Bændablaðið - 22.02.2018, Side 37

Bændablaðið - 22.02.2018, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 og kalla baunir, hverrar tegundar sem þær eru og hvort sem þær eru borðaðar óþroskaðar með belg, þroskaðar og ferskar eða þroskaðar og þurrkaðar. Enska heitið bean á sér rætur í gamla þýska orðinu bauno eða norrænu baun. Á hollensku er það bone og á prússnesku babo. Saga baunaræktunar Fornleifarannsóknir á Taílandi benda til neyslu manna á baunum allt að tíu þúsund árum fyrir upphaf okkar tímatals og rannsóknir í Mexíkó og Perú benda til að baunir hafi verið ræktaðar á þeim slóðum allt að sjö þúsund árum fyrir Krist. Baunir eru því með elstu ræktunarplöntum mannkyns. Í löndum við botn Miðjarðar- hafsins eru vísbendingar um ræktun og neyslu bauna 6.750 árum fyrir Krist og baunir hafa fundist í sex þúsund ára gömlum grafhýsum í Egyptalandi. Rómverjar notuðu hrossabaunir, V. faba, við kosningar, ef lögð var hvít baun var svarið já en svört baun táknaði nei. Aristóteles hafði allt á hornum sér þegar kom að baunum og taldi þær af hinu illa. Rök hans voru að baunir væru í laginu eins og eistu og þar sem plantan hefði engin liðamót og væri stöngull hennar bein leið fyrir sálina til helvítis. Baunir, hvort sem þær tilheyra ættkvíslinni Phaseolus, Vicia, Vigna, Lathyrus eða Pisum, svo nokkrar séu nefndar, eru til í mörgum ólíkum yrkjum og afbrigðum sem eru ólík að stærð, lögun, lit og bragði. Phaseolus vulgaris Sú baun sem er undirstaða baunaræktunar í heiminum er af ættkvíslinni Phaseolus og kallast tegundin P. vulgaris. Hér þekkjast þær best sem baunabelgir. Þær eru upprunnar í Mið- og Suður- Ameríku en bárust til Evrópu í kjölfara landfundanna í Vesturheimi. Tegundin breiddist hratt út í Gamla heiminum og á sautjándu öld var hún komin í ræktun á Ítalíu, Grikklandi og í Tyrklandi. Heimsframleiðsla af P. vulgaris er talin vera um 18 milljón tonn af ferskum baunum. Baunin er ræktuð í um 150 löndum og á tæplega 28 milljón hekturum lands. Í dag eru fimm tegundir af ættkvíslinni Phaseolus í ræktun. Það eru P. vulgaris, P. coccineus, P. lunatus, P. acutifolius var. latifolius og P. polyanthus og eru ólík yrki og afbrigði talin í þúsundum. Baunirnar sem notaðar eru í Heinz bakaðar baunir eru P. vulgaris. Pisum sativum Baun sem Íslendingar þekkja best og hafa líklega borðað mest af í gegnum tíðina er af ættkvíslinni Pisum og kallast tegundin P.sativum á latínu en pea á ensku en ært á dönsku og stundum gráerta á íslensku. Þær eru til gular, grænar og ljósbláar. Gráertur eru upprunnar í kringum Miðjarðarhafið og vísbendingar eru um ræktun hennar við ós Nílar um 5000 árum fyrir Krist. Heimildir eru um ræktun þeirra í Afganistan og á Indlandi fyrir um 4000 árum. Sólkonungurinn Loðvík 14. er sagður hafa verið mikill baunabelgur enda hrifinn af gráertum og voru þær iðulega á boðstólum í veislum hans og jukust vinsældir þeirra mikið í valdatíð hans. Gráertur bárust með landnemum frá Evrópu til Norður- Ameríku. Gráertan er einær klifurplanta og vetrarræktuð á hlýjum svæðum heims þar sem hún þrífst illa við of hátt hitastig. Þeirra er neytt ferskra, niðursoðinna og geymast vel bæði þurrkaðar og frosnar. Á miðöldum voru þær mikið hafðar í súpur. Munkurinn Gregor Mendel, faðir erfðafræðinnar, notaði gráertur við erfðafræðitilraunir sínar, í matjurtagarði Drottningar- klaustursins í Brünn í Tékklandi, skömmu eftir miðja nítjándu öld. Baunir til matar Hægt er að borða baunir hráar, nýspíraðar, hitaðar og steiktar. Þær fara vel með chiliréttum, súpum, salati og lanbalæri, steiktum kartöflum og brúnni sósu. Um 40.000 mismunandi yrki, afbrigði og landsortir af baunum eru í geymslum í fræbönkum víða um heim en einungis fáar þeirra eru ræktaðar í stórum stíl. V E R T SÍÐAN 1952 ALLA DAGA „Það er kominn matur“ – Framhald á næstu síðu

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.