Perlur - 01.09.1931, Síða 46

Perlur - 01.09.1931, Síða 46
„Þíi segir, að Tómas gamli hafi dáið úr gigtveiki". „Ekki sagði ég það. Hann hafði reyndar gigt, en það var ekki hún, sem drap hann. Danðameinið var, að lœknirinn hafði borið spiritus á hakið á honum, en Tómasi gamla þótti sopinn góður og gerði tilraun til að sleikja spíritusinn af, en hálsbrotnaði". * Skósmiðurinn: „Menn eru að tala um, hve öllu sé vísdómslega niður- raðað i heiminum, en hversvegna voru þá ekki mennirnir skapaðir með fjóra fætur?“ ★ Presturinn (við Borghildi gömlu, sem hann mætir á götunni): „Það verður messufall næstu tvo sunnu- daga, því ég ætla að taka mér sumarleyfi". Borghildur: „Þá held ég nú að fjandinn verði ekki iðjulaus á með- an, því ekki fær hann sér sumar- leyfi“. Presturinn: „Mér finnst nít að við ættum ekki að taka hann til eftirbreytni“. Borghildur: „Já, það er nú satt, prestur minn. En ástundun og ár- vekni mættum við öll af honum læra“. ★ A: „Já, hvað er að tala um kven- fólkið, aldrei getur jtað þagað yfir nokkrum hlut“. B: „Ætli ekki það! Konan mín var mér ótrú í tíu ár og minntist aklrei á það einu orði“. Auglýsing: Söltuð síld er til sölu hjá N. kaupmanni, sem er alveg beinlaus. ★ Öldrnð ógift kona: „Það er hræðilegt, hvað öllu er stolið og rænt nú á dögum. Öllu liafa þeir rænt og ruplað frá mér, en mig sjálfa hafa ])eir skilið eftir“. ¥ pegar lögtaksmaðurinn kom. ★ Dómarinn: „Þér eruð dæmdur í finun ára hegningarhúsvinnu. Hvað haldið þér, að þér vilduð helzt gera?“ Fanginn: „Ef dómarinn hefði ekki neitt á móti því, þá vildi ég helzt vera til sjós“.

x

Perlur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Perlur
https://timarit.is/publication/1437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.