Perlur - 01.09.1931, Page 20
136
Frá höfninni.
ViÖ Austurströndina.
PERLUR
staS þeirra gömlu, sem voru
sannkallaðir marnidrápsbollar
og miklu hættulegri til sjósókn-
ar en opnu róðrarskipin, sem
áður voru notuð. Hér varð eig-
inlega að byggja allt upp af
nýju og það kostaði of fjár.
Eyjarnar voru eins og matlyst-
ugur unglingur í hröðum vexti,
sem lagði allt fóðrið sitt i auk-
inn beinvöxt og stælta vöðva,
en lítið í fitu, sem hægt var að
grípa til til viðhalds líkaman-
um, þegar fólkið minnkaði. Og
fóðrið hefur minnkað. Síðasta
áratuginn hafa komið afaróhag-
stæð ár fyrir útgerðina, eins og
1921, 1923, 1926 og einkum og
sér í lagi 1930, en ekki nema
tvö veltiár, sem sé 1924 og 1928.
Útgerðin í Vestmanna-
eyjum er dýr, því bátar og vél-
ar slitna fljótt og oft týnast
veiðarfæri i brimrótinu á vetr-
um. En dýrustu gjöldin eru þó
mannslífin. Eyjaskeggjar heyja
baráttu sína fyrir tilverunni á
sjónum og hún er oft háð upp
á líf og dauða. 1 þeirri baráttu
hafa mörg hreystiverk verið
unnin, en oft var enginn eftir
til frásagna.
í austanroki, iðu hríð og nótt
var oft og tíðum lokað
flestum sundum.
Frá 1. jan 1908 til 31. júlí 1930
hafa farizt héðan úr Eyjum 28
vélbátar og 120 manns. Að með-
altali hefur því farizt meira en
einn bátur árlega, og oftast með
allri áhöfn. Oft kemur það
einnig fyrir, að menn hrjóta út-
byrðis, en með snarræði tekst
stundum að bjarga þeim, eink-
um ef þeir eru syndir og geta
haldið sér uppi. Þessvegna hef-
ur sund verið gert að skyldu-
Ljósm. K. Ó. B.
Ljósm. Loftur.