Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 37
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is
AKURShús - timbureiningahús
íslensk hönnun
& framleiðsla
Afhent samsett á byggingarstað eða ósamsett í einingum
– Við allra hæfi –
„
Kannaðu málið á
akur.is
og pantaðu frían
húsabækling
Margar stærðir
og gerðir frá
93 - 227m2
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Hafðu
samband
568 0100
www.stolpigamar.is
Gámurinn
er þarfaþing
Þurrgámar
Hitastýrðir gámar
Geymslugámar
Einangraðir gámar
Fleti og tankgámar
Gámar með hliðaropnun
Til leigu eða sölu: Gámahús og salernishús
Færanleg starfsmannaðstaða
Bos gámar og skemmur
UTAN ÚR HEIMI
Samtök verkafólks í matvælaiðnaði í Bandaríkjunum óttast að verið sé að setja
matvælageirann í stórkostlega hættu og að fjöldi starfsmanna muni láta lífið.
COVID-19 skekur Bandaríkin:
Þúsundir starfsmanna í
kjötiðnaði hafa smitast
– Fjölda kjötiðnaðarfyrirtækja lokað
Samkvæmt heimildum samtaka
verkafólks í kjötiðnaði og fleiri
greinum í Bandaríkjunum (United
Food Commercial Workers -
UFCW) höfðu meira en 5.000
starfsmenn í kjötpökkunarfyrir-
tækjum smitast af kórónaveirunni
í síðustu viku. Þá höfðu 1.500
starfsmenn UFCW í kjötvinnslum
einnig smitast og hafði 13 kjöt-
iðnaðarstöðvum verið lokað.
Lokun kjötiðnaðarstöðvanna
hefur haft áhrif á 24.500 starfs-
menn og leitt til 25% samdráttar
í svínaslátrun og 10% samdráttar
í slátrun á nautgripum. Kölluðu
verkalýðssamtökin eftir viðbrögð-
um frá stjórnvöldum í Hvíta húsinu
í Washington og að viðbragðsteymi
forsetans tryggði öryggi starfsmanna
í kjötiðnaði.
Öryggismál verði sett í forgang
Rituðu forsvarsmenn UFCW bréf
til Mike Pence varaforseta, sem
fer með yfirstjórn viðbragðsteym-
isins, þar sem kallað var eftir að
öryggismál verkafólks í matvæla-
iðnaði yrðu sett í forgang. Óskað
var eftir að sjúkdómsgreiningar
vegna COVID-19 yrðu stórefldar
og að þeir sem greindust jákvæðir
yrðu settir í einangrun. Bent er á að
starfsfólk í matvælaiðnaði og ekki
síst fólk sem vinnur í kjötpökkunar-
stöðvum sé í mjög mikilli hættu á
að smitast af COVID-19 sem geti
stóraukið útbreiðslu veikinnar. Ef
ekkert verði gert sé verið að setja
matvælageirann í stórkostlega hættu
og fjöldi fólks muni láta lífið.
Forsetinn skipar sláturhúsum
og kjötvinnslum að starfa
Donald Trump, forseti Banda-
ríkjanna, brást við þessum vanda
og gaf einfaldlega út tilskipun 28.
apríl um að það „ætti“ að halda
kjötvinnslunum opnum. Er þessi
tilskipun gerð í skjóli neyðarlaga
sem heita „Defense Production Act“.
Byggir forsetinn á því að það sé mik-
ilvægt fyrir fæðuöryggi þjóðarinnar
að halda uppi vinnslu á nautakjöti,
svínakjöti og alifuglakjöti.
Trump tjáði fréttamönnum einnig
að hann myndi verja sláturhús og
vinnslur ef þær yrðu lögsóttar af
starfsmönnum sem smitast af kór-
ónavírus. Ekkert er gefið upp í
fyrirskipun forsetans hvernig eigi
að verja starfsmenn fyrir smiti.
Fomaður stærstu samtaka verka-
lýðsfélaga í þessum geira segir að
stjórnvöld verði að hafa öryggi
starfsmanna sláturhúsa og kjöt-
vinnsla í algjörum forgangi í þessu
máli. /HKr.
Bændablaðið Næsta blað kemur út 20. maí