, úti af
Ströndum og úti af Norðausturlandi
en ágætisveiði getur líka verið annars
staðar eins og við Suðvesturland.
Grásleppukarlar nú til dags eru að
stærstum hluta sjómenn sem einnig
stunda aðrar fiskveiðar en þó eru
líka allmargir sem eru eingöngu á
grásleppu og stunda síðan aðra vinnu
í landi. Í þeim hópi eru bændur við
Breiðafjörð.
Ljóst er að grásleppuveiðar eru
áhættusamur veiðiskapur. Þegar vel
gengur er hægt að hafa gott upp úr
sér en þegar illa gengur hafa menn
ekkert nema puðið upp úr krafsinu
og jafnvel hreint tap. Því er ekki
að undra að margir grásleppukarlar
lýsa því svo að veiðarnar séu
frekar lífsstíll en lífsviðurværi.
Vonandi er að nýjustu hremmingar
grásleppukarla, afturköllun á vottun
veiðanna, dragi ekki máttinn úr
þessari atvinnugrein meira en
orðið er.
Grásleppukarlar í vanda
Vellygni Bjarni sagði þá sögu
af sér er hann reri á vertíð frá
Görðum á Álfanesi að hann
hefði dregið lúðu sem var svo
stór að fjórar kýr komust fyrir
undir rafabeltinu á henni, og
að uxi hefði staðið uppi á henni
en riklingurinn komst varla á
fimm hesta. Innan í lúðunni
voru tólf vöðuselir.
Maður vestur í Húna-
vatnssýslu, sem heyrði söguna
af þessari stórflyðru, sagði að
sér þætti hún ekkert stórkostleg
á við lúðu sem hann hefði séð.
Hún hefði verið svo stór, að hrafn
hefði verið heilt ár að fljúga upp
á rafabeltið á henni.
Drógu kvenmann á öngli
Einu sinni reru fiskimenn frá
höfða í höfðahverfi á Látraströnd
og drógu kvenmann á öngli og
fluttu heim með sér að Höfða.
Hún var fálát mjög, sagðist eiga
heima í sjónum og hafa verið að
skýla að eldhússtrompi móður
sinnar þegar hún var dregin upp.
Hún var alltaf að biðja mennina
að flytja sig aftur út á sjó og
hleypa sér niður á sama mið og
hún var dregin úr. Ekki vildu þeir
það og vildu að hún ílengdist í
landi enda var hún vel að sér
um alla hluti. Hún var eitt ár á
Höfða og saumaði messuklæðin
sem eru í Laufási. Þegar árið var
liðið var hún flutt út á sjó aftur
því menn sáu að hún mundi
aldrei una í landi. Hét hún því
að senda kýr á land. Sagði hún
að þegar þær kæmu skyldu menn
vera tilbúnir og sprengja blöðru
sem væri á milli nasa þeirra því
annars færu þær aftur í sjóinn.
Litlu síðar komu tólf kvígur úr
sjónum og fóru rakleitt að Höfða.
Þær voru sægráar að lit. Sex af
þessum kúm náðust og voru hið
mesta afbragð.
Hafgýgur, haffrú, margýgur,
meyfiskur, marmennill
eða marbendill
Tvenns konar sæbúar eru það
sem næst ganga álfum og er sagt
að þeir séu í mannslíki. Annað er
hafgýgur, haffrú, margýgur eða
meyfiskur en hitt er marmennill
eða marbendill. Margýgi er lýst
þannig að hún hafi gulleitt hár
og sé í mannslíki niður að mitti
en þar fyrir neðan fiskur og með
sporð. Sjómenn telja sig stundum
hafa séð hana og þá oftast norður
við Grímsey. Sagt er að margýja
gefi ungum mönnum auga og
sæki upp í skip af þeir sofna
á vaktinni. En Credo í gamla
Grallaranum er sögð góð vörn
gegn því. Marbendill heldur sig
mest á hafsbotni og sést aldrei
nema hann sé dreginn upp. Beri
svo við að marbendill sé dreginn
lifandi vill hann umsvifalaust
komast niður aftur á sama stað og
hann var dreginn. Menn vita lítið
um háttarlag marbendla nema að
þeir eiga góðar kýr.
Sjódauðir birtast ástvinum
Sjódauðir menn gerðu oft
vart við sig í sama mund og
þeir drukknuðu og birtust þá
ástvinum sínum blautir og
dapurlegir. En aðrir voru sem
urðu eftir drukknun í sjó rammir
og illskeyttir draugar, svo sem
Skipárdraugurinn við Stokkseyri
sem átti til að æra ferðamenn með
ópum og ráðast að þeim við ána.
Eiðisboli í Mýrdal var sjódraugur
sem glettist við menn sem leið
áttu um Eiðið við Dyrhólaey.
/VH
Furðusögur
af sjó
STEKKUR
HLUNNINDI&VEIÐI
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Grásleppuveiðar. Mynd / VH
Vonandi er að nýjustu hremmingar grásleppukarla, afturköllun á vottun
veiðanna, dragi ekki máttinn úr þessari atvinnugrein meira en orðið er.