Bændablaðið - 22.02.2018, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Finninn Thomas Snellman hefur
verið bóndi í 36 ár. Auk búskapar
starfar hann við að kynna lífræna
framleiðslu. Árið 2013 setti hann
upp sölusíðu á Facebook og bauð
þar framleiðendum og neytendum
að hafa milliliðalaus viðskipti.
Hópurinn, sem kallast REKO,
nýtur mikilla vinsælda í Finnlandi
og margir svipaðir verið stofnaðir
þar og víðar í Evrópu.
Snellman sagði í samtali við
Bændablaðið að hann ræktaði
holdanaut til kjötframleiðslu en að
áður hafi hann rekið mjólkurbú.
„Býlið er á vesturströndinni,
um miðbik Finnlands, og á
sænskumælandi svæði. Ég er að
jafnaði með 20 holdakýr þannig
að býlið er ekki stórt, enda sinni
ég margs konar öðrum verkefnum
samhliða búskap.“
Að sögn Snellman hefur hann
lagt stund á lífræna framleiðslu
í 27 ár og samhliða búskap í dag
vinnur hann að kynningu á lífrænum
búskap í Finnlandi. „Lífrænar
landbúnaðarafurðir njóta síaukinna
vinsælda í Finnlandi og eini geirinn
í landbúnaði sem virðist eiga framtíð
fyrir sér. Eftirspurnin eftir lífrænni
framleiðslu er alltaf að aukast og í
dag fæst næstum því þrisvar sinnum
hærra verð fyrir lífræna hafra en þá
sem eru ræktaðir á hefðbundinn
hátt. Bændur eru einnig að fá um
30% hærra verð fyrir lífrænar
mjólkurvörur en hefðbundna
framleiðslu.“
Sífelld krafa um lægra verð
„Afkoman í því sem er kallaður
hefðbundinn landbúnaður í
Finnlandi er erfið í dag eins og víða
annars staðar í heiminum. Vandi
bænda í Finnlandi stafar meðal
annars af innflutningi á ódýrum mat
og kröfu verslunarinnar um ódýrari
vörur. Í Finnlandi eru þrjú fyrirtæki
ráðandi á matvælamarkaði, tvö
finnsk og eitt þýskt. Þessar keðjur
eru í mikilli samkeppni um að bjóða
lægsta verðið og það kemur niður á
verðinu til framleiðanda, sem eru
bændur, auk þess sem aðföng og
annar kostnaður við framleiðsluna
fer hækkandi.
Staða verslunarinnar er sterk og
samningstaða bænda slæm og þeir
þurfa að sætta sig við það verð sem
verslunin vill borga ef þeir vilja fá
hillupláss.
Í Finnlandi hætta að meðaltali
fimm bændur búskap á viku vegna
þess að þeir lifa ekki á framleiðslunni
og ástandið er svipað víða annars
staðar í Evrópu,“ segir Snellman.
Sölusíða á Facebook
Snellman segir að hann hafi verið
orðinn leiður á því hversu lágt verð
hann og aðrir bændur fengju fyrir
sína framleiðslu. Hann kynntist
hugmyndinni um sölu beint frá
býli í Frakklandi 2011 og árið 2013
setti hann upp söluhóp á Facebook
sem býður neytendum að eiga
milliliðalaus viðskipti við bændur.
Hópinn kallaði hann REKO, sem
er skammstöfun á sænska hugtakinu
Rejäl konsumtion, sem gæti útlagst
sem sanngjörn neysla á íslensku.
Á síðunni bauð Snellman
bændum og smáframleiðendum að
setja inn upplýsingar um vörurnar
sem þeir bjóða og neytendum að
kaupa hana beint og milliliðalaust,
hvort sem hún er lífræn eða ekki.
Varan er afhent á ákveðnum stöðum
þar sem kaupendur sækja og greiða
fyrir.
REKO gengur út á að hver
REKO-síða sinnir ákveðnu svæði,
eða REKO-hring eins og það er
kallað. Fyrsta afhendingin fór fram
6. júní 2013 í Jacobstad, sem er borg
í nágrenni við býli Snellman.
„Salan á netinu fór hægt af stað
og til að byrja með náði þjónustan
til takmarkaðs svæðis í kringum
Jacobsstad en á innan við ári fóru að
berast fyrirspurnir víðar að í landinu
og þjónustusvæðið stækkaði.“
Góður kostur fyrir bæði
framleiðendur og neytendur
„Kostir RECO-hringanna fyrir
framleiðendur eru margir. Vörurnar
eru pantaðar fyrirfram þannig að
ekki þarf að flytja óþarfa vörur á
áfangastað, auglýsingakostnaður
er lítill sem enginn og hagnaður
af vörunni meiri en í gegnum sölu
milliliða.
Kostir fyrir neytendur er að
hafa aðgang að vörum beint frá
býli, lífrænni eða hefðbundinni
framleiðslu eftir óskum. Að hafa
bein samskipti við framleiðendur
og byggja traust. Ef varan stendur
undir væntingum er hægt að panta
aftur ef ekki má snúa sér annað.
Auk þess að vörurnar eru á lægra
verði en í verslunum.
Í dag er hægt að kaupa nánast
allar matvörur, fisk, brauð, egg,
grænmeti, ávexti og kjöt, í gegnum
REKO-kerfið nema mjólk en það er
bannað samkvæmt lögum.“
Hröð uppbygging
Snellman segir að meðlimir á
REKO-síðum árið 2013 hafi
verið 15 framleiðendur og 400
kaupendur og veltan 80.000 evrur.
2014 voru framleiðendurnir 750
og kaupendurnir 12.000 og veltan
áætluð tvær milljónir evra. Árið
2015 fór boltinn verulega að rúlla.
Afhendingarstöðunum fjölgaði í
hundrað, framleiðendum í 2.500,
kaupendum í 150 þúsund og velta
jókst í átta milljón evrur. Árið
2016 töldu framleiðendur sem
seldu í gegnum REKO um 4.000,
kaupendur 250 þúsund og áætluð
velta 30 milljón evrur. Í dag eru
afhendingarstaðir vara í Finnlandi
80 og reglulegir kaupendur um
330.000, sem er um 5% allra
Finna og allur íbúafjöldi Íslands.
Helmingur veltunnar kom í
gegnum framleiðendur lífrænna
landbúnaðarvara.
Aðgangur að síðunni er ókeypis
og ekkert gjald er tekið fyrir
viðskipti í gegnum hana.
Snellmann segir að virkni
meðlima á REKO-síðunum sé
mismikil. „Sumir selja og kaupa
reglulega en aðrir sjaldnar og
kannski bara einu sinni á ári.“
Snemma á síðasta ári var hleypt
af stokkunum svipaðri síðu í Svíþjóð
og tveimur afhendingarstöðum
komið á laggirnar. Þremur
mánuðum seinna voru þeir orðnir
26 og fyrsti REKO-hringurinn
á Ítalíu afhenti sínar vörur fyrir
nokkrum dögum.
Stórmarkaðir leita til bænda
„Aukin eftirspurn eftir lífrænum
og vörum úr nærumhverfinu hefur
leitt til þess að stórmarkaðir sem
selja matvörur í Finnlandi eru farnir
að sýna þeim meiri áhuga og leita
til bænda til að fá þær. Það eitt og
sér hefur snúið samningsstöðunni
bændum í vil og í dag geta þeir
farið fram á hærra verð fyrir
framleiðsluna en áður.“
Kynning í Hörpu 4. mars
Snellman heldur erindi um
hugmyndina að baki REKO á
vegum Matarauðs Íslands og
Bændasamtaka Íslands í Björtu
loftum Hörpu sunnudaginn 4. mars
næstkomandi klukka 14.00.
Auk Snellman mun Brynja
Laxdal hjá Matarauði Íslands
kynna reynsluna af markaðsstarfi
á Facebook á Íslandi og Arnar Gísli
Hinriksson markaðsfræðingur flytja
erindi um Facebook sem sölutækni.
Að erindunum loknum er boðið upp
á vinnustofu fyrir framleiðendur,
veitingamenn, neytendur og alla
sem hafa áhuga á svæðisbundnum
mat og afurðum. Á sama tíma er
Matarmarkaður Búrsins í Hörpu.
Aðgangur er ókeypis en gerð er krafa
um skráningu á www.bondi.is. /VH
Matarfrumkvöðull frá Finnlandi – Thomas Snellman setti upp sölusíðuna REKO á veraldarvefnum:
Milliliðalaus viðskipti með búvörur á Facebook
Styrkir til þróunarverkefna í
nautgriparækt, sauðfjárrækt
og garðyrkju
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um
styrki til rannsókna og þróunarverkefna í nautgriparækt, sauðfjár-
rækt og garðyrkju samkvæmt reglugerð um almennan stuðning
við landbúnað nr. 1180/2017.
Í nautgriparækt eru þau verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja
íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.
Í sauðfjárrækt eru hver þau verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja
íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að vera kennsla, rannsóknir,
leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.
Í garðyrkju eru styrkhæf ráðgjafarverkefni, kynningarverkefni,
rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni og endur-
menntunarverkefni.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
a) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnisins, þ.m.t. rökstuðningur fyrir
því hvernig það fellur að þeim markmiðum sem tilgreind eru hér
að ofan og hvernig það gagnast viðkomandi búgrein að öðru leyti.
b) Listi yfir alla sem eiga aðild að verkefninu.
c) Tímaáætlun verkefnisins.
d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild.
e) Hvar og hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar.
Umsóknafrestur er til 1.apríl n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á slóðinni
www.fl.is/þróunarfé, en einungis er tekið við umsóknum á
eyðublöðunum sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri 311 Borgarnesi, merktum: Umsókn um þróunarfé.
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, framkvæmd a-
stjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hjá thorhildur@fl.is.
Thomas Snellman er að jafnaði með 20 holdakýr þannig að býlið er ekki stórt, enda sinnir hann margs konar öðrum verkefnum samhliða búskap.
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
Snellman hefur lagt stund á lífræna
framleiðslu í 27 ár og samhliða
búskap í dag vinnur hann að
kynningu á lífrænum búskap í
Finnlandi.