Bændablaðið - 12.04.2018, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
Eins og lesendum Bændablaðsins
er vel kunnugt þá hefur umræða
um plastmengun í náttúrunni
vart farið fram hjá nokkrum
manni á undanförnum vikum og
mánuðum. Enn er þó til staðar
mikil hræsni hvað þetta varðar og
vandinn er margfalt meiri en menn
töldu fyrir örfáum misserum.
Meira að segja sjávarsaltið er
orðið mengað af plasti, sem og
loftið sem við öndum að okkur.
Hagsmunaaðilar hafa grímulaust
beitt fyrir sig umhverfis-
verndarsinnum til að hvetja til
notkunar á gerviefnum í stað þess
að nota ull og skinn af dýrum. Allt
er það sagt vera vegna væntumþykju
um dýr og náttúru. Ýmislegt er þó
á huldu um hvað verður um allt
gerviefnaruslið sem við þurfum svo
á endanum að losa okkur við. Fyrstir
til að verða fyrir barðinu á svona
tilfinningalegum blekkingarleik og
hræsni eru bændur og svo auðvitað
lífríki náttúrunnar sem þeir og allir
aðrir jarðarbúar verða að treysta á.
Þótt vitundarvakning sé að verða
meðal almennings um skaðsemi
plasts fyrir náttúruna, þá er stöðugt
verið að auka framleiðsluna á
plasti. Hvort sem okkur líkar það
betur eða verr, þá er plast um leið
mjög hentugt til margra hluta og
nær órjúfanlegur þáttur í lífsmáta
nútímafólks. Spurningin er bara
hvernig við meðhöndlum það plast
sem hverfur úr daglegri notkun og
við þurfum að loasa okkur við.
Sú ákvörðun Kínverja að hætta
að kaupa notað plast til endurvinnslu
um síðustu áramót og færa sig þess í
stað í framleiðslu úr nýju plasthráefni
mun auka enn á þennan vanda. Allt
er þetta knúið áfram af óseðjandi
peningaöflum og lífsgæðakröfum
neyslusamfélagsins.
Við drekkum plast í bjór og
drykkjarvatni
Nýjar rannsóknir eru stöðugt
að koma fram sem sýna hversu
hrikalegur plastmengunarvandinn er
að verða fyrir allt lífríki jarðar. Salt
frá Kína, Evrópu og Bandaríkjunum
sem unnið er úr sjó er nú sagt mengað
örplasti, samkvæmt frétt breska
blaðsins The Guardian. Allur þýskur
bjór frá 24 framleiðendum sem
rannsakaður var á rannsóknastofu
reyndist einnig mengaður örplasti.
Svifrykið á götum borganna
inniheldur mikið af örplasti
Samkvæmt skýrslu frá Chartered
Institution og Water and
Enviromental Managment í
Bretlandi kemur mesta magn
örþráða úr plasti úr fatnaði og úr
hjólbörðum bíla. Hjólbarðar eru
nefnilega ekki bara úr náttúrulegu
gúmmíi, heldur miklu fremur
úr nyloni og öðrum plastefnum.
Örplastmengunin meur frá öllum
ökutækjum ar á meðal frá trukkum,
rútum, strætisvögnum og rafbílum.
Menn geta þá rétt ímyndað sér hvað
það þýðir t.d. fyrir höfuðborgarbúa á
Íslandi að götur eru alla jafna mjög
illa eða ekki þrifnar. Örplast safnast
þar upp með niðurbrotnu malbiki og
salti og þyrlast upp aftur og aftur á
þurrviðrisdögum. Þessum óhroða
andar fólk svo að sér, grunlítið um
mögulega alvarlegar afleiðingar.
Engar tölur um svifryk fyrir og
eftir gatnahreinsun
Greinilegt er af fjölmiðlaumræðunni
að í Reykjavík hafa menn nær
eingöngu einblínt á kolefnismengun
frá sprengihreyflum bifreiða
sem mesta skaðvaldinn, en horft
algjörlega framhjá hættunni af
gerviefnamengun í svifrykinu og
kolefni úr malbikinu. Enda hefur
engum samanburðarmælingum
verið flíkað um það í fjölmiðlum
hvað svifryk mælist mikið fyrir
og eftir hreinsun gatna. Kannski
vart hægt að ætlast til að slíkt sé
framkvæmanlegt þar sem hreinsun á
götum er jafn ómarkviss og sjaldgæf
og raun ber vitni.
Umhverfisstofnun annast
mælingar á svifryki og hefur
Bændablaðið sent stofnuninni
fyrirspurn um þessi mál, m.a. hvað
varðar samanburð mælinga fyrir
og eftir þrif gatna í höfuðborginni.
Einnig um innihald örplasts í
svifrykinu. Svör höfðu þó ekki borist
frá stofnuninni þegar blaðið fór í
prentun.
Stofnunin starfar samkvæmt
lögum nr. 90/2002 um
Umhverfisstofnun, en hlutverk
hennar er einnig markað af
fjölda annarra laga. Hlutverk
Umhverfisstofnunar er að stuðla
að velferð almennings með
því að beita sér fyrir heilnæmu
umhverfi, öruggum neysluvörum
og verndun og sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda. Loftgæðamælar eru
samkvæmt korti Umhverfisstofnunar
staðsettir á 31 stað á landinu. Athygli
vekur að enginn slíkur mælir virðist
vera á svæðinu frá Borgarfirði,
vestur um Snæfellsnes, á öllum
Vestfjörðum, Norðurlandi vestra
og allt að Akureyri. Engir slíkir
mælar eru svo á öllu svæðinu frá
austanverðum Öxarfirði, austur um
að Reyðarfirði. Enga mæla er heldur
að finna á korti Umhverfisstofu á
svæðinu frá Reyðarfirði og allar
götur að Selfossi, fyrir utan mæli í
Vestmannaeyjum. Fimm mælar eru
hins vegar á höfuðborgarsvæðinu,
fimm á Suðurnesjum og sjö á
Reykjanesi og á Hengilsvæðinu og
að Selfossi. Einfaldast er að álykta
út frá þessu að Umhverfisstofnun
telji að svifryk skipti aðra landsmenn
engu máli.
23 sinnum meira plastrusli
sturtað á landi en í hafið
Samkvæmt skýrslunni er talið
að plastrusli sem sturtað er á
urðunarstaði í Evrópu á hverju
ári sé um 23 sinnum meira en allt
plast sem sturtað er í höf heimsins
á ári. Mikið af plastögnum verður
eftir í vatni sem hreinsað er í
vatnshreinsunarstöðvum. Því vatni
er síðan gjarnan veitt til að vökva
nytjajurtir til manneldis. Áætlað
er að með vökvunarvatninu sé
mögulega verið að bæta 430.000
tonnum af örplasti á akra Evrópu
á hverju einasta ári og um 300.000
tonnum í Norður-Ameríku. Engin
rannsókn hefur veri gerð á hvaða
áhrif þetta getur haft á heilsu manns
sem neytir fæðunnar sem þarna er
framleidd.
Við öndum líka að okkur plasti
alla daga
Enn ein rannsóknin sem The
Guardian vísar til sýndi að plasti
bókstaflega rignir yfir borgir eins
og París með regnvatni. Þar er um
að ræða rannsókn sem stýrt var af
Johnny Caspaeri hjá Parísarháskóla
(Université Paris-Est Créteil Val
de Marne) í árslok 2014. Virðist
regnvatnið skola plastagnir úr loftinu
og í skýrslunni kemur fram að það
sem fellur til jarðar í Parísarborg
geti numið um 3 til 10 tonnum af
plasti á ári. Sami hópur hafði áður
unnið rannsókn um örplast í íbúðum
og á hótelherbergjum. Niðurstaðan
um örplastið í regnvatninu þýðir
bókstaflega að Parísarbúar sem og
aðrir íbúar heimsins eru að anda að
sér plasti alla daga.
Ýmsir orsakaþættir valda þessum
ósköpum. Teppi úr gerviefnablöndum
í híbýlum manna er t.d. einn þáttur
í þessu.
Endurvinnsla er fallegt hugtak
Íslendingar eru sem betur fer að
verða sífellt meðvitaðri um að plast
er efni sem á alls ekki henda út í
náttúruna. Vegna þessarar auknu
meðvitundar er fólk í auknum mæli
farið að flokka plast, pappír og ál
sem endurvinnslustöðvar pressa
í bagga til endurvinnslu erlendis.
Þetta er vissulega göfugt en hvað
er raunverulega á bak við alla þessa
hugmyndafræði? Hvað þýðir það
t.d. þegar rætt er um að plastið sé
endurunnið erlendis?
Hvert fer plastið eftir að Kínverjar
hættu að taka við því?
Oftast heyrist Svíþjóð nefnt í því
sambandi. Ljóst er þó að hvorki
Svíar né aðrar Evrópuþjóðir hafa
verið að endurvinna allt það plast
sem til fellur, heldur treystu þær á
að geta sent stóran hluta af ruslinu
áfram til Kína til endurvinnslu. Til
að plast sé endurvinnanlegt þarf
það að vera tiltölulega hreint og vel
flokkað. Sama á við um pappír og ál.
Mikill misbrestur hefur oft verið á
slíku og þegar „ónothæfar“ sendingar
berast í endurvinnslustöðvar er
ekki um annað að ræða en að
brenna þær eða urða. Kínverjar
virðast hreinlega hafa fengið nóg
af þessu og voru að drukkna í öllu
„óhreina“ ruslflóðinu sem til þeirra
streymdi. Sögðu þeir að of mikið af
eiturefnum og öðrum óþverra væri
í úrgagnsefnunum sem þangað hafi
verið flutt og vildu um leið bæta
ímynd sína á þessu sviði gagnvart
Alþjóða-viðskiptastofnuninni
WTO. Lái þeim hver sem vill. Því
bönnuðu þeir innflutning á úrgangi til
endurvinnslu í byrjun þessa árs. Þetta
var mikið áfall fyrir Evrópuþjóðir og
Bandaríkjamenn og litlum sögum fer
af því hvað verður nú um allt ruslið
sem áður var flutt til Kína og fáir
vilja um það ræða.
Kjaftshögg fyrir
endurvinnsluiðnaðinn
Í frétt Bloomberg 6. desember
2017 kemur fram að ákvörðun
Kínverja að hætta að taka við
endalausum skipsförmum af rusli
til endurvinnslu sé mikið högg
fyrir endurvinnsluiðnaðinn á
Vesturlöndum. Á það bæði við um
notað plast og pappír. Kína hafði
verið að taka við um 51% af öllu
rusli sem sent er til endurvinnslu
og stærsti hluti þess hefur komið
frá Bandaríkjunum. Um 30%
af öllu plastefni sem til fellur í
Bandríkjunum til endurvinnslu var
sent til Kína, samkvæmt tölum
Morgan Stanley.
Á árinu 2016 voru
Bandaríkjamenn að selja Kínverjum
úrgangsefni til endurvinnslu fyrir
16,5 milljarða dollara. Þar af voru
þeir að fá fyrir úrgangsplast og
pappír um 3,9 milljarða dollara.
Það ár voru yfir tveir þriðju af öllum
úrgangspappír sem til féll sendur til
Kína og um 40% af úrgangsplasti.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Plastframleiðsla eykst hröðum skrefum á heimsvísu og plastúrgangur hrannast upp:
Endurvinnsluöngþveiti eftir að Kínverjar
skrúfuðu fyrir móttöku á plastúrgangi
– Fá önnur úrræði virðast í boði en að nota plastruslið í landfyllingar, eða fara í stóraukna endurvinnslu á plasti í hverju landi
Kínverjar hafa fengið nóg af plastrusli Vesturlandabúa sem sent hefur verið til þeirra í stórum stíl á liðnum árum í
mismunandi ástandi. Nú hafa þeir skrúfað alveg fyrir kaup á úrgangsplasti til endurvinnslu og kaupa þess í stað
nýtt og hreint hráefni til að vinna úr. Um leið hrúgast upp úrgangsplastið, öllum til ama og náttúrunni til tjóns.
Plast er í ýmsu formi og þykir einstaklega heppilegt hráefni í margvíslega
iðnaðarframleiðslu eins og föt, tölvur, síma, bíla og allt mögulegt.
Þegar ekki er lengur þörf fyrir plastpokana og annað plastdót þarf að gera
eitthvað við það. Oftar en ekki er því sturtað út í náttúruna eða í sjóinn.