Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 24

Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 24
140 PERLUR * undir 300 m. hátt standberg móti norSri, en snarbratta grasbrekku móti austri, niður að botni hafnarinnar. Uppi á Klifinu er stór, slétt grasi vaxin flöt. Áfast við það er Háin, austan Herjólfsdals, og tengja Eggjar hana við Blátind vestan dalsins, en Blátindur er brattasta og næsthæsta fjallið á Heimaey. Þá tekur við láglendið, sem liggur i breiðum kraga um- hverfis Helgafell. Sunnan á Eyjunni er Sæfell og Litlihöfði með Ræn- ingjatanga, þar sem Tyrkirnir gengu á land, og loks Stórhöfði, sem er tengdur meginlandinu með mjóu eiði, girtur klettum á alla aðra vegu og vafinn i grasi hið efra. Milli Heimakletts og meginlandsins gengur inn löng vík frá austri og það er höfnin. Sunnan við hana stendur kaup- staðurinn, og er þar mestöll byggðin, en nokkurir bæir eru vestan undir Helgafelli, fyrir „ofan Hraun“. Ofarlega i kaupstaðnum stendur kirkjan, elzta hús á eynni, byggt 1774—81. Þegar komið er til Eyja siglingaleiðina frá Reykjavík, þá blasir bærinn við yfir Eiðið að sjá eins og á stórfelldu leiksviði, sem náttúr- an hefur þar sett upp. Heimaklettur og Klifið mynda hliðartjöldin fram með leiksviðinu, en í baksýn er Helgafell. Þessi fjöll mynda mikilfeng- lega og fagra umgjörð um byggðina. í standbjörgunum á Heimaey og í sumum úteyjunum eru fagrir og einkennilegir hellar. Þekktastur er Klettshellir í Yztakletti, enda blasir hann við frá skipalæginu á ytri höfninni. Fegurri eru samt Fjósin, norð- vestan í Stórhöfða. Það er stór hvelfing, sem gengur inn í bergið frá sjó og má fara á vélbát inn eftir henni allri. Þegar kvöldsólin kastar geisl- um sínum inn í þenna helli, þá varpar hún einkennilegum töfralitum á veggina og hvelfinguna, sem er grænleit utantil, en gengur yfir í dumb- rautt, er innar dregur. Uppi í veggjunum eru sillur hingað og þangað og er á þeim sjófuglabyggð. Horfa þaðan húsráðendur forvitnisaugum á komumenn. í Hænu, lítilli eyju vestur af Blátindi, er kafhellir. Dyr hans eru svo lágar, að inn í hann verður ekki róið nema á fjöru, en fyrir innan hækkar hvelfingin, og fellur birtan á hana gegnum sjóinn og gefur henni blágrænan lit, enda er mælt að hellir þessi sé líkur hinum fræga Blá- helli á eyjunni Caprí. Vestmannaeyjar öðluðust kaupstaðarréttindi 1918. Hinn ungi bær tók í arf frá móður sinni, Vestmannaeyjasýslu, hina hörmulegustu vöggugjöf, hafnargerðina, eitthvert mest mislukkaða fyrirtækið á land- inu. Hafnargarðarnir, sem byrjað var á 1914, voru áætlaðir allt of veikir í fyrstu og hrundu þvi til grunna. Nýir garðar voru reistir, en það fór á sömu leið. Sumar eftir sumar var unnið að þessu nauðsynjaverki, en vetrarbrimið molaði jafnóðum járnbenta steinsteypuna fremst i görðun- um og velti brotnum björgunum niður í djúpið. Á þessu gekk ár eftir ár. Nú hefur loks fyrir nokkrum árum tekizt að gera þessi mannvirki svo úr garði, að nú brotnar austansjórinn á þeim án þess að þau bifist, en kostnaðurinn er líka orðinn um 2 milljónir króna, í stað þess að hin upprunalega áætlun var kr. 127500,00. Auðvitað ber ríkið sinn hluta af kostnaðinum, enda ber það bæði siðferðilega og fjárhagslega ábyrgð a

x

Perlur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Perlur
https://timarit.is/publication/1437

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.