Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 20202
Búfénaður landsmanna taldist
vera 1.556 dýr, en inni í þeirri
tölu er áætluð hrossaeign upp á
71.000 hross, en erfiðlega virðist
ganga að fá sannar rauntölur um
hross frá eigendum þeirra.
Hefur þetta verið viðvarandi
vandamál um áraraðir þó reynt hafi
verið að gera ýmsar ráðstafanir á
undanförnum árum til að lagfæra
framkvæmd gagnasöfnunar um
hrossaeign.
Samkvæmt haustskýrslum
bænda eru hrossin talin vera 54.715
en þeir sem best þekkja til telja þá
tölu ekki standast. Því er sett hér
inn áætluð hrossaeign upp á 71.000
hross. Þarna er skekkja upp á 16.285
hross sem hrossaeigendur hljóta
sóma síns vegna að leggja áherslu
á að koma á hreint.
Tölur um svín sýna einungis
gyltur og gelti, enda erfitt að henda
reiður á fjölda grísa frá mánuði
til mánaðar. Það sama á við um
fjölda unga í alifuglaeldi. Í sauðfé
er einungis verið að tala um vetr-
arfóðrað fé, ekki lömb sem fæðast
að vori og er slátrað að hausti. Í
loðdýraeldi er líka einungis verið
að tala um fullorðin eldisdýr, högna
og læður. /HKr.
„Þetta er stærsta lamb sem
fæðst hefur hér á bæ,“ segir
Halldís Gríma Halldórsdóttir á
Bjarnastöðum í Öxarfirði. Þar
reka foreldrar hennar, Halldór S.
Olgeirsson og Elín Maríusdóttir,
sauðfjárbú. Undir síðustu helgi
fæddist þar 9 kílóa lambhrútur,
ansi hreint stór og stæðilegur.
Halldís Gríma segir að eitt sinn
fyrir nokkrum árum hafi fæðst 7
kílóa lamb á bænum, en Trölli, 9
kílóa lambið, sé það allra stærsta
sem þau hafi áður séð. Burður gekk
hægt, en tókst að lokum.
Heimilismenn á Bjarnastöðum
börðust við að halda lífi í lambinu
en það lifði í þrjá daga. Telur hún
að skaði hafi orðið innvortis í burði.
Lambhrúturinn stóð upp og hann
hélt haus.Móðir lambhrútsins er
tvævetra undan hrút úr Broddanesi á
Ströndum en faðirinn er heimahrútur
á Bjarnastöðum.
Um 350 ær bera þetta vorið
á Bjarnastöðum í Öxarfirði og
segir Halldís Gríma að vel gangi
í sauðburði það sem af er. „Við
erum ríflega hálfnuð núna og það
gengur allt samkvæmt áætlun,“
segir hún. /MÞÞ
FRÉTTIR
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
BREKKA 34 - 9 fm
518.000 kr.
Tilboðsverð
STAPI - 14,98 fm
389.000 kr.
Tilboðsverð
NAUST - 14,44 fm
34 mm
34 mm44 mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Níu kílóa lambhrútur fæddist á bænum Bjarnastöðum i Öxarfirði undir síðustu
helgi. Sá stærsti sem þar hefur komið í heiminn. Mynd / Halldís Gríma Halldórsdóttir
Öxarfjörður:
Níu kílóa lambhrútur fæddist
á bænum Bjarnastöðum
Lambhrúturinn lifði í þrjá daga, en
líkast til hefur eitthvað gefið sig í
honum innvortis við burðinn sem
gekk hægt fyrir sig enda hrúturinn
engin smásmíði. Mynd / Elín Maríusdóttir
Litla lambið, Pæja Pons, er tvílemba, en systir hennar er miklu stærri.
Agnar lítið lamb á
Neðri-Dálksstöðum
„Það gengur mjög vel með gimbr-
ina, sem hefur fengið nafnið Pæja
pons, hún er sterkur karekter,
sem á örugglega eftir að gera það
gott þrátt fyrir að fæðast svona
ofboðslega lítil, eða rétt um 600
grömm,“ segir Hanna María
Brynjólfsdóttir, sauðfjárbóndi
á bænum Neðri-Dálksstöðum
skammt frá Akureyri.
Litla lambið er tvílemba, syst-
ir hennar er miklu stærri. Mamma
lambanna heitir Kisa og pabbi þeirra
Hreinn. Á bænum eru um 70 kind-
ur og reiknað er með 130 til 150
lömbum í vor. Hanna María tók
meðfylgjandi myndir af Pæju Pons
og lambi, sem er jafn gamalt og í
eðlilegri stærð, munurinn er mjög
mikill. /MHH
Mikill stærðarmundfur er á systrun um.
80.872; Nautgripir
5,20%
415.949; Sauðfé
26,73%
3.155; Svín; 0,20%
71.000; Hross
4,56%14.325; Loðdýr;
0,92%
970.824; Alifuglar;
62,39%
Fjöldi búfjár á Íslandi
samkvæmt haustskýrslum 2019
Nautgripir
Sauðfé
Svín
Hross
Loðdýr
Alifuglar
Heimild: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
.
Sauðburður er nú að ná hámarki og frjósemi víða góð. Þessi golsótta ær
karar hér nýborin lömb sín á bænum Syðstu-Fossum í Borgarfirði.
Mynd /Unnsteinn Snorri Snorrrason
Búfénaður landsmanna taldist vera 1.556 dýr, en inni í þeirri tölu er áætluð hrossaeign upp á 71.000 hross.
Búfjáreign Íslendinga var samtals
um 1,6 milljónir dýra í árslok 2019