Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Asia, segja þeir að skortur á fræðslu
og upplýsingum valdi því að stór hluti
fólks átti sig ekki á þeirri hættu sem
stafar af ofnotkun sýklalyfja og þróun
ofursýkla. Það sé þrátt fyrir að á fundi
háttsettra manna innan Sameinuðu
þjóðanna 21. september 2016 hafi
verið tekin merkileg ákvörðun um
að gera áætlun um baráttuna. Síðan
hafi þjóðir innan SÞ unnið hörðum
höndum við að mynda áætlun undir
heitinu „Global Action Plan on
Antimicrobial Resistance“.
Menningarmunur veldur vanda
Þá segja þeir Cheng og Yang að
menningarlegur munur ólíkra svæða
eins og í Asíu og á Vesturlöndum
valdi því að erfiðara verður að eiga
við vandann. Það eigi líka við innan
stofnana eins og WHO. Fólk skilji
jafnvel ekki hvað sýklalyfjaónæmi
þýði fyrir heilsu þess. Þótt könnun
sýni að 56% sem telji sig vita eitthvað
um málið, þá haldi 31% að það sé
líkami fólks sem verður ónæmur fyrir
sýklalyfjum, en skilur ekki að málið
snúist um sýkla sem það geti smitast
af og ekki er hægt að vinna á með
lyfjum. Þetta valdi m.a. áhyggjum
af framgöngu sýklalyfjaónæmra
baktería (Antimicrobial resistance
AMR) á svæði í Suðaustur-Asíu þar
sem búa um 650 milljónir manna.
Um 3,2 milljónir smituðust af
ofursýklum í Taílandi 2010
Segja þeir félagar að í einni rannsókn
hafi verið áætlað að í Taílandi einu
hafi árið 2010 um 3,24 milljónir
manna verið lagðar á sjúkrahús
vegna ofursýklasmits. Af þessum
fjölda hafi 38.481 látist vegna þess
að engin úrræði voru lengur til staðar
til að berjast við sýklalyfjaónæmu
bakteríurnar. Kostnaðurinn vegna
þessa hafi margfaldast á svæði sem
hafi svipaðan íbúafjölda og Evrópa og
Norður-Ameríka samanlögð.
„Þarna getur orðið hörmungar-
ástand fyrir heilsufar almennings í
framhaldinu,“ segja þeir Liew Kong
Cheng og Hsu Li Yang.
Ofursýklar geta kostað 10 milljónir
manna lífið á hverju ári um 2050
Í skýrslu Alþjóðabankans 2016 og í
skýrslu O‘Neill sama ár, var áætlað að
áhrif vegna sýlalyfjaónæmra baktería
á fjármálakerfi heimsins muni nema
sem svarar um 100 billjónum dollara
árið 2050 [100 trillion á ensku]
eða 100.000.000.000.000 dollara,
samkvæmt okkar talnakerfi. Það þýðir
um 3,8% af vergri landsframleiðslu
heimsins. Þá er einnig gert ráð fyrir
að sýklalyfjaónæmar bakteríur, eða
ofursýklar, drepi um 10 milljónir
manna árlega ef ekkert verði að gert.
Gert er ráð fyrir að í Evrópu muni
á hverju ári deyja af völdum ofursýkla
um 390 þúsund manns, eða sem
svarar ríflega allri íslensku þjóðinni.
Efnahagshrun og gríðarlegt
mannfall
Alþjóðabankinn segir að jafnvel þótt
áhrif sýklalyfjaónæmu bakteríanna
verði tiltölulega mild, þá geti það
samt þýtt kostnað upp á um 1,1%
af landsframleiðslu heimsins árið
2050. Í ofanálag þýði þetta samdrátt
í efnahagsvexti heimsins sem
geti í besta falli orðið um 1%
en í versta falli um 5,6%. Sem
dæmi var samdrátturinn mestur
í efnahagshruninu 2008 til 2009
um 4,1%. Afleiðingarnar af
óheftri þróun ofursýklavandans
yrðu því efnahagslega mun verri
fyrir heimsbyggðina en síðasta
efnahagshrun og mannfallinu mætti
líkja við ástandið í stórstyrjöld.
MAST fjallar um
kamfílóbaktersýkingar
Í frétt Matvælastofnunar 12.
febrúar sl. segir m.a. að á
Íslandi hafi komið upp faraldur
kamfílóbaktersýkinga í fólki á
árunum 1998–1999 eftir að sala
fersks kjúklingakjöts [íslensks] var
leyfð í verslunum.
„Eftir samstillt átak eftir-
lits aðila og framleiðenda gegn
kamfílóbakter hefur tíðni
kamfílóbakters haldist lág hérlendis
og er gjarnan litið til Íslands
sem fyrirmynd í baráttunni gegn
þessum algenga sjúkdómsvaldi.
Innan Evrópu er nú rætt
um hvernig ná megi betri
stjórn á hættum tengdum
sjúkdómsvaldinum. Í meðfylgjandi
skýrslu Framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins (ESB) um
aðgerðir gegn kamfílóbakter
(Campylobacter) í kjúklingum er
gerð grein fyrir fyrirbyggjandi
aðgerðum í framleiðslu
kjúklingakjöts í Evrópu. Allt kapp er
lagt á að fækka kamfílóbaktersmiti
í kjúklingum, en bein tengsl eru
á milli kamfílóbaktersýkinga
í fólki og smits í framleiðslu
kjúklingakjöts. Niðurstöður voru
fengnar úr skoðunarheimsóknum
í þremur ríkjum ESB og tveimur
EFTA-löndum, en Ísland var annað
þeirra.“
Ísland og Noregur í sérflokki
„Einungis Ísland og Noregur
(EFTA-lönd) hafa ástundað
frystingu á menguðu kjúklingakjöti
sem fyrirbyggjandi aðgerð í
baráttunni gegn kamfílóbakter.
Frosið kjúklingakjöt er verðminna
en ófrosið og hafa því aðgerðir
gegn kamfílóbakter í kjúklingum
fyrst og fremst beinst að því að
verja fuglana gegn smiti með
góðum smitvörnum á búunum.
Kappkostað er að framleiðendur
geti sent frá sér ómengaða
fuglahópa til slátrunar. Ekki er lögð
áhersla á sértækar aðgerðir umfram
góða starfshætti í sláturhúsum til að
fyrirbyggja kamfílóbaktermengun.
Í baráttu sinni við kamfílóbakter
reyna EFTA-löndin fyrst og fremst
að fyrirbyggja smit í fuglana
þannig að minni aðgerða sé þörf
á síðari stigum framleiðslunnar.
Hin Evrópulöndin sem
könnunin náði til telja hins vegar
óvinnandi veg að fyrirbyggja
kamfílóbaktersmit í kjúklingum
á búum. Leggja þau höfuðáherslu
á áhættuminnkandi aðgerðir í
slátruninni þ.e.a.s. á síðari stigum
framleiðslunnar.“
Reyna nýjar baráttuaðferðir en
án árangurs
„Stöðugt er verið að þróa og
prófa nýjar aðferðir til að draga úr
kamfílóbaktermengun eftir slátrun,
svo sem meðhöndla kjöt með
heitri gufu eða hátíðnibylgjum/
hljóði (ultrasound), eða snöggri
yfirborðsfrystingu (crust freezing).
Þrátt fyrir að hafa bætt sláturaðferðir
sínar hafa Evrópulöndin ekki náð
settum markmiðum um lægri tíðni
kamfílóbakter í kjúklingum.
Markaðurinn kallar eftir fersku
kjúklingakjöti en innan ESB
er frysting kjöts frá smituðum
eldishópum talin vera efnahagslega
óframkvæmanleg. Bólusetningar
á kjúklingum gegn kamfílóbakter
hafa einnig verið prófaðar en ekki
borið tilætlaðan árangur. Önnur leið
getur verið að bólusetja kjúklinga
með bakteríudrepandi veirum
(bacteriophages) rétt fyrir slátrun
en sú aðferð er dýr og getur valdið
áhyggjum meðal neytenda.“
Íslenska aðferðin að frysta smitað
kjöt hefur reynst árangursríkust
„Í stuttu máli blasir við að ríki ESB
hafa ekki fundið viðunandi lausnir
til að ná stjórn á kamfílóbakter
í kjúklingum og ekki náð að
lækka tíðni smits í fólki. Frysting
á kamfílóbaktermenguðu kjöti,
eins og tíðkast hefur hér á landi
í nær tvo áratugi, hefur til þessa
reynst langárangursríkasta
aðgerðin í baráttunni gegn þessum
sjúkdómsvaldi,“ segir í frétt MAST.
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
TRAKTOR
SEM LÉTTIR ÞÉR STÖRFIN
GRZZLY 700 EPS MEÐ TRAKTORSSKRÁNINGU
Ný útgáfa með dráttarspili, LED ljósum og
26“ dekkjum. Aukin burðargeta og lækkaður
þyngdarpunktur gerir gott hjól enn betra.
TILBOÐSVERÐ KR. 2.190.000,- M/VSK.
Einnig fáanlegt með aukasæti og innbyggðum
farangurskassa. TILBOÐSVERÐ KR. 2.240.000,- M/VSK.
VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA!
Tímapantanir í síma 540 4980
Vinnuþjarkur!
Hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 540 4980 til að
fá frekari upplýsingar.
Ofnotkun sýklalyfja er dauðans
alvara.
Þótt notkun sýklalyfja í landbúnaði á Íslandi sé ein sú minnsta í heimi ásamt
því sem þekkist í Noregi þá er víða verið að nota mikið af sýklalyfjum sem
hafa orsakað myndun ofursýkla, eins og m.a. í danskri svínarækt.