Bændablaðið - 12.04.2018, Page 24

Bændablaðið - 12.04.2018, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018 Icelandic lamb veitti 21 veitingastað viðurkenningar Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, veitti 21 veitinga- og gististað viðurkenninguna „Icelandic lamb Award of Excellence“ í Súlnasal Hótel Sögu síðastliðinn föstudag. Það er markaðsstofan Icelandic lamb sem stendur að viðurkenningunum og eru þær veittar fyrir framúrskarandi matreiðslu á íslensku lambakjöti og eftirtektarverð störf við kynningu á íslensku lambakjöti til ferðamanna. Árangurinn farið fram úr björtustu vonum Í tilkynningu frá Icelandic lamb kemur fram að þetta sé í annað sinn sem viðurkenningar eru veittar samstarfaðilum Icelandic lamb á sviði veitinga- og gististaða. Dómnefnd skipuð þeim Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur, útvarpskonu hjá RÚV, Dominique Plédel Jónsson hjá Slow Food Reykjavík og Hafliða Halldórssyni, verkefnastjóra hjá Icelandic lamb, útnefndu staðina sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni. „Yfir 90 íslenskir veitingastaðir eru samstarfsaðilar sauðfjárbænda í gegnum verkefnið Icelandic lamb sem ætlað er að undirstrika sérstöðu íslenskra sauðfjárafurða með tilvísun til uppruna, hreinleika og gæða. Árangurinn hefur farið fram úr björtustu vonum og sala á lambakjöti aukist verulega hjá veitinga- og gististöðum sem taka þátt í verkefninu,“ segir í tilkynningunni. Staðirnir sem hlutu viðurkenningu eru: • Bjarteyjarsandur Hvalfirði • Eldhúsið Restaurant-Gistihúsið Egilsstöðum • Fiskfélagið • Fiskmarkaðurinn • Fosshótel Jökulsárlón Restaurant • Grillið- Hótel Sögu • Haust Restaurant - Fosshótel Reykjavík • Hótel Anna • Hótel Smyrlabjörg • Íslenski Barinn • Kopar • Lamb Inn Eyjafjarðarsveit • Matarkjallarinn • Múlaberg Bistro • Narfeyrarstofa • Rústík • Salka Húsavík • Slippurinn Vestmannaeyjum • Sushi Social • Von Mathús Hafnarfirði • VOX /smh Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði Hafðu samband 568 0100 www.stolpigamar.is Gámurinn er þarfaþing  Þurrgámar  Hitastýrðir gámar  Geymslugámar  Einangraðir gámar  Fleti og tankgámar  Gámar með hliðaropnun Til leigu eða sölu:  Gámahús og salernishús  Færanleg starfsmannaðstaða  Bos gámar og skemmur Veitingamennirnir samankomnir í Súlnasal Hótel Sögu síðastliðinn föstudag. Myndir / smh Ólafur Helgi Kristjánsson tók við viðurkenningunni fyrir Grillið. Með honum eru Oddný Steina, þá Dominique og Sigurlaug yst til hægri. Gísli Matthías Auðunsson með viðurkenninguna sem Slippurinn í Vestmannaeyjum hlaut.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.