Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Öryggis- og
hlífðarfatnaður
Dynjandi býður upp á hlífðar- og öryggis fatnað
sem uppfyllir ströngustu kröfur.
Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð.
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR
Keðjurnar eru til í mörgum gerðum og í öllum
mögulegum stærðum á vinnuvélar, vöru- og
flutningabifreiðar, dráttarvélar og lyftara
FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR
Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar
Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur
Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur
✓ Umboðsaðili Røka
mjólkurtanka á Íslandi
✓ Kælikerfi
✓ Frystikerfi
✓ Almennar raflagnir
✓ Þjónusta & uppsetningar
Expert kæling ehf. | Sími: 660 2977 | Netfang: elmar@expert.is
Draghálsi 22, 110 Reykjavík | Freyjunesi 10, 603 Akureyri | Gagnheiði 3, 800 Selfossi
VIÐ ÞJÓNUSTUM
KÆLIKERFI Á ÖLLU
LANDINU!dnæB a
8 . srma
Skýrsla um búskaparskógrækt í Húnaþingi vestra:
Verkefni í styrkjakerfi
skógræktar á lögbýlum
Lagt er til í nýútkominni skýrslu
um búskaparskógræktarverkefni
í Húnaþingi vestra að
búræktarskógrækt verði komið
fyrir í hinu opinbera styrkjakerfi
með viðeigandi og aðgengilegum
samningum. Skógrækt bænda
með önnur aðalmarkmið en
timburframleiðslu hefur með
formlegum hætti ekki verið til
innan opinbera styrkjakerfisins,
nema sem nokkur tilrauna-
verkefni. Sagt er frá skýrslunni á
vef Skógræktarinnar.
Haustið 2016 fól þáverandi
umhverfis- og auðlindaráðherra,
Sigrún Magnúsdóttir, Skógræktinni
að hrinda í framkvæmd átaki í
skógrækt í Vestur-Húnavatnssýslu.
Markmiðið var að bæta skilyrði
til búskapar og búsetu í dreifbýli í
sýslunni. Um var að ræða eins árs
verkefni og skyldi þróa útfærslur
á nýjum skógræktarverkefnum
sem gætu fjölgað tækifærum fyrir
bændur, aukið skógarþekju og um
leið brúað bil milli skógræktar
og hefðbundins landbúnaðar.
Verkefnið var einnig hugsað sem
skref íslensks landbúnaðar í átt að
kolefnishlutleysi.
Áhersla lögð á nokkra þætti
Ráðherra lagði áherslu á nokkra
þætti sérstaklega, svo sem
skjólbeltakerfi fyrir ræktun,
skjóllundi fyrir búfé, t.d. haustbeit
stórgripa, sauðburðarhólf og önnur
beitarhólf, beitarskóga í tiltölulega
stórum afgirtum beitarstýrðum
hólfum landgræðsluskóga á illa
eða ógrónu landi, skjólskóga með
fjölbreyttum trjágróðri þar sem tekist
yrði á við staðbundin vindakerfi með
það að markmiði að draga úr eða
bægja frá sterkum vindstrengjum,
akurskógrækt á landi sem ekki nýtist
til matvælaframleiðslu að svo stöddu
og fjölnytjaskóga með einhver af
ofangreindum markmiðum auk
timburnytja.
Þá gerði ráðherra einnig tillögu
að vinnulagi. Bændum skyldi
boðin ráðgjöf og kynning á því
hvernig framangreindir þættir
gætu stutt við annan landbúnað
og bætt búsetuskilyrði. Kanna
skyldi viðhorf bænda til núverandi
stuðningskerfis í skógrækt og
hvernig mætti breyta því svo að
bændur sæju sér frekar hag í þeim.
Einnig skyldi leita samstarfs við
hagsmunasamtök bænda. Verkefnið
hlaut sjö milljóna króna framlag til
eins árs úr ríkissjóði og var gert
ráð fyrir að öll sú upphæð rynni til
framkvæmda.
Skógræktin tók við verkefninu
og fól Sæmundi Kr. Þorvaldssyni,
skógfræðingi í Dýrafirði, að
stjórna verkefninu í samstarfi við
skógræktarráðgjafa sýslunnar,
Johan Holst.
Bændur í Húnaþingi áhugasamir
Bændur í Húnaþingi reyndust hafa
töluverðan áhuga á verkefninu. Að
loknum vel sóttum kynningarfundi
bárust umsóknir frá 14 lögbýlum
um verkefni í búskaparskógrækt.
Eigendum sex lögbýla var boðið
að gera samning um tilteknar
framkvæmdir. Flestar hinna
umsóknanna þóttu falla betur að
hefðbundnum skógræktar- eða
skjólbeltasamningum og var
umsækjendum bent í þá átt. Í
skýrslunni eru tíunduð þau verkefni
sem ákveðið var að ráðast í. Það
eru verkefni sem snúast um ræktun
skjólbeltakerfa, hagaskóga og
skjóllunda eða snjófangara.
Óheppilegt að ráðast í verkefni
með litlum fyrirvara
Í niðurstöðum skýrslunnar kemur
fram að óheppilegt sé að ráðast
í verkefni sem þessi með svo
litlum fyrirvara enda þurfi góðan
undirbúningstíma. Erfitt sé að ætla
sér að bæði hanna og hrinda af stað
skógrækt á einu og sama árinu.
Segja megi að skjólbeltaverkefni,
skjóllundir og snjófangandi skógar
falli vel að núverandi kerfi fyrir
skjólbeltastuðning á lögbýlum.
Núverandi kerfi nái hins vegar að
óbreyttu ekki utan um aðra ræktun
búskaparskóga, svo sem hagaskóga
og akurskóga.
Skógrækt bænda með önnur
aðalmarkið en timburframleiðslu
hafi ekki verið með formlegum hætti
innan opinbera styrkjakerfisins,
nema sem nokkur tilraunaverkefni.
Á tímum stöðugs samdráttar í
nýgróðursetningum síðustu 13 ár
hafi þessir þættir orðið mjög út undan
víðast hvar, auk þess sem áherslur
opinberu skógræktarverkefnanna
á búskaparskóga hafi verið
mismunandi milli landshluta og
jafnvel frá einum skógræktarráðgjafa
til annars.
Þarf að kynna betur
Lögð er til í skýrslunni aukin kynning
á öllum þáttum búskaparskógræktar
og að sérstakt fjármagn verði veitt
til þessarar afmörkuðu tegundar
skóg- og trjáræktar í vel útfærðu
stuðningskerfi með viðeigandi og
aðgengilegum samningum. Í viðauka
við skýrsluna koma fram tillögur
Búnaðarsambands Húnaþings og
Stranda sem lúta í sömu átt. Auka
þurfi kynningu, þróa verkefni sem
falli vel að öðrum búskap bændanna
og einnig að minna bændur reglulega
á þá möguleika sem fyrir hendi eru.
/MÞÞ
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Mynd / Sæmundur Þorvaldsson.