Bændablaðið - 22.02.2018, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Gufuvélin eykur uppskeru og geymsluþol
Fyrirtækið Soil Steam
International kynnir til sölu í
sumar gufuvélina Soilprep sem
mun valda byltingu við ræktun
á grænmeti og berjum utandyra.
Vélin, sem kemur fyrir gufu á 30
sentímetra dýpi í jarðveginum,
nær að eyða illgresi, sveppum og
þráðormum með góðum árangri.
Þetta getur þýtt allt að 40 prósenta
meiri uppskeru á þeim svæðum
sem gufuvélin er notuð.
„Soil Steam International er
tveggja ára gamalt fyrirtæki en
verkefnið hóf faðir minn, Kjell
Westrum, fyrir rúmum 20 árum,
þegar hann byrjaði að gera tilraunir
með að drepa sveppi, illgresi og
þráðorma í jarðvegi með gufu. Þetta
hafa bændur gert í meira en 100 ár
en það hefur engum tekist áður að
setja gufu í og á jarðveginn utandyra
á sjálfbæran hátt. Það verður að ná
að setja gufuna niður á 30 sentímetra
dýpi og það eru ekki til aðrar vélar
en okkar sem geta það. Við sýndum
gufuvélina okkar í Noregi og
Þýskalandi í fyrra og hún mun fara
í sölu til viðskiptavina í júní á þessu
ári,“ segir Hans Kristian Westrum,
stjórnarformaður og sölustjóri
fyrirtækisins.
Gegn sveppum og þráðormum
Gufuvél Soil Steam International
þéttir jarðveginn fullkomlega þegar
hún gengur stöðugt úti á akrinum og
nær að drepa nánast allan þráðorm.
„Fyrirtækið er lítið enn sem
komið er og við einblínum eingöngu
á gufuvélar fyrir landbúnað en
markaðurinn fyrir slíkar vélar er
mjög stór. Þegar faðir minn byrjaði á
þessu verkefni var það upprunalega
til að berjast gegn nokkrum
sveppategundum og þráðormum
sem ekki voru til varnarefni gegn.
Eftir margra ára prófanir komumst
við að því að tæknin sem við
notumst við drepur þetta niður með
góðum árangri,“ segir Hans Kristian
og bætir við:
„Þar að auki náum við að eyða
nánast öllu illgresi og illgresisfræjum
með gufunni. Vélin hefur verið
prófuð á gulrætur, púrrulauk og
kínakál þar sem bændurnir fá
18–40 prósent betri uppskeru eftir
notkun á henni. Ástæðan fyrir því
er að grænmetið fær þá frið gegn
illgresi sem er í samkeppni um
vatn og næringu. Þar fyrir utan
fær grænmetið ekki í sig eins
mikið af varnarefnum sem verða
ónauðsynleg með gufuaðferðinni.
Eftir að gufuvélin hefur farið um
akurinn verður rótargrænmetið ekki
fyrir árás sveppa í jörðinni og það
þýðir að geymsluþol þeirra verður
lengra. Við höfum til dæmis séð allt
að 4 mánaða lengra geymsluþol á
gulrótum eftir að hafa notað þessa
aðferð. Ef við náum að geyma
hluta af gulrótarframleiðslunni hér
í landi 4 mánuðum lengur þá getur
Noregur til dæmis verið sjálfbær
með gulrótarframleiðslu og getur
sleppt því að flytja inn frá Ísrael á
hverju vori.“
Vinnur á einum hektara á
klukkutíma
„Við notum sömu kerfi og notuð
hafa verið í gróðurhúsum í Hollandi
í mörg ár en við gerum það utandyra,
úti á akrinum. Með því að lofttæma
náum við að dreifa gufunni niður
í allan jarðveginn á ákveðið dýpi
þar sem 30 sentímetrar eiga að duga
til að virka fyrir rótargrænmetið.
Þetta hljómar mjög einfalt en er í
rauninni flókið ferli. Þegar gufan er
kæld verður hún að vatni og ef hún
verður að vatni efst í jarðveginum
þá býr hún til eins konar vatnsspegil
sem er mjög erfitt að komast í
gegnum. Þetta þýðir að við verðum
að ná gufunni í gegnum jarðveginn
á meðan hún er enn gufa þannig
að hún gefi frá sér sem mesta orku
og verði að vatni á réttu dýpi. Við
höfum ítarlega stjórnun á þessu ferli
í gegnum tölvu og hluta af þessu
kerfi höfum við fengið einkaleyfi
á,“ útskýrir Hans Kristian og segir
jafnframt:
„Það sem gerir vélina einstaka í
sinni röð er að við náum að hita upp
stóran hluta af jarðvegi við ákveðið
hitastig sem drepur þráðorma á
fljótan og skilvirkan hátt. Við náum
að gera það utandyra og á dýpi sem
enginn annar hefur getað. Vélin sem
kemur á markað í júní getur unnið á
um einum hektara á klukkutíma og
nær að sótthreinsa um 100 rúmmetra
jarðvegs á klukkutíma.“
Gufuvélin hefur vakið
heimsathygli
Þó að næg vinna sé hjá
starfsmönnum fyrirtækisins við
að koma gufuvélinni í sölu og að
þróa fleiri lausnir samhliða henni
gera þeir einnig tilraunir með að
framleiða gufurafala sem knúnir
eru áfram af hauggasi.
„Vélin okkar og hugvitið í
kringum hana hefur vakið mikla
athygli. Sem dæmi þá fórum
við með vélina til Þýskalands
í fyrrasumar til eins af stærstu
jarðarberjaframleiðendum þar í landi
til að setja gufu í jarðveg hjá honum
sem hann var búinn að eiga í stökustu
vandræðum með. Jarðvegurinn
var fullur af sveppum og það var
ómögulegt að rækta nokkuð í honum
enda hafði það ekki verið gert í þrjú
ár þegar við komum. Án þess að við
vissum þá komu um 50 manns víðs
vegar að úr heiminum til að sjá og
upplifa þegar við notuðum vélina
þarna. Þetta voru stórir alþjóðlegir
framleiðendur sem hafa átt í miklum
vandræðum með sinn jarðveg,“ segir
Hans Kristian og bætir við:
„Þetta voru aðilar frá Malasíu,
Kanada, Ástralíu, Afríku, Hollandi,
Þýskalandi og Bandaríkjunum,
sem höfðu heyrt um okkur á einn
eða annan hátt og vildu sjá vélina
að störfum. Eftir þetta fengum við
þó nokkra umfjöllun í þýskum
fjölmiðlum, margir af leiðandi
vísindamönnum í heiminum hafa
haft samband við okkur og í mars
munum við heimsækja háskólann í
Kaliforníu til að hitta nokkra stóra
berja- og grænmetisframleiðendur
og kynna vélina okkar. Þetta eru því
spennandi tímar fyrir okkur og þá
aðila sem geta nýtt sér hugvitið eftir
áralanga þróunarvinnu.“ /ehg
TÆKNI&VÍSINDI
Mynd af vélinni sem nú er í framleiðslu og fyrstu viðskiptavinirnir fá í hendurnar í júní á þessu ári.
Eftir 20 ára þróunarvinnu kemur gufuvélin Soilprep frá norska fyrirtækinu Soil Steam International á markað í sumar sem mun valda byltingu við framleiðslu utandyra á grænmeti og berjum.
Stjórnarformaður og sölustjóri fyrirtækisins, Hans Kristian Westrum, ásamt
Kåre Jan Johansen, framkvæmda- og tæknistjóra Soil Steam International.
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is