Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 35

Perlur - 01.09.1931, Blaðsíða 35
PERLUR 151 * »Ég er reiðubúinn*, sagði Claude. »Ég svaf vært í nótt, og ég mun sofa enn værara næstu nótt«. Presturinn kom og þar næst böðullinn. Claude heilsaði prestin- um með lotningu, og tók vingjarnlega á móti böðlinum. Meðan hár hans var klippt, voru böðullinn og menn hans að tala um kóleruna, sem geysaði í Troyes. »Ég þarf ekki að kvíða kólerunni«, sagði Claude brosandi. Hann hlustaði á prestinn með mikilli athygli. Hann sagðist iðr- ast þess, að hafa ekki aflað sér þekkingar á kristindómsfræðum. Honum höfðu verið fengin litlu skærin eftir beiðni hans. Onnur álman var brotin. Hún sat föst í brjósti hans. Hann bað fangavörð að fá Albin það, sem eftir var af skærunum. Hann bað þá, sem bundu hendur hans, að leggja fimm franka peninginn, sem nunnan gaf honum, og nú var aleiga hans, í hægri hönd sína. — Hann gekk út úr fangelsinu klukkan þrjú kortér í 8. Hann var fölur í bragði, en gekk með ákveðnum skrefum og horfði stöðugt á krossinn, sem presturinn bar fyrir honum. Markaðsdagur hafði verið ákveðinn til aftökunnar, svo að sem flestir gætu verið viðstaddir. Claude gekk rólegur upp á höggpallinn. Hann gerði prestinum bendingu, að taka fimm frankana úr hendi sér, þegar aðstoðarmaður böðulsins fór að binda hann niður á höggstokkinn, og sagði: »Til fátækra*. Klukkan sló í sama bili tímaslagið og hljómurinn af því tók yfir orð hans. Presturinn hváði eftir orðum hans. Claude beið bils tveggja slaga og tók þá upp aftur blíðlega: »Til fátækra*. Um leið og klukkan sló áttunda slagið, tók höfuðið af bol þessa greinda og göfga manns.

x

Perlur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Perlur
https://timarit.is/publication/1437

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.