Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202042
UTAN ÚR HEIMI
Til voru fræ,
Í fílaborginni Delfía, innan
Pennsylvaníuríkis Bandarík janna,
heimsótti ég þennan garð, sólrík-
an dag júlímánaðar. Hafandi oft
rekist á texta um John Bartram
og fjölskyldu hans, fannst mér
áhugavert að geta heimsótt garð
þeirra.
Ekki skemmir fyrir að hann er
talinn elsti upphaflegi grasagarður
N-Ameríku. Grasagarðurinn sem
slíkur er stofnaður þegar Bartram
flytur þangað árið 1728 og hófst þá
bygging steinhússins í garðinum,
hannað og byggt af John Bartram
sjálfum.
Líklega flokkast þetta sem lítill
garður, einungis 3,2 ha að flatarmáli,
skilgreindur sem grasagarður og trjá-
safn. Honum tilheyra þó einnig aðrir
16 ha, og þess gætt að halda honum
sem garði fyrir allan almenning, með
góðri tengingu við nærsamfélagið.
Aðgangur er frír, svæðið mjög opið
og óformlegt, og fólk hvatt til að
koma með fjölskylduna og jafnvel
vera með samkomur á svæðinu.
Barnaafmæli var einmitt í fullum
gangi þegar við heimsóttum garðinn
og jók á ánægjuna að sjá hversu
mikla tengingu nágrannafjölskyldur
hafa við garðinn.
Sýnishorn af grænmetisræktun
er til staðar og rétt fyrir utan sjálf-
an garðinn er svo býflugnarækt til
hunangsframleiðslu fyrir hverfin í
kring. Svæðið í heild liggur niður að
ánni Schuylkill, en meðfram henni
er hægt að ganga, hjóla, veiða og
sigla, eða bara slaka á og njóta
kyrrðarinnar. Einnig er fuglalíf
þarna þónokkuð og að sjálfsögðu
er garðurinn ekki laus við íkorna.
Hefur garðurinn yfir sér ákveðinn
afslappaðan sjarma og gaman að
sjá samfélagslegu tenginguna við
eitthvað svona sögulegt sem hefur
hlutverk almenningsgarðs um leið.
Eitthvað sérlega notalegt að geta
haft svona í hverfinu sínu, en fyrir
utanaðkomandi er sennilega lítið
þangað að sækja nema að sumri til.
Úr flórnum í flóruna?
Fyrir þá sem þekkja ekki til þá var
John Bartram merkur plöntusafnari,
landkönnuður og grasafræðingur og
rétt að fara leifturhratt yfir helstu
atriði lífshlaups hans. Fæddur 1699
í Pennsylvaníu, ólst upp á býli for-
eldra sinna, snemma heillaður af
plöntum og náttúrunni almennt, en
ekki síst nytjaplöntum sem tengdust
góðri heilsu. Síðar kemur áhugi hans
á viðskiptahliðinni, varðandi sölu á
plöntum, svo líklega má flokka hann
einnig sem viðskipta- eða verslunar-
mann, eða kannski bara sem góðan
bónda.
Meðal hans þekktustu afreka má
nefna að hann var stofnmeðlimur,
ásamt ekki ómerkari mönnum en
Benjamin Franklin og fleirum, í
American Philosophical Society.
Hann er ekki síður þekktur fyrir
ritun ferðasagna sem veittu mjög
áhugaverða innsýn í Ameríku þess
tíma og skrásettu jafnt ferðalög,
samskipti og flóru.
Bartram er oft nefndur faðir
amerískrar grasafræði og var einn
fyrsti samstarfsmaður hins sænska
Kalla Linnulausa (Carls Linnaeus)
í N-Ameríku. Sá merki maður gekk
það langt að kalla Bartram eitt mesta
náttúrutalent grasafræðinga heims-
ins.
Áskriftarboxarinn Bartram
Bartram var um tíma ein helsta upp-
spretta Linnaeusar af lýsingum og
sýnum úr flóru þessa svæðis enda
þá einn helsti fræsafnari amerískrar
flóru. Hann uppgötvaði afar mikið af
áður óskráðum plöntum í N-Ameríku
á ferðum sínum en flestar voru þær
nefndar af móttakendum þeirra í
Evrópu, þ.á m. Linnaeus. Bartram
sendi plöntur sem honum var full-
ljóst að voru ólíkar því sem áður
var þekkt, tók það jafnvel fram, en
eftirlét móttakanda staðfestinguna á
því sem og heiðurinn af nafngiftinni.
Þær plöntur sem hafa þó verið við
hann kenndar má þekkja á orðinu
„bartramia“ í latneska heitinu. Með
tímanum dró úr samskiptum þeirra
Bartrams og Linnaeusar en áætlað er
að Bartram-feðgarnir hafi sameigin-
lega uppgötvað yfir 200 amerískar
plöntutegundir.
Söfnunarferðir hans þróuðust
yfir í að senda árlega safn fræja
og plantna, alla jafna þurrkaðra, til
Evrópu í kössum sem hægt var að
panta í áskrift og voru kenndir við
hann (e. „Bartram´s boxes“). Eins
og mörgum er eflaust ljóst var ekki
alltaf auðvelt að halda uppi reglu-
legum sendingum yfir Atlantshafið á
þessum tíma og settu m.a. stríð strik
í reikninginn. Oftast tókst það þó á
endanum, þökk sé alþjóðlegum hópi
fólks sem áttaði sig á mikilvægi þess
að koma sendingunum á leiðarenda.
Um það og margt fleira er fjallað
m.a. í ágætis bók sem nefnist „The
Brother Gardeners“ eftir Andrea
Wulff og óhætt er að mæla með fyrir
áhugasama.
Allt ofangreint, en þó sérstak-
lega síðastnefndir flórukassar,
leiddi til þess að hann var skipaður
sérlegur konunglegur N-Ameríku
grasafræðingur Bretakonungsins
Georgs III síðustu 12 ár ævinnar
og fyrir vikið áskotnaðist Kew
Gardens mikið af fræjum frá
honum og fóru sýni einnig til garð-
anna í Oxford og Edinburgh svo
dæmi sé tekið.
Frá Jóni til Jóns
En John er ekki sá eini í fjöl-
skyldunni sem enn er minnst því
sonur hans, William, var einnig
álitinn mikill náttúrufræðingur, auk
þess að hafa ritað ekki síður áhuga-
verðar sögur af landkönnun sinni
og því til viðbótar alger snillingur
í teikningum af plöntum og dýrum,
sérstaklega fuglum.
Hann hafði fylgt föður sínum
í mörgum ferðum hans en gengið
illa að koma upp eigin býli. Dag
einn (þó ekki B. Eggertsson), árið
1773, tókst honum að sannfæra
annan John, Bretann og lækninn,
dr. John Fothergill, um að styrkja
sig í könnunar- og fræsöfnunarferð.
Læknir sá var efnaður og afkasta-
mikill plöntusafnari og byggði
sjálfur upp afar merkan grasagarð í
London. Eftir honum er nefnd ætt-
kvíslin Fothergilla. Með notkun gler-
hýsa tókst lækninum að búa til safn
sjaldgæfra plantna frá öllum heims-
hornum og því auðvelt að skilja
áhuga hans á ferðalagi Williams.
Krókódílar og andlát
Við tók fjögurra ára ævintýri um
Suðurhluta Bandaríkjanna, frá
N-Karólínu niður til Flórída og
vestur til Louisiana. Eftir að hafa
upplifað samskipti við allt frá frum-
byggjum til krókódíla, snýr hann til
baka til Fíladelfíu um svipað leyti og
andlát föður hans ber að, árið 1777.
Tekur hann þá yfir, ásamt bróður
sínum, John yngri, rekstur plöntu-
starfseminnar og umsjá garðsins.
Um það leyti þroskast starfsemin
í fullvaxna gróðurstöð og gefa þeir
bræður út fyrsta pöntunarlista am-
erískra plantna. Starfsemin er rekin
áfram af þeim bræðrum, og síðar
afkomendum Johns yngri, en síðar
meir lætur lestarframleiðandinn
Andrew Eastwick æskudraum
sinn rætast og kaupir allt af þeim.
Það er okkur öllum til happs að
Eastwick nær að halda þessu gang-
andi í gegnum alla uppbygginguna
á svæðinu, án þess að byggja sjálfur
eða selja.
Ferðalag Williams var einnig vel
skjalfest, gefið út á prenti víða um
heim og lengi talið eitt helsta nátt-
úrufræðirit síns tíma. Vinsældirnar
komu þó ekki síður frá því hversu
laginn hann reyndist í því að færa
sig frá þeirri köldu samantekt vís-
indalegra staðreynda sem tíðkað-
ist þá, yfir í nokkuð rómantískari
stíl. Í dag er ritið enn gefið út og
gengur undir nafninu „Bartram‘s
Travels“ eða einfaldlega Ferðalög
Bartrams. Ferðalagið var talið nægi-
lega merkilegt til þess að stofnað
var félag um það 200 árum síðar
og í dag er slóðinn sem hann ferð-
Steinhúsið sem John Bartram byggði, skömmu eftir landakaupin 1728. Myndir / Kristján Friðbertsson.
Kristján Friðbertsson.
Býflugnabú er skammt frá aðalgarðinum.
Við Schuylkill-ána eru bátar til siglinga en einnig er blómaræktun á flotpramma
sem er fallegt og eflaust vel þegið af flugum og öðrum áhugasömum um
litla eyju.