Bændablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202022
Brynja Davíðsdóttir á Selfossi er með keramikdellu:
Málar fugla á bolla í gríð og erg við miklar vinsældir
Vorið er komið og fuglarnir stað
festa það með komu sinni, einn af
öðrum. Landsmenn hafa fagnað
komu þeirra undanfarnar vikurn
ar og hafa talað mikið saman og
deilt myndum á samfélagsmiðl
um meðan á samkomubanninu
stendur.
Einn þessara landsmanna sem
fylgist með komu farfuglanna er
Brynja Davíðsdóttir, betur þekkt
síðustu 25 árin sem „Brynja ham-
skeri“. Brynja er með meistarapróf
í náttúru- og umhverfisfræði frá
Landbúnaðarháskóla Íslands (2013)
og hefur stundað diplómanám í leir-
list í Myndlistaskólanum í Reykjavík
í vetur.
Brynja hefur lengst af mennt-
að sig og unnið störf sem tengj-
ast varðveislu, vernd eða fræðslu
um íslensku náttúruna og þá helst
mófuglanna. Hún fagnaði því
sérstaklega að fá að vinna heima
undanfarinn mánuð þar sem hún
hefur fengið útrás fyrir uppsafnaðri
vinnugleðinni við frjálsa leirsköpun.
Undanfarið rúmt ár hefur hún leirað
fugla og dýr fríhendis í steinleir og
rennt bolla sem hún teiknar á fugla-
myndir og brennir svo við 1260 °C.
Heilluð af fuglum
„Mér hefur stundum fundist, hér-
lendis, fólk leyfa fuglafræðingum
að tjá sig mest um fuglana, í stað
þess að eigna sér þá fyrst og fremst
sjálft með góðri þekkingu og hjartað
að leiðarljósi. En það er að aukast
að venjulegt fólk, konur og karlar,
taki t.d. myndir af fuglum og deili
á fuglasíðum samfélagsmiðlanna
og ég fagna því sérstaklega því um-
ræðan um algenga fugla er að verða
meiri, og einskorðast ekki lengur
við fuglafræðinga eða veiðimenn.
Nú ber meira á því að fólk sýni
áhuga á fuglunum, skilji lífshætti
þeirra og nauðsyn þess að spilla ekki
náttúrunni með aðgerðum sínum,
heldur varðveiti það litla líf sem
þrífst hér á þessari harðbýlu eyju.
Ég hef verið heilluð af fuglum síðan
ég var lítil, og mér finnst það for-
réttindi að fylgjast með þeim koma
heim á vorin og ala upp sína unga
áður en fer að dimma aftur í ágúst,“
segir Brynja.
Ljáir náttúrunni rödd sína
Brynja segir að leirlistin sín og upp-
stoppunin, sem hún stundar líka,
sé hennar leið til að ljá náttúrunni
rödd sem nær inn á heimili venju-
legs fólks, til að minna okkur á hvað
vorið og lífið á Íslandi er yndislegt
og að við megum ekki gleyma því
þó að við dveljum með hugann í
mannheimum að stórum hluta. „Ég
hef ótrúlega sterka köllun til að
vinna með höndunum og hef verið
með hugann við fugla og dýralíf
heimskautanna frá því að ég man
eftir mér. Ég vildi helst geta unnið
eingöngu við það að skapa þessa
list mína, og að varðveita og miðla
þessari sögu og aðdáun minni á
dýralífinu okkar.“
Upplagðar tækifærisgjafir
Nú í apríl hefur Brynja staðið fyrir
sölu á bollum á instagram-síðunni
sinni, „brynja.d“, og Facebook-
síðunni „Brynja Leirlist“ og var
þeim afar vel tekið, „Bollarnir og
stytturnar hafa selst vel sem persónu-
legar eigur og tækifærisgjafir. „Nú
er ég í óða önn að fylla brennsluofn-
inn af fleiri fuglabollum sem verða
birtir og seldir á síðunum mínum
þar til ég get tekið á móti gestum í
vinnuskúrnum mínum í Miðtúninu á
Selfossi eftir 4. maí næstkomandi,“
segir Brynja. /MHH
LÍF&STARF
Brynja, sem hefur heillast af keramiki, en bollarnir eru renndir og skreyttir af henni með handmáluðum íslenskum
fuglum. Myndir / Úr einakasafni
Brynja hefur verið heilluð af íslensku bláklukkunum frá því að hún vann sem landvörður á Teigarhorni sumrin 2013
og 2014. Ljósmynd/úr einkasafni
Músarindill og hrossagaukur eru í
uppáhaldi hjá Brynju, en hún teiknar
fríhendis á bollana sína, sem hún
handrennir líka svo engir tveir geta
orðið eins.
Höfundarmerking er auðvitað á sín-
um stað.
Konur í kjötiðnaði hvetja greinina til að endurmeta allt framleiðsluferlið:
Alþjóðlega kjötskrifstofan hvetur
til sjálfbærari framleiðsluhátta
Fyrirbæri sem kallast Alþjóð
lega kjöt skrifstofan, eða „Inter
national Meat Secretariat
– IMS“, vinnur nú að því að
fá kjötiðnað heimsins til að
endur skilgreina sig og endur
bæta framleiðsluaðferðir. Þar
verði áherslan lögð á sjálfbærni,
dýravelferð og framleiðslu á
kjöti sem ekki ógni heilsu neyt
enda.
Hugmyndin er runnin undan
rifjum kjötviðskiptakvennanna
Laura Ryan frá Bretlandi og
Ashley Gray hjá World Butchers‘
Challenge í Ástralíu. Vinna við
þetta verkefni hefur verið í
undir búningi um hríð en breytt-
ar aðstæður vegna útbreiðslu
COVID-19 hefur leitt til þess að
verkefnið hefur komist á flug í
gegnum vikulega fjarfundi.
Vilja að kjötgreinarnar
skapi sér jákvæðari ímynd
Benda þær stöllur á að kjötfram-
leiðendur vinni við stöðugt verri
aðstæður við framleiðsluna sem
gefi mjög neikvæð skilaboð út
í samfélagið um neyslu á kjöti.
Reynt hafi verið að sporna við
þessu með einstaka herferðum
sem leggja áherslu á að fólk kaupi
kjötvörur úr nærsamfélaginu og
styðji bændur sem hafa sjálfbæra
framleiðslu að leiðarljósi. Þessa
viðleitni þurfi að lyfta á hærra plan
á alþjóðlega vísu. Vilja þær snúa
þróuninni við og bæta ímynd kjöt-
framleiðslu með bættu dýraeldi og
framleiðsluháttum. /HKr.
UTAN ÚR HEIMI
COVID-19 og kjötmarkaðurinn í Evrópu:
Aukin frysting á kjöti rýrir
gæði og eykur kostnað
Hrun í rekstri veitingastaða og
matvælaþjónustu í Evrópu vegna
COVID19 hefur leitt til aukinnar
frystingar á kjötvörum. Það eykur
kostnað og mun að mati kjötráðs
NorðurÍrlands (LMCNI) leiða til
hækkunar á matvælaverði.
Vegna stöðunnar á markaðnum
hefur verið gripið til þess ráðs að
frysta kjöt í auknum mæli. Talið er
að um sé að ræða 36.000 tonn af
kindakjöti og 25.000 tonn af nauta-
kjöti. Það minnkar verðmæti kjöts-
ins um leið og kostnaður hleðst upp
vegna geymslu á kjötinu í þrjá til sex
mánuði. Að þeim tíma loknum er
áætlað að líf fari að færast í eðlilegra
horf og viðskipti með kjöt að kom-
ast á eðlilegt ról. Evrópusambandið
hefur því lagt fram tillögur um björg-
unaráætlun fyrir matvælageirann upp
á allt að 80 milljónir evra til naut-
griparæktarinnar, mjólkurframleiðslu
og til kindakjötsframleiðslunnar til
að mæta þessum kostnaði og tekju-
tapi framleiðenda. Þar af eiga 30
milljónir evra að fara til mjólkur-
framleiðslu, 26 milljónir til nauta-
kjötsframleiðslu og 20 milljónir evra
til kindakjötsframleiðslunnar. /HKr.