Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
Íslendingar mjög hlynntir skógrækt
– Vilja að skógrækt verði nýtt sem vopn í baráttunni við loftslagsbreytingar
GÓÐUR VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi
og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar
einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna
notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku
eða erfiðu færi.
Volkswagen Caddy kostar frá
2.590.000 kr.
(2.072.000 kr. án vsk)EIGUM NOK
KRA
4x4
TIL AFHEND
INGAR
STRAX FÆST FJÓRHJÓLADRIFINN
Við látum framtíðina rætast.
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Langflestir landsmenn eru mjög
jákvæðir fyrir skógrækt og þeim
fjölgar sem telja að auka beri
skógrækt til að binda koltvísýring
og hamla gegn loftslagsbreytingum.
Jákvæðastir mælast ungir
Íslendingar, háskólamenntaðir
og íbúar nágrannasveitarfélaga
Reykjavíkur.
Gallup gerði netkönnun dagana
8.–21. mars þar sem spurt var tveggja
spurninga um skógrækt. Þessar tvær
spurningar voru samhljóða tveimur
spurningum úr viðamikilli könnun á
viðhorfum landsmanna til skógræktar
sem Gallup lagði fyrir þjóðina árið
2004. Að könnuninni nú standa
Skógræktin, Skógræktarfélag Íslands
og Landssamtök skógareigenda.
Spurningarnar sem spurt var nú
voru þessar:
Spurning 1. Telur þú að skógar
hafi almennt jákvæð eða neikvæð
áhrif fyrir landið?
Spurning 2. Hversu mikilvægt
eða lítilvægt finnst þér að binda
kolefni í skógum?
Landsmenn jákvæðir sem fyrr
Í stuttu máli gefa svörin til kynna
mjög svipaðar niðurstöður og í
könnuninni 2004. Langflestir eru
jákvæðir þótt heldur fleiri hafi fallið
í jákvæðasta flokkinn 2004 en nú.
Samanlagt eru mjög jákvæðir og
frekar jákvæðir þó álíka margir og
voru 2004.
Athyglisvert er hins vegar að
sjá að þeim sem voru neikvæðir
fækkar marktækt þegar kemur að
spurningunni um bindingu kolefnis.
7,3% svarenda voru neikvæðir fyrir
slíkum hugmyndum 2004 en aðeins
3,1% nú. Stuðningur við aukna
skógrækt til kolefnisbindingar
hefur samkvæmt því aukist meðal
þjóðarinnar.
Ef litið er til þjóðfélagshópa
mælist lítill munur í könnuninni nú.
Þó er ungt fólk, háskólamenntaðir og
fólk búsett í nágrannasveitarfélögum
höfuðborgarinnar heldur jákvæðara
gagnvart skógum en aðrir landsmenn.
Nær enginn telur áhrifin mjög
neikvæð
Ef litið er nánar á tölurnar telja 62%
svarenda að skógar hafi almennt
mjög jákvæð áhrif fyrir landið og
31% telur að áhrifin séu frekar
jákvæð. Samanlagt telja því 93%
svarenda að skógrækt hafi almennt
jákvæð áhrif fyrir landið. 5,4% eru
hlutlaus en aðeins 0,1% telur áhrifin
mjög neikvæð.
Svipaða sögu segja svörin
við spurningunni um kolefnis-
bindinguna. Aðspurð segja 51,6
prósent svarenda mjög mikilvægt
að binda kolefni í skógum og 35%
frekar mikilvægt. Hlutlausir eru
10,3% (hvorki né) og einungis 3%
telja þetta frekar eða mjög lítilvægt.
Ef tölurnar nú eru bornar saman
við könnunina 2004 kemur í ljós
að þeim sem telja kolefnisbindingu
með skógrækt frekar eða mjög
lítilvæga hefur fækkað að mun, úr
7,9% í 3,1%. Samtals telja 86,6%
svarenda að þetta sé frekar eða
mjög mikilvægt en sambærileg tala
frá 2004 var 83,8% sem er innan
skekkjumarka.
Unga fólkið jákvæðast
Nokkur munur sést eftir búsetu á
fjölda þeirra sem telja skógrækt
mjög jákvæða og að kolefnisbinding
með skógrækt sé mjög mikilvæg.
Mestur stuðningur við skógrækt
er í nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur þar sem 70% telja
skógrækt mjög mikilvæga á móti
64% í Reykjavík og 54% í öðrum
sveitarfélögum landsins. Eindreginn
stuðningur við skógrækt eykst eftir
því sem menntun fólks er meiri
og eins eru ungir Íslendingar á
aldrinum 18–34 ára hlynntastir
skógrækt af öllum landsmönnum.
Í úrtakinu nú voru 1.450 manns
af öllu landinu, 18 ára og eldri,
handahófsvaldir úr viðhorfahópi
Gallups. Alls svöruðu 814 manns
spurningunum tveimur en 636
svöruðu ekki. Þátttökuhlutfallið
er því 56,1 prósent. Helmingur
þátttakenda var spurður fyrri
spurningarinnar á undan og
hinn helmingurinn seinni
spurningarinnar á undan. Ekki sást
munur á meðaltölum eftir röðun
spurninganna. /PH
Þessi mynd af skógi í uppvexti er tekin á holtinu ofan við Hjalteyri við Eyjafjörð og sér út til Kaldbaks. Mynd / PH
Myndarlegt birkitré í nágrenni Hraunfossa með Eiríksjökul í bakgrunni.
Mynd / HKr.