Bændablaðið - 12.04.2018, Qupperneq 60

Bændablaðið - 12.04.2018, Qupperneq 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018 Ábúendur á Neðri-Hól í Staðarsveit keyptu jörðina 1. maí 2013 og hafa því búið þar í tæp fimm ár. Þau Snæbjörn Viðar og Þórunn Hilma keyptu jörðina með húsnæði og tækjum, en án bústofns. Síðustu ár hafa því farið í að byggja upp bústofninn og koma öllu í betra stand. Þau tóku þá ákvörðun fyrir rúmu ári að bjóða upp á gistingu á heimilinu og eru með tvö herbergi í útleigu, svo eldhúsið er alltaf þéttsetið af nýjum gestum á hverjum degi. Býli: Neðri-Hóll. Staðsett í sveit: Í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi. Ábúendur: Snæbjörn Viðar Narfason og Þórunn Hilma Svavarsdóttir Poulsen. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Snæbjörn á tvö börn, Alexöndru Ösp, 18 ára og Bjarka Snæ, 13 ára. Þau koma til okkar í sveitina um helgar og í fríum. Þórunn á þrjú börn, Hilmar Bjarna, 17 ára, Írisi Önnu, 15 ára og Sigurbjörn Ágúst, 13 ára. Strákarnir búa á bænum en Íris kemur í sveitina um helgar og í fríum. Kettirnir okkar heita Lipurtá og Doppa og eru prinsessurnar á heimilinu. Einnig eru á heimilinu fjórir Border Collie hundar, Freyja, Birta, Nellý og Tryggur. Stærð jarðar? 50 hektarar ræktaðs lands og 400 hektarar í óskiptu landi. Gerð bús? Blandað bú. Fjöldi búfjár og tegundir? 64 nautgripir, 250 kindur og 13 hænur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Fer alveg eftir árstíð en hver dagur byrjar allavega á mjöltum og gjöf og endar á því sama. Hádegið fer í að gera gistinguna klára allt árið um kring. Á sumrin nýtist tíminn milli mjalta í heyskap, girðingavinnu og verktakavinnu, bæði við að heyja fyrir aðra og keyra túrista. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Snæbjörn segir að sauðburður og smalamennskan sé það skemmtilegasta. Þórunni finnst heyskapurinn skemmtilegastur. Ekkert leiðinlegt. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Draumurinn er að byggja lausagöngufjós og fjölga nautgripum. Bæta aðstöðuna fyrir kindur og rækta upp meira land. Við stefnum á að halda áfram með gistiheimilið í þeim anda sem er núna. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Bændur eru duglegir að tala saman, en stundum helst til mikið yfir kaffibolla heima hjá sér. Við þyrftum að ná meiri samstöðu oft og tíðum. Máltækið betur má ef duga skal passar vel við hér. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Vel ef við höldum rétt á spöðunum og önum ekki út í breytingar, breytinganna vegna. Við erum með frábært hráefni, notum lítið af lyfjum í matvælaframleiðslu og bændur eru örugglega þrjóskasta starfsstétt sem til er. En til þess að við getum haldið áfram öflugri matvælaframleiðslu verða allir að standa saman. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Langbesti útflutningurinn er náttúrlega að selja útlendingunum sem koma hingað til lands þessi frábæru matvæli sem við framleiðum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk og sultur. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambafillet með fiturönd, kryddað með salti og pipar. Annars eru allar lamba- og nautasteikur mjög vinsælar. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þau eru mörg. T.d. þegar mjólkurkálfarnir voru hafðir úti á túni og við náðum þeim alltaf inn með því að labba að þeim og sveifla mjólkurfötunni. Svo var bara að hlaupa nógu hratt undan þeim inn í fjós. Einu sinni var húsmóðirin heldur svifasein, kálfarnir náðu henni og einn slysaðist til að smokra framfótunum ofan í stígvélin hjá frúnni. Eftir það hljóp hún stjórnlaus um túnið með kálfinn á eftir. Pönnukökur, lárpera og bakað grasker Hér eru gómsætar pönnukökur sem eru fylltar með hnetusmjöri og hægt að gera glúteinlausar og vegan. Pönnukökur með hnetusmjörfyllingu › 1 „hörfræegg“ eða venjulegt egg ef ekki á að vera vegan. Hörfræ egglíki í bakstri er gert með því að vinna saman hörfræ og vatn. › 1 msk. kókosolía, brædd › ½ tsk. hreint vanilluþykkni › 3/4–1 bolli mjólk eða vegan mjólk (kókos, möndlu eða soja) › 2–3 msk. agavesíróp eða hlynsíróp (eða hunang fyrir ekki þá sem ekki eru vegan) – eða bara sykur fyrir þá sem kjósa það › 1 tsk. lyftiduft › ½ tsk. matarsóti › 1 msk. náttúrulegt saltað hnetusmjör (stökkt eða mjúkt) › Klípa af salti › ½ bolli hveiti eða annað mjöl, eins og kókos, kjúklingabaunahveiti eða maíssterkja › ¼ bolli möndlumjöl › 2 msk. ósykrað kakóduft Aðferð Grunnhlutföllin til að búa til vegan- egg er ein matskeið af hörfræjum og þrjár matskeiðar af vatni, í staðinn fyrir eitt venjulegt egg. Þú þarft að mala hörfræið í fínt duft með því að nota kaffi- eða kryddkvörn. Hitið pönnukökupönnu á miðlungs hita (þú vilt að yfirborðið sé heitt en ekki mjög heitt – ekki ætti að rjúka úr olíunni þegar hún kemst í snertingu við yfirborðið). Í matvinnsluvél eða blandara er hörfræjum og vatni blandað saman og látið setjast svo í eina mínútu eða tvær. Þá er hægt að bæta við bræddri kókosolíu, agavesírópi (eða hunangi/ hlynsírópi), matarsóda, lyftidufti, salti, vanilluþykkni og mjöli til að binda allt saman. Þetta er þynnt út með möndlumjólk (byrja með 3/4 bolli og bæta svo við deigið ef þess þarf) og blandið vel saman. Smakkið og sjáið hvort það þarf meira agave eða sætu. Skiptið deiginu í tvennt og setjið kakóduft í aðra skálina og hnetusmjör í hina. Blandið saman með sleif. Bætið við möndlumjólk ef hnetusmjörið hefur gert grunninn of þykkan. Setjið tvær skeiðar af hvoru deigi á pönnukökupönnu. Steikið þar til pönnukakan er orðin þurr á kantinum og loftbólur hafa myndast í miðjunni. Snúðu þá pönnukökunni varlega við. Eldið fyrst í tvær mínútur á fyrri hliðinni og snúið svo við og eldið í eina mínútu á seinni hliðinni. Úr þessu fást um 5–6 stórar pönnukökur. Skreytið með súkkulaði og hnetusmjöri. Lárperu egg og beikon › 1 miðlungs lárpera (avókadó) › 2 egg › 1skammtur beikon › 1 sneið ostur › Klípa af salti Aðferð Hitið ofninn í 180 gráður. Byrjið með því að skera lárperuna í tvennt og fjarlægja steininn. Með skeið skaltu rífa lárperu-kjötið úr, svo er það kryddað með smá sítrónusafa, eða lime-safa, salti, pipar og bætið við hrærðu eggi. Setjið í muffins-form til að lárperan verði stöðugt í ofninum meðan hún eldast. Bakið eftir smekk og framreiðið með osti og klípu af salti – ásamt stökku beikoni. Eldið í 4–6 mínútur. Svo er lárperan líka góð fersk með eggi til hliðar. Bakað grasker með steiktum þorski › 8 msk. smjör (eða eftir smekk) › 1/2 grasker (eða sætar kartöflur, skrældar og skornar í þykkar sneiðar) bakað heilt og innvolsið tekið úr með skeið › Salt og fersk malaður svartur pipar › 1 þorskflak, skorið í 2 eða 4 bita › 2 matskeiðar balsamik- eða sherryedik 1. Hitið ofninn í 200 gráður. Bræðið smjörið í litlum potti. 2. Setjið tvær matskeiðar af bræddu smjöri á steikarpönnu og setjið graskerið ofan á. Kryddið með salti og pipar og penslið með tveimur matskeiðum af smjöri ofan á. Bakið án þess að snúa í 20 til 30 mínútur, eða þar til graskerið er orðið mjúkt. 3. Um það bil 5 mínútum áður en graskerið er klárt er loðfrí panna hituð að miðlungs háum hita í um það bil 2 mínútur; bætið við tveimur matskeiðum af smjöri. Það má strá smá hveiti á þorskstykkin og kryddið með salti og pipar. Setjið á pönnu en snúið bara einu sinni þar til fiskurinn er brúnaður á báðum hliðum og er eldaður í gegn. Setjið fiskinn á fat með graskerinu, hellið öllum safanum og smjörinu í pott og bætið smá ediki eða sítrónusafa við og framreiðið með sem sósu. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Neðri-Hóll
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.