Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Nokkrum sinnum hef ég vitnað til
Íra þegar kemur að forvörnum
og gildi forvarna. Árlega koma
í byrjun árs bráðabirgðatölur
um slys og banaslys í írskum
landbúnaði frá Írsku
heilbrigðisstofnuninni, HSA
(Helth and safety authority). Í
janúar komu frekar neikvæðar
tölur um slys frá 2017 í írskum
landbúnaði.
Árið 2017 létu 47 Írar lífið í
vinnuslysum og af þeirri tölu voru
24 bændur, en af þeim létust 14
sem voru 65 ára eða eldri.
Ný aðferð til forvarna
Til að vinna gegn slysum í
írskum landbúnaði hefur verið
komið á fót verkefni síðan 2005
þegar lög um öryggi, heilsu og
velferð á vinnustað voru tekin
upp. Þessu verkefni var komið
á fót til að bæta öryggi bænda.
Verkefnið stuðlar að því að gera
fræðsluefni aðgengilegra fyrir
bændur í formi fræðsluefnis og
gátlista til fróðleiks, „Farm Safety
Code of Practice“.
Ný úttekt á slysum verður
unnin með írskum
bændabýlum
Árið 2018 verða rannsóknir
á slysum á bújörðum sem
framkvæmdar verða af Teagasc
National Farmer Survey, en
verkefnið felst í því að fara
yfir hugsanlegar hættur og
gera áhættumat. HSA stýrir
sameiginlegu verkefni sem
felst í að áfram verður veitt
þjálfun í notkun á „Farm Safety
Code of Practice“ af Teagasc
og Agricultural Consultants.
Samkvæmt minni þýðingu og
lestri á verkefninu er þetta ekki
ósvipað og við þekkjum hér á
Íslandi þar sem allir sjómenn fara
í Slysavarnaskóla. Stefnt er á að
allir írskir bændur verði búnir að
ljúka þessum skóla og að gera
áhættumat á öllum bændabýlum
næsta haust.
Martin O'Halloran, forstjóri
HSA, hefur umboð stjórnvalda til
að stýra verkefninu sem kostað er
af írska ríkinu. Í fréttatilkynningu
um þetta verkefni sagði hann að
það hafi leitt til aukinnar vitundar
en það ætti að leiða til öruggari
starfsvenja.
„Aðferðin við öryggi og heilsu
býla er almennt vel skilin af
bændum og búskaparsamfélaginu,
en þetta verkefni verður nú með
raunverulegum aðgerðum á
vettvangi. Bændur standa frammi
fyrir fjölmörgum hættum og
áhættu á hverjum degi og verða
að stjórna þeim á öruggan hátt
til að tryggja öruggt og heilbrigt
atvinnulíf.“
Prófessor Gerry Boyle,
framkvæmdastjóri Teagasc,
sagði að Teagasc muni
leggja áherslu á þörfina fyrir
umbætur í vinnustofnun til
að draga úr vinnuafli bænda í
ráðgjafaráætlunum sínum árið
2018.
„Að vinna langan tíma og flýta
sér hefur sýnt fram á að vera
helstu áhættuþættir í orsökum
flestra slysa í landbúnaði. Þetta
getur einnig verið orsök í fjölgun
slysa hjá eldri bændum undanfarin
ár,“ sagði hann.
Fróðlegt að fylgjast með
erlendum forvörnum
Ég hef alltaf verið laginn við að
leita uppi slys á sjálfum mér og
ófá eru örin á minni húð. Seinni
ár hef ég reynt að flýta mér
hægar og vinna ekki of langan
vinnudag. Eftir að ég fór að
skrifa þennan pistil hef ég oft
þurft að leita efnis á erlendum
vefsíðum. Einna hrifnastur hef
ég verið af forvarnarvinnu Íra
og þessi nýja aðferð, með eins
konar slysavarnaskóla bænda,
finnst mér spennandi og mun ég
örugglega fylgjast vel með þessu
verkefni.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
NÆR ÖLL FERMA ANDVARI SKARÐ EIMUR LÖGMÁL RÓMVERSK TALA
AGRÆÐ-LINGUR F L E G G J A R I
FÓFÁIR L E I R I ANDMÆLIUPPFYLLA N E I
LPRJÓNA-VARNINGUR E S Á L E G G PATTI
S T A Ð ÓHEILINDILYKT F A L S
ÓLUKKA
TÍÐAR
TVEIR EINS O F T A R ÚTGÆFA I N N A N
EKKISLÁTRA
ÍBEINNIÐUR
OFANÁLAG
STÓ
H Ó L F A MJAKA SLÆMARJÁLA VIÐ I L L A SÚRSA YNDIS ÁSTÚKA
A L L A
NIÐUR-
FELLING
AFHENDING A F N Á M
KVABB
ÆTÍÐ S U ÐHEILA
F Á KLÆÐLAUSHASTAR N A K I N N
STIKK-
PRUFA
FLÍK S Ý N IHLJÓTA
U N S
ÍLÁT
STANDA
FRAM F A T ÆTTAR-SETUR
KIPRA
HLJÓÐFÆRI P Í R A HEIMS-ÁLFUÞANGAÐ TIL
R ÞEIÁVINNA U S S LÚKA L Ó F I SKELHINKRA A Ð A
T A S K A HLUTDEILDKRAFTUR A Ð I L D
TVEIR EINS
SÍÐASTI
DAGUR S SVESKI
A F S A L A AÐFALLSAMTÖK A Ð S O G Í RÖÐ ÍHAFNA
S
K
L
A
A
R
G
A
BYLTA
F
F
L
A
A
L
HNETA
L
A
BÆRU AÐ
K
K
A
Æ
R
M
N
UHÖGG
BORÐ-
FLASKA
77
STRÝTU GRANDI SPOR LJÁ BLEYTU-KRAP GÁSKI SIÐA
ÓGURLEGA
ÍÞRÓTT
STREITA
FYRST
FÆDD
SKJÖGUR
ÓTRAUST-
UR
BILUN
NAUMUR
MÓRA
TUNNU
Í RÖÐ
BLÓM
NAGA
STÍGANDI
FRAM-
KVÆMA
TVEIR
EINSSKEINA
UMSÖGN
NÝLEGA
KRÆKLA
STAMPUR
KNÖTTUR
VEIKI
HRÆÐA MUNNBITISKAPA
MÆLI-
EINING
HINDRA
TÓNN
Á NÝ
RÚM
TUDDI
VÍTA
LABB
GARGA
ÖXULL
REKALD
ÞEKKJA
AFLI
ÚT
HEITIVIÐMÓT
ÓSVIKINN
HARMA
BÓK
SIGTI
TÁL
VAFRA
GRIPUR
SAMTÖK
SJÓN
ORG
ÁRÁS
RÓMVERSK
TALA
TVEIR
EINSBÓLGNA
STUNDA
ÁRANS
GIRNDÁN
DÍNAMÓR
78
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Forvarnir er fjársjóður
– Írar setja á fót öryggisverkefni fyrir bændur
MAST auglýsir eftir umsóknum um
fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt
Í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1183/2017,
V. kafla skal umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda
á árunum 2017–2018 skilað inn rafrænt á þjónustugátt MAST eigi
síðar en 15. mars.
Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.
Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár
og hagkvæmari búskaparháttum.
Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 26. gr.
reglugerðarinnar og eru vegna:
A. Nýframkvæmda
B. Endurbóta á eldri byggingum
Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki
numið 20% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón
króna.