Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 29
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
TINDAR OG
HNÍFAR
GOTT ÚRVAL
HÚSAEINANGRUN
Íslensk hönnun, framleiðsla og gæði. EPS húsaeinangrun fyrir sökkla, plötur, veggi og þök er CE merkt
og hentar vel þar sem einangrunin þarf að standa af sér mikinn þrýsting og virka sem rakamótstaða.
EPS húsaeinangrun er framleidd í 25 – 200 mm þykkum plötum. Borgarplast framleiðir einnig ýmsar
stærðir og gerðir EPS einangrunarlausna s.s. vatnsbretti, gluggaþynnur og þaklista.
YFIR 50 ÁRA REYNSLA
BORGARPLAST HF.
Húseinangrun og frauðkassar:
Grænásbraut 501, 262 Reykjanesbæ, Sími: 561 2210
Fráveitulausnir og ker:
Völuteig 31, 270 Mosfellsbæ, Sími: 561 2211
borgarplast.is
Hýsi-Merkúr hf. | Lambhagavegur 6, 113 Reykjavík
Sími 534 6050 | hysi@hysi.is | www.hysi.is
11/4/2012
16
Færanleg Bogahýsi
& Gróðurhús
Endalausir möguleikar
Margar gerðir Til á Lager
framan tölvuskjá með gögn um kýr
og sæðingar úr Huppu.“
Niðurstaða ritgerðarinnar
Það leikur eflaust mörgum forvitni á
að vita að hverju Þórdís komst í rit-
gerð sinni og hver niðurstaða hennar
er eftir svona stórt verkefni.
„Já, þegar stórt er spurt en helstu
niðurstöður eru að ekki ætti að skil-
greina frjósemi óborinna kvígna og
frjósemi mjólkandi kúa sem sama eig-
inleikann. Einnig að fylgni frjósemi
og afurða er óhagstæð og jafnframt er
óhagstæð erfðaþróun í getu kúa til að
festa fang eftir að sæðingar hefjast. Í
lok ritgerðarinnar legg ég til að núver-
andi frjósemiseiginleika, „Bil á milli
burða“, verði skipt út fyrir þrjá eigin-
leika í nýju frjósemiskynbótamati: 1)
Fanghlutfall við fyrstu sæðingu fyrir
kvígur, 2) Bil á milli burðar og fyrstu
sæðingar (dagar), 3) Bil á milli fyrstu
og seinustu sæðingar (dagar).“
Úrelt kynbótamat fyrir frjósemi
– En munu niðurstöðurnar koma ís-
lenskum kúabændum vel að notum?
„Já, vegna þess að núverandi kyn-
bótamat fyrir frjósemi er orðið úrelt
og löngu kominn tími á að breyta
til hins betra. Frjósemi í íslenskum
kúm hefur dalað undanfarin ár og
ekki seinna vænna að koma í veg
fyrir frekari neikvæða þróun. Ef til-
lögur ritgerðarinnar komast í gagnið
ætti að fást betra mat á frjósemi dætra
sæðingarnauta fyrr en við núverandi
mat.“
2,9 kálfar á kú
Þegar Þórdís fékk spurninguna um
hvað íslenska kýrin eigi að jafnaði
marga kálfa á sínu æviskeiði kemur
fram hjá henni að í niðurstöðum
skýrsluhalds hjá RML fyrir 2019
kemur fram að meðalfjöldi burða við
förgun er 2,9. „Það er dýrt að ala upp
kvígur í 2+ ár fyrir fyrsta burð, svo
því fleiri kálfum sem kýrnar bera,
því betra. Svo lengi sem heilsufar
og annað slíkt sé í lagi. Frjósemi
og ending eru mikilvægir þættir í
hagkvæmri nautgriparækt,“ segir
Þórdís.
Stærri bú og fleiri mjaltaþjónar
– Að lokum er Þórdís spurð hvernig
hún sjái kúabúskap á Íslandi þróast
næstu árin og hvernig henni lítist á
stöðu greinarinnar í dag.
„Ég sé fram á áframhaldandi
þróun síðustu ára, stærri bú, fleiri
mjaltaþjóna og frekari framfarir í
afurðum. Ég vona að íslenskir kúa-
bændur verði jákvæðir gagnvart
framtíðaráskorunum og geri sér
grein fyrir að þeir eru að taka þátt í
því að vernda verðmætan kúastofn
sem er einstakur á heimsvísu. Ég vil
hvetja bændur til að vera duglegir að
sæða kvígur og kýr og taka þannig
virkan þátt í mikilvægu kynbóta-
starfi sem stuðlar að erfðaframförum
í kúastofninum og er okkur öllum í
hag. Hvað sjálfa mig varðar þá er ég
harðákveðin að starfa við landbúnað
á einn eða annan hátt í framtíðinni.“
/MHH
Fallegasti staður
á Íslandi?
– Sunna systir
verður mjög
móðguð ef ég segi
eitthvað annað en
Skagafjörður.
Uppáhalds bíla-
tegund? – Veit
ekkert um bíla, annars Massey
Ferguson.
Hvað finnst þér best að
drekka? – Ískalda mjólk úr
mjólkurtanknum í Keldudal.
Fallegasta kúanafnið? – Huppa
er voða klassískt.
Uppáhaldstala? – Pass.
Hvað er það besta sem þú færð
að borða? – Grillaðir ærvöðvar.
Landbúnaðarháskóli Íslands,
hvað er best við skólann?
– Lítið samfélag af fólki sem
hefur sömu áhugamál og ég.
Hvaða íslenski tónlistarmaður
er í mestu uppáhaldi hjá þér?
– GDRN
Undanrenna, léttmjólk eða
nýmjólk? – Ísköld mjólk úr
mjólkurtanknum í Keldudal.
Fyrirmyndin þín í lífinu?
– Foreldrar mínir og ömmur og
afar.
Hraðaspurningar á Þórdísi